Morgunblaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011 Á VELLINUM Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is „Tilfinningin er æðisleg, það er ekkert betra en þetta,“ sagði Pálína Gunn- laugsdóttir, leikmaður Keflavíkur, eftir sigur á Njarðvík í gær, 61:51. Þar með var Íslandsmeistaratitill kvenna í körfuknattleik árið 2011 þeirra. Keflavík byrjaði leikinn gríðarlega vel og átti Njarðvíkurliðið fá svör. Eftir fimm mínútur var staðan 11:2 og allt stefndi í stórsigur Keflavíkur. Það var þó með elju og seiglu sem Njarðvík kom til baka og staðan í hálfleik 34:29. Leikmenn Njarðvíkur virkuðu þreyttir eftir erfitt einvígi við deildarmeistara Hamars og tvo erfiða leiki gegn Kefla- vík. Þær hittu ekki vel og treystu of mikið á Shaylu Fields. Það má þó ekki taka það af Njarðvík að þær náðu lengra en nokkur bjóst við. Ekki sáttur við silfrið Þjálfari þeirra, Sverrir Sverrisson, vildi þó meira. „Ég er engan veginn sáttur við silfrið. Það hefur verið svona í síðustu leikjum að þetta hefur ekki dottið fyrir okkur. Ég hafði samt fulla trú á því að við myndum vinna hérna í kvöld og við vorum oft nálægt þeim en náðum ekki að komast yfir. Við náðum að vinna rimmuna gegn Hamri og það var frábært. Ég hafði líka fulla trú á því að við myndum vinna Keflavík. Því miður gekk það ekki eftir. Ég vona samt að Njarðvík sé komið til að vera í kvennakörfunni.“ Hjá Keflavík spilaði áður nefnd Pál- ína frábærlega ásamt mörgum öðrum. Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir var einnig frábær og viðurkenndi eftir leik- inn að þetta væri alltaf að verða erf- iðara sökum aldurs. Það var hins vegar ekki að sjá á henni. Fyrst til að hlaupa fram og aldrei síðust til baka. „Það er frábært að vinna þennan titil og ég tala nú ekki um á föstudegi.“ Pálína Gunnlaugsdóttir tók í sama streng. „Það verður allavega ekki vatn í glasinu hjá mér í kvöld.“ Pálína var stigahæst Íslandsmeistaranna og langt er síðan hún hefur spilað svona vel. „Ég fór á American Style í dag,“ sagði Pálína um hvað skilaði henni svona góðum leik. „Mér fannst ég ekki vera búin að standa mig nógu vel í sókninni í síðustu tveimur leikjum. Ég leit því að- eins í eigin barm og útkoman varð svona. Við vorum allar frábærar, sér- staklega í vörninni en hún vinnur titla.“ Keflavíkurkonur eiga þennan titil svo sannarlega skilinn. Þær unnu sterkt KR-lið í undanúrslitum og nú granna sína í Njarðvík, 3:0. Það sást frá fyrstu mínútu að þær voru mættar til að sigra. Þá á Jón Halldór Eðvalds- son hrós skilið fyrir frábæran árangur með þessar stelpur. Hann hélt allan tímann ró sinni á bekknum og stjórnaði þeim uppbyggilega en með aga. Frá- bær þjálfari og frábært tímabil fyrir hann. Til hamingju Keflavík! Mættar til að sig  Keflavíkurkonur Íslandsmeistarar í 14. skipti eftir sigur á Njarðvík  Unnu einvígið 3:0  Pálína í stóru hlutverki Deildabikar karla, Lengjubikar A-DEILD, 1. riðill: KA – KR .................................................... 0:4 Dofri Snorrason 18., Baldur Sigurðsson 30., Ingólfur Sigurðsson 33., Torfi Karl Ólafsson 89. Staðan: KR 7 7 0 0 19:5 21 ÍA 7 4 1 2 15:7 13 Breiðablik 6 3 1 2 13:9 10 Keflavík 6 2 1 3 12:12 7 Þór 6 2 0 4 14:12 6 Grótta 6 1 2 3 6:12 5 Selfoss 5 1 2 2 5:13 5 KA 7 1 1 5 7:21 4  KR-ingar eru komnir í undanúrslit. A-DEILD, 2. riðill: Fjölnir – Víkingur Ó................................ 0:2 Artjoms Goncars 56. (víti), Þorsteinn Már Ragnarsson 90. Staðan: Valur 7 6 0 1 18:3 18 Fram 5 4 0 1 8:2 12 Fjölnir 7 3 1 3 14:9 10 Leiknir R. 7 3 1 3 12:12 10 Víkingur Ó 6 3 1 2 6:9 10 ÍBV 6 2 2 2 9:8 8 Víkingur R. 7 2 1 4 11:15 7 HK 7 0 0 7 3:23 0  Valur er kominn í undanúrslit og Fram þarf fjögur stig gegn ÍBV og Víkingi Ó. til að fara áfram sem besta lið í 2. sæti. B-DEILD, 1. riðill: Fjarðabyggð – Höttur ............................. 1:2 Staðan: Höttur 4 3 0 1 13:14 9 Völsungur 3 2 1 0 16:3 7 Dalvík/Reynir 3 2 0 1 10:5 6 Fjarðabyggð 4 1 2 1 10:6 5 Leiknir F. 3 0 1 2 3:8 1 Draupnir 3 0 0 3 2:18 0 B-DEILD, 2. riðill: Árborg – KB ............................................. 1:3 Staðan: KB 4 3 0 1 7:4 9 Reynir S. 4 2 2 0 14:6 8 Afturelding 3 2 1 0 5:2 7 Víðir 4 2 0 2 10:10 6 Árborg 4 0 1 3 2:8 1 ÍH 3 0 0 3 4:12 0 Deildabikar kv., Lengjubikar B-DEILD: Afturelding – FH...................................... 1:1 Staðan: ÍBV 3 3 0 0 11:4 9 FH 4 2 1 1 11:4 7 Þróttur R. 3 1 1 1 5:7 4 Haukar 3 1 0 2 3:7 3 Afturelding 3 0 2 1 5:8 2 Grindavík 2 0 0 2 1:6 0 C-DEILD, 1. riðill: ÍA – Álftanes............................................. 6:1 Þýskaland Frankfurt – Werder Bremen .................. 1:1 Holland AZ Alkmaar – Breda............................... 1:1  Kolbeinn Sigþórsson og Jóhann Berg Guðmundsson léku ekki með AZ vegna meiðsla. Belgía Lierse – Mechelen.................................... 1:2  Árni Gautur Arason var varamarkvörð- ur Lierse í leiknum.  Bjarni Þór Viðarsson kom inná hjá Mechelen á 90. mínútu. Noregur Stabæk – Vålerenga................................ 1:0  Veigar Páll Gunnarsson lék í 89 mínútur og lagði upp sigurmarkið, Bjarni Ólafur Ei- ríksson lék allan leikinn en Pálmi Rafn Pálmason var ekki í hópi Stabæk. Svíþjóð Örebro – Syrianska .................................. 1:0 KNATTSPYRNA Vodafonehöllin, fyrsti úrslitaleikur Ís- landsmóts kvenna í handknattleik, 8. apríl 2011. Gangur leiksins: 2:1, 2:4, 5:6, 8:8, 10:9, 14:11, 15:14, 17:15, 20:17, 22:18, 24:19, 24:20. Mörk Vals: Ragnhildur Rósa Guð- mundsdóttir 5, Hrafnhildur Ósk Skúla- dóttir 4, Rebekka Rut Skúladóttir 3, Karólína B. Gunnarsdóttir 3, Anna Úr- súla Guðmundsdóttir 3, Anett Köbli 3/2, Camilla Transel 1, Kristín Guð- mundsdóttir, Íris Ásta Pétursdóttir 1. Varin skot: Guðný Jenný Ásmunds- dóttir 27 (þar af 13 til mótherja), Sig- ríður Arnfjörð Ólafsdóttir 1/1. Utan vallar: 12 mínútur. Mörk Fram: Karen Knútsdóttir 8/2, Stella Sigurðardóttir 6/3, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 2, Birna Berg Haraldsdóttir 1, Ásta Birna Gunn- arsdóttir 1, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 1, Pavla Nevarilova 1. Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 17 (þar af 5 til mótherja). Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Arnar Sigurjónsson og Svavar Ó. Pétursson. Áhorfendur: Um 300.  Staðan er 1:0 fyrir Val. Valur – Fram 24:20 Á VELLINUM Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Stórbrotin frammistaða Guðnýjar Jennýjar Ásmundsdóttur réð úrslit- um í gær þegar Valur tók forystuna í einvígi Vals og Fram um Íslands- meistaratitil kvenna í handknattleik með 24:20 sigri í fyrsta leiknum. Guðný Jenný varði alls 27 skot í leikn- um og sýndi að hún myndi sóma sér vel í landsliðshópi Íslands sem hún til- heyrir þó ekki. „Þegar liðið spilar 6-0 vörn þá má maður búast við því að fá nokkuð mörg skot á markið og maður verður bara að „díla“ við það. Það gekk vel í dag og þetta er bara með því betra hjá mér í vetur. Ég var með góða vörn fyrir framan mig og þetta lið er bara frábært. Við skilum svona sigrum saman með frábærri liðsheild,“ sagði Guðný Jenný brosmild eftir leik. Skjálfti í leikmönnum? Einhvern veginn finnst manni að Valur og Fram hafi spilað hátt í hundrað úrslitaleiki síðustu misserin en þrátt fyrir það var ekki annað að sjá en að heilmikið stress væri í leik- mönnum liðanna. Fyrstu mínúturnar voru bráðfjörugar en svo fór að bera á ráðaleysi í sóknarleik liðanna, og mik- ið sást af vandræðalegum mistökum. Valskonur gerðu færri slík og eftir jafnan og spennandi leik náðu þær að hrista Framara af sér þegar tæpar 10 mínútur voru til leiksloka. Þær sýndu mikinn styrk með því að láta það ekki á sig fá að besti varnarmaður lands- ins, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, skyldi fá sína þriðju brottvísun og þar með rautt spjald þegar korter var til leiksloka. Ragnhildur Rósa Guð- mundsdóttir og Hrafnhildur Skúla- dóttir stigu þá upp og skoruðu mik- ilvæg mörk. Vörnin skilaði sigrinum „Þetta var ekki flottasti sóknarleik- urinn okkar en vörnin hélt mjög vel allan leikinn og það var það sem skil- aði sigrinum að lokum. En þetta er langt frá því að vera búið núna og við verðum að halda fullri einbeitingu í næsta leik,“ sagði Guðný Jenný en lið- in mætast að nýju í Safamýrinni á sunnudaginn kl. 16. Framkonur verða þar að nýta færin sín betur í dag því aðeins tvær þeirra létu að sér kveða í gær, þær Karen Knútsdóttir og Stella Sigurðardóttir. Karen skoraði sex mörk á fyrstu 17 mínútum leiksins en fór svo í sama far og flestir leikmanna Fram, sem virtust hreinlega ekki geta komið boltanum framhjá Guðnýju Jennýju. Of mikið af mistökum „Við skutum illa í leiknum og gerð- um of mikið af tæknimistökum, en miðað við öll þessi mistök og skotin okkar er í raun ótrúlegt hvað við vor- um lengi inni í leiknum. Vörnin var fín hjá okkur og baráttan í góðu lagi, en það eru einhver smáatriði sem þarf að laga. Í svona leik skipta þau máli,“ sagði Einar Jónsson þjálfari Fram sem hefur nauman tíma til að bæta úr þeim. Kraftur Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, s á ný, reynir að brjótast í gegnum vörn F Guðný Jenný Ásmu átti mjög stöðugan mönnum Fram erfi Hún varði alls 27 sk mörg úr galopnum Moggam Maður verður bara að „díla“ við þetta  Guðný Jenný fór á kostum  Valur vann fyrsta leik Toyotahöllin, þriðji úrslitaleikur kvenna, föstudag 8. apríl 2011. Gangur leiksins: 5:2, 11:4, 17:6, 19:8, 22:16, 27:18, 32:27, 34:29, 36:31, 38:32, 45:37, 50:43, 51:45, 53:47, 56:51, 61:51. Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 17/7 fráköst, Ingibjörg Jakobsdóttir 14, Lisa Karcic 14/16 fráköst/4 varin skot, Mar- ina Caran 7/4 fráköst, Bryndís Guð- mundsdóttir 7/5 fráköst/5 stoðsend- ingar, Birna Valgarðsdóttir 2/9 fráköst. Fráköst: 35 í vörn, 9 í sókn. Njarðvík: Julia Demirer 14/14 fráköst, Shayla Fields 12/7 fráköst, Dita Liep- kalne 10/13 fráköst/5 stoðsendingar, Ólöf Pálsdóttir 8, Auður Jónsdóttir 4/4 fráköst, Eyrún Sigurðardóttir 3. Fráköst: 31 í vörn, 11 í sókn. Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson, Davíð Kr. Hreiðarsson. Áhorfendur: Um 600. Keflavík – Njarðvík 61:51 Pálína Gunnlaugs skein skærast í gó henni sjálfstraust þess að spila mjög tók sjö fráköst og Moggam Íslandsbikarinn Birna Valgarðsdóttir te HANDKNATTLEIKUR Annar úrslitaleikur kvenna: Framhús: Fram – Valur ......................... S16  Staðan er 1:0 fyrir Val. KNATTSPYRNA Deildabikar karla, Lengjubikarinn: Framvöllur: Fram – ÍBV ....................... L14 Varmárvöllur: Afturelding – ÍH ........... L11 Reykjaneshöll: Njarðvík – KF .............. L16 KR-völlur: KV – Hamar......................... L16 Boginn: Draupnir – Leiknir F ............... S17 Boginn: Völsungur – Dalvík/Reynir...... S19 Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn: Boginn: Þór/KA – Stjarnan ................... L15 Leiknisvöllur: Grindavík – ÍBV............. S14 SUND Íslandsmeistaramótið í 50 metra laug held- ur áfram í Laugardalslauginni. Í dag eru undanrásir kl. 09.30 og keppt til úrslita kl. 16.30 til 18.00. Á morgun lýkur mótinu og þá eru einnig undanrásir kl. 09.30 og keppt til úrslita kl. 16.30 til 18.00. BADMINTON Íslandsmótið hófst í TBR-húsunum í Reykjavík í gærkvöld og heldur áfram í dag. Á morgun er síðan keppt til úrslita í meistaraflokkunum. HANDBOLTI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.