Morgunblaðið - 19.04.2011, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 19.04.2011, Blaðsíða 21
minnst. Hún hafði sinn eigin stíl, bar sig vel og naut sín í fjöl- menni, en átti líka sínar stundir með fjölskyldu sinni, góð móðir og amma og mikil húsfreyja. Halldóra og Jóhann Gunnar voru farsæl í sínu einkalífi, einn hugur með tvo sjálfstæða vilja. Þau voru vinmörg og höfðingjar heim að sækja. Þau áttu fallegt heimili, prýtt fjölda málverka og fagurra muna, sem bar vitni um listasmekk húsmóðurinnar. Og það fylgdi henni til hinstu stund- ar að vilja hafa fallegt í kringum sig. Við Kristrún heimsóttum hana í Hlíð. Þar fór vel um hana í litlu, snotru herbergi, málverk upp um alla veggi og ljóðabækur í litlu bókahillunni. Þar leið okk- ur vel og áttum góða stund með þessari ógleymanlegu konu, – stund sem geymist í minni okkar og við erum þakklát fyrir. Halldóra hafði yndi af fögrum skáldskap og las ljóð á hverjum degi. Hún hafði næma tilfinningu fyrir hrynjandi og myndmáli og bjó yfir þeirri náðargáfu að geta farið þannig með ljóðið, að aðrir hrifust með. Það fann ég á sjálf- um mér, að hún dýpkaði skilning minn og gaf mér nýja sýn á það sem skáldið vildi segja. Oftast fór hún með ljóð eftir Stein Steinarr eða Snorra Hjartarson. Og þetta er auðskilið um leið og maður átt- ar sig á því, að hún var skáld sjálf, þó hún ræktaði ekki þá gáfu sem skyldi. Þó bar það við, að hún segði nokkur orð í góðra vina hópi eða á mannfagnaði. Ræða hennar var falleg, ljóðræn og haf- in yfir hversdagsleikann. Með Halldóru Ingimarsdóttur er mikil kona gengin, öllum harmdauði, sem henni kynntust. Guð geymi minningu hennar. Halldór Blöndal. Hún Halla okkar er dáin. Þessi síunga og fallega kona sem þó var komin yfir nírætt. Æsku- minningar okkar systra eru margar. Halla gerði alla tíð leik- fimiæfingar, bæði heima og er við fórum í útilegur, og mælti ein- dregið með að við gerðum slíkt hið sama. Hún kenndi okkur öll- um ástvinum sínum að elska og lesa ljóð. Í uppáhaldi var Steinn Steinarr en einnig mat hún Hall- dór Laxness mikils og eitt er það ljóð er hún flutti ótal sinnum og maður sér hana fyrir sér í hvert sinn sem maður les: Og árið kom og árið leið með eina stund, með eina gjöf um óttuskeið: vorn eina fund. Og aðeins þessi eina gjöf, sú eina mynd, er ofar harmi, ofar gröf og ofar synd. Já ofar því sem er og var í önd mín sjálfs er bros þitt sem þú brostir þar. Ó bros míns álfs. Hvorki orð né gull þú af mér fær og einga gjöf -utan það hjarta er heitast slær, þess harm og – gröf. Í ljóðastað þér rún ég ríst, og rúnin þín er þögn sú ein sem alveg víst er eilífð mín. (H.L.) Allt fram á síðasta dag var hún að læra ljóð utanað og síðasta ljóðið sem við fórum með saman var eftir Stein: Undarleg ósköp að deyja hafna í holum stokki. Hendur niður með síðu hendur sem struku lokki. (S.S.) Á heimili Höllu og Jóhanns voru oft á tíðum kettir og hétu þeir ýmist Skoruvík (á Langa- nesi) eða Fagurhólsmýri (í Öræf- um). Einn kötturinn þótti þó bera af í gáfum og var því umsvifa- laust gefið nafnið Ríkisútgáfa Námsbóka. Halla var svolítið eins og köttur sjálf og lét okkur gjarnan klóra sér á bakinu – þess á milli klóraði hún okkur og mik- ið var gott að liggja í kjöltu henn- ar, hlusta á skrafið í þeim bræðr- um, og mömmu og Höllu, og láta klóra sér. Já við fengum einnig að fikta í öllum armböndunum sem hún bar, telja þau og máta. Halla var alltaf í svo fallegum fötum og átti mikið af skartgrip- um sem hún notaði af einstakri smekkvísi og svo ilmaði hún allt- af svo vel. Við systur eigum henni svo ótal margt að þakka. Hún reynd- ist okkur báðum sérlega vel og flutti Margrét margoft inn á heimili til Jóhanns og Höllu til margra mánaða dvalar þegar móðir okkar átti við veikindi að stríða og var Halla henni sem önnur móðir. Halla gaf endalaust af sér, var síkát, og lífsglaðari konu var vart að finna. Hún lifði aldrei lífinu til leiðinda og dekraði ekki við raun- ir sínar. Jóhann sinn elskaði hún meira en allt og þegar hann dó fyrir rúmu ári þá missti Halla lífslöng- unina því svo mjög saknaði hún hans. Við viljum að leiðarlokum þakka allt sem elsku Halla hefur gefið okkur systrum, fyllt líf okk- ar gleði og umvafið okkur með elsku sinni. Fjölskyldunni vottum við sam- úð. Hörmum við mjög að geta ekki fylgt elsku bestu Höllu okk- ar síðasta spölinn. Ragnheiður og Margrét Ólafsdætur. Þegar við hjónin fluttum ásamt fjórum börnum okkar á Ásveg 23 á Akureyri óraði okkur ekki fyrir því að nágrannarnir, gömlu hjónin á efri hæðinni á Ás- vegi 21, yrðu fljótt meðal okkar kærustu vina. Þar bjuggu öðling- arnir Halldóra Ingimarsdóttir og Jóhann Gunnar Benediktsson ásamt kettinum Skoruvík. Þau Halla og Jóhann tóku okkur nýbúunum af mikilli hlýju og eft- ir því sem árin liðu kynntumst við betur þeim skemmtilegu og lífsglöðu einstaklingum sem þessir vinir okkar voru. Þau ár sem nábýli okkar var- aði komumst við betur og betur að því hvernig pólitík og púrtvín fara ágætlega saman. Jóhann sá um pólitíkina og Halla um púrt- arann. Við komum okkur upp merkjakerfi sem sagði til um hvenær rétt væri að setjast á rökstóla. Þar flugu í bland sögur Jóhanns af stríðni og skemmti- legum atvikum og sögur Höllu af gleði og skemmtunum. Halla var með eindæmum lífsglöð og björt í öllu því sem hún komst í kynni við. Þessi gleði smitaði út frá sér og mikið óskaplega var notalegt að skreppa yfir og hlýða á hana rifja upp liðna sæludaga á Langanesinu eða sjá hana taka upp nýjan kjól og dásama. Þegar þau Jóhann fluttu á Hlíð fækkaði samverustundunum til muna, fjarlægðin kom í veg fyrir að unnt væri að nýta merkjakerfið góða. Jóhann lést fyrir rétt rúmu ári og við fráfall hans skynjuðum við fljótt hversu mikill missir Höllu var af félagsskap hans. Tilveran varð litlausari þegar lífsförunaut- ur hennar, besti vinur og félagi var fallinn frá. Höllu leiddist og það var ekki hennar stíll. Í huga okkar verður þeirra heiðurshjóna alla tíð minnst sem skemmtilegra og góðra nágranna og vina. Við þökkum Höllu af al- hug samfylgdina og vottum Mar- gréti, Ásgeiri og Helgu, Jóhanni og Kristínu og öllum börnum þeirra innilega samúð. Guðbjörg, Kristján Þór og börn. Í dag kveð ég elskulega vin- konu mína, Halldóru Ingimars- dóttur. Ég kynntist Jóhanni og Höllu, móðursystur mannsins míns, fyrir u.þ.b. 40 árum. Við Kalli vorum á leið til Þórshafnar að heimsækja frændfólkið hans, ég ólétt og bílveik og við komum við á Mýrarveginum seint að kveldi og okkur var boðin gisting. Ég gleymi aldrei móttökunum þar, uppbúið rúm, góður matur og elskulegt viðmót. Eftir að við fjölskyldan fluttum norður tengdumst við betur þessum elskulegu hjónum. Við Jóhann fórum í ótal veiðitúra austur í Fnjóská og aldrei komum við fisklaus heim. Við Halla höfðum mikil samskipti og þó að aldurs- munurinn væri 30 ár fundum við aldrei fyrir því. Við vorum vin- konur og þá skiptir aldur ekki máli. Við vorum nágrannar á Ás- veginum í mörg ár og þar áttum við góðar stundir. Eldhúsglugg- arnir okkar sneru saman og kveiktum við á kertum og veif- uðum hvor til annarrar og voru ýmis tákn í gangi. Komið þið yfir eða við til ykkar. Þá var oft veifað rétt fyrir matinn í góðum til- gangi. Halla og Jóhann voru bæði miklir fagurkerar og áttu fallegt heimili og þar var oft margt um manninn og glatt á hjalla. Eftir að Jóhann lést hrak- aði Höllu fljótt. Hún saknaði hans og fjölskyldu sinnar. Við áttum ótal góðar stundir á Dval- arheimilinu Hlíð þar sem hún hlaut afbragðsgóða umönnun hjá frábærum starfsstúlkum sem voru henni allar svo góðar. Undir það síðasta ræddum við mest um gömlu góðu dagana frá æsku hennar og uppvexti á Þórshöfn, það var það sem hún mundi best og hafði mesta ánægju af að tala um. Heimsóknir mínar til Höllu voru aldrei kvöð og ég naut þess að vera í návist hennar. Hún var góð vinkona og ég sakna hennar mjög. Við sendum börnum henn- ar og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Karl Davíðsson og Margrét Eyfells. Kveðja frá Inner Wheel-konum á Akureyri Brostu og veröld brosir til þín blítt syng lag og í þinni sálu sól skín sérhvern dag. Og þó að blási á móti og myrkrið nísti kalt máttur til er sterkur er læknað getur allt. Brostu og veröld brosir til þín blítt syng lag. Með þessum Inner Wheel- söng kveðjum við kæra klúbb- systur, Halldóru Ingimarsdóttur, en hún var ein af stofnendum klúbbsins og viðtakandi forseti í fyrstu stjórn hans. Síðar varð hún umdæmisstjóri fyrir hönd klúbbsins og að lokum heiðursfélagi. Halla var trú Inner Wheel-hugsjóninni og hvatti okk- ur til góðra verka. Hún var fyr- irmynd á mörgum sviðum og við dáðumst að gáfum hennar og út- geislun. Hún var framúrskarandi fjölhæf kona og engin las kvæði kvöldsins, sem var fastur liður á fundum, af eins mikilli innlifun og hún og þar að auki hafði hún á hraðbergi kvæði góðskáldanna. Mörg gullkorn féllu af vörum hennar á góðum samverustund- um okkar og hún hvatti til þess að njóta hverrar stundar, þær kæmu ekki aftur. Henni fannst reyndar þegar hún leit til baka til þess tíma að klúbburinn var stofnaður að aðeins væri liðin ör- stutt stund síðan og óskaði þess að félagskonur gætu alltaf starf- að í anda friðar og vináttu og hugsjónir Inner Wheel yrði góð- ur stuðningur í lífinu. Nú við leiðarlok þökkum við áralanga vináttu og tryggð og vottum Margréti, Ásgeiri, Helgu, barnabörnum og langömmus- telpunum dýpstu samúð. Guð blessi minningu Halldóru Ingi- marsdóttur. F.h. Inner Wheel-kvenna á Akureyri, Guðbjörg Sigurðardóttir. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 2011 HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG ÞÓRHALLSDÓTTIR, áður til heimilis á Kirkjuvegi 1, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi, Keflavík, föstudaginn 15. apríl. Útför hennar verður gerð frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 27. apríl kl. 15.00. Þórdís Þormóðsdóttir, Karl Steinar Guðnason, Úlfar Þormóðsson, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Hrönn Þormóðsdóttir, Hallbjörn Sævars, Logi Þormóðsson, Anna Björg Þormóðsdóttir, Erling Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Í dag kveðjum við mág okkar Leif Vilhelmsson. Þessi grann- vaxni og léttlyndi maður varð okk- ur samferða í gegnum lífið allt frá því að Sæunn elsta systir okkar kom með hann inn í fjölskylduna fyrir um það bil fimmtíu árum. Á þeim árum lá hann ekki á skoð- unum sínum, róttækur vinstri- maður, keypti Þjóðviljann og barðist gegn veru bandaríska hersins á Íslandi. Ekki voru nú all- ir sammála honum í fjölskyldunni og skoðanaskipti gátu því stund- um orðið hávær. Leifur var ein- staklega orðheppinn og skemmti- legur maður sem átti auðvelt með að umgangast fólk. Hann var bók- hneigður og ljóðelskur með góða þekkingu á íslenskri tungu. Þegar hann þurfti að hverfa frá vinnu vegna heilsubrests nýtti hann tíma sinn gjarnan til lesturs góðra bóka. Sæunn og Leifur komu sér upp bústað undir Skeljabrekku- fjalli í Borgarfirði, og dvöldu þar langtímum. Staðinn nefndu þau Brekkuland og þar fékk Leifur út- rás fyrir sitt annað áhugamál sem var trjárækt. Þarna vildi hann vera og minning okkar um mann- inn með alpahúfuna á höfði og píp- una í munni tengist sterklega þessum fallega stað. Þeir sem litu inn fengu ósjaldan með kaffinu vísubrot eða tilvitnanir úr skáld- skap honum hugleiknum, tiltæki sem skemmti oft unga fólkinu. Við systkinin og fjölskyldur okkar vottum Sæunni og Steina okkar dýpstu samúð. Við þökkum Leifi samfylgdina og finnst við hæfi að kveðja hann með þessu fallega ljóði eftir Björnstjerne Björnsson í þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar. Og tréð var að springa út með blómknapp og blað. „Nú bít ég!“ með reigingi frostnótt- in kvað. „Nei, væna veittu tóm, uns vaxin eru blóm!“ bað tréð, og af hræðslu fór hrollur um það. Brátt sungu þar fuglar við full- blómgað skraut. „Nú feyki ég því öllu!“ í storminum þaut. „Nei, besti bíddu við, svo berin hafi frið!“ kvað tréð, og í vindinum titrandi laut. Og rauð urðu berin, af röðlinum kysst. „Má ræna?“ kvað stúlkan svo ung og svo þyrst. „Já, blessuð, öll mín ber eru bara handa þér!“ söng tréð, er það hneigði henni krónu og kvist. Valgerður Eiríksdóttir. Leifur Vilhelmsson ✝ Leifur Vil-helmsson var fæddur á Hofsósi 26. júlí 1934. Hann lést á líknardeild Landakotsspítala 11. apríl 2011. Foreldrar hans voru Hallfríður Pálmadóttir og Vil- helm Erlendsson. Árið 1960 kvænt- ist Leifur Sæunni Eiríksdóttur, f. 7. júlí 1938. Son- ur þeirra er Þorsteinn, f. 6. sept- ember 1961. Útför Leifs verður gerð frá Áskirkju í dag, 19. apríl 2011, og hefst athöfnin klukkan 11. Sagan af honum Grána, sem við Leif- ur frændi minn sótt- um út í Þingeyra- sand sem unglingar um sumarnótt, verð- ur ekki sögð hér í neinum smáatriðum. Ég var í kaupavinnu á Helgavatni í Vatnsdal, en Leifur í vegavinnu framar í dalnum. Við hugð- umst ná í gráan hest, sem ég átti í hagagöngu á Þingeyrum, til nota í Vatnsdalnum þetta sumar. Eftir mikið bardús og eltinga- leik tókst okkur að handsama gráa hestinn og koma honum síð- an í girðingu á Helgavatni. Á þessum tíma var sveitasím- inn helsta fréttaveitan þar um slóðir. Næsta dag var óvenju mik- ið um hringingar jafnvel svo að menn fóru að taka upp tólið og hlusta, því það leit helst út fyrir að um stórfréttir væru í boði á lín- unni. Fréttist þá að Gráni prests- ins væri týndur og hans leitað um allan Hagann, allt frá strönd Húnaflóa í norðri að Sveinsstöð- um í suðri. Nú voru góð ráð dýr. Gat verið að við frændsystkinin hefðum gert mistök þrátt fyrir okkar glögga auga að eigin mati fyrir hestum? Ég fór út í girðingu til þess að skoða hestinn, sem þar var og ég hafði talið mína eign. Svo fór að ég fór að efast. Ég ráð- færði mig við vin minn bóndann á bænum og hann ráðlagði mér að sleppa hestinum umsvifalaust úr girðingunni og láta hann sjálfan sjá um að koma sér á framfæri. Þetta gerði ég þótt ekki væri það stórmannlegt. Hesturinn tók á rás í norðurátt og hvarf mér brátt sjónum. Nokkru síðar barst sú frétt úr sveitasímanum að leit væri aflétt því Gráni prestsins væri fundinn heill á húfi. Viðbrögð Leifs við gjörðum mínum voru á þann veg, að hann stóð með mér í þessu máli á alla lund. Þannig hefur hann reynst mér og mínum fram í rauðan dauðann. Að verða aðnjótandi artarsemi, vináttu og tryggðar fólks verður seint fullþakkað. Leifur kom þannig fram við mig að ógleymdri Sæunni konu hans. Ég þakka kærum frænda sam- fylgdina og hjálp margvíslega, s.s. við að handsama hesta, smíða stóðrétt, leiðbeina um skógrækt og þá ekki síst fyrir, að hafa farið með mér í ótal könnunarferðir um svæðið sunnan og norðan Skarðs- heiðar og gætt þess eftir bestu getu að ég væri ekki ein á dimm- um síðkvöldum í þeim leiðangrum, ef svartur refur kynni að birtast á glugga. Innilegar samúðarkveðjur til þinna nánustu frá öllu mínu fólki. Hvíl þú í friði. Guðrún Jónsdóttir arkitekt. Nú er hann Leifur frændi lát- inn. Eðlilegt framhald af heilsu- leysi síðasta eina og hálfa árið, en samt er mér brugðið. Eitthvað svo tómlegt að vita ekki af honum með Sæunni á Nesinu eða í Jökul- grunninu. Einkennileg tilfinning að eiga ekki eftir að sjá hann aftur. Leifur og Sæunn voru fasta- gestir í nýársboðinu sem mamma hélt á hverju ári fyrir ömmu mína Huldu Árdísi, sem var skírð í höfuðið á huldukonunni góðu sem reyndist að vísu mennsk. Þetta voru fjölmenn boð með vinum og ættingjum, sem voru ýmsir, því amma var mjög ættrækin. Leifur var sonur Hallfríðar systur afa Jóns. Þau voru fólkið sem rabbaði við okkur krakkana og vildi heyra okkar álit á hinum ýmsu málefn- um. Eftir að ég varð ein með krakkana mína, Nikulás Árna og Steinunni Völu, voru þau tíðir gestir og bættust við í ömmu- og afahópinn. Við vorum alltaf velkomin óvænt í kvöldmat og ósjaldan komu þau til okkar með máltíð með sér. Bobbi bróðir minn var gjarna með í för og oft glatt á hjalla. Bobbi er rúmum 6 árum eldri en krakkarnir mínir og þau miklir félagar. Leifur og Sæunn tóku einnig mikinn þátt í hans lífi, m.a. í hestamennsku á Grjóteyri og ferðalögum til Akureyrar með- an Bobbi var í MA. Við fórum saman í yndislegar sumarferðir. Sæunn hafði vit fyrir mér sem yf- irleitt hef ekki mikinn fyrirvara á hlutunum og pantaði gistingu með hálfs árs fyrirvara. Hún vildi að það færi vel um okkur og útbjó mat og drykk til fararinnar. Leifur var fararstjórinn og sá til þess að við stoppuðum bílinn með reglu- legu millibili og skoðuðum okkur um. Sæunn bauð upp á nesti og kakó á brúsa og vakti það mikla lukku. Í minningunni var alltaf sól nema hálfan dag á Kirkjubæjar- klaustri, en þá rigndi eldi og brennisteini. Í einni af þessum ferðum fórum við í Skagafjörðinn og þá uppgötvaði ég fegurðina á Hofsósi. Leifur frændi dreif okkur niður í fjöru að sjá stuðlabergið og fór svo með okkur í kvosina við ós Hofsár, en þar stóð húsið sem hann ólst upp í að niðurlotum kom- ið. Ég sá Hofsós í nýju ljósi, kulda- legi útkjálkabærinn hvarf. Næsta sumar urðum við þeirrar ánægju aðnjótandi að sjá sama húsið upp- gert og breytt í kaffihúsið Sólvík, skemmtilegt upphaf að upp- byggingunni á Hofsósi sem fæddi af sér Vesturfarasetrið. Leifur átti sínar skuggahliðar og gat orðið óendanlega svart- sýnn. „Það bjargast ekki neitt, það ferst, það ferst.“ Sem betur fer varði það ástand ekki lengi í einu, því það gat verið mjög erfitt að verjast slíku tali. Leifur naut þess vel að vera á Brekkulandi undir Skeljabrekku- fjalli í Borgarfirði síðustu árin, en þar er indæll sumarbústaður með öllum þægindum sem þau Sæunn byggðu og hann dvaldi þar löngum stundum. Ég er þess fullviss að það hefur verið Leifi ofraun að sjá ekki fram á að geta dvalið þar í sumar vegna heilsuleysis og hefur því flýtt sér þangað sem hann hef- ur betri yfirsýn. Ég þakka þér, Leifur, fyrir allar góðu stundirnar sem þú áttir með ökkur krökkunum og Sæunni. Ég mun geyma þær í hjarta mínu. Hulda Sigríður Jeppesen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.