Siglfirðingur


Siglfirðingur - 09.09.1957, Blaðsíða 4

Siglfirðingur - 09.09.1957, Blaðsíða 4
4 S I'G’L P I R « I N G TJ R Silliifjarðarkirkja 25 ára Miðvikudagmn 28. ágúst s.l. voru liðin 25 ár frá því að hin nýja Siglufjarðarkirkja var vígð. Afmælis þessa \ar minnzt með hátíðamessu í kirkjunni og sahik-Væmi í S jómanna- og gestaheimili Sigluf jarðar suiinudaginn 1. sept. s.l. Jafnhliða afmæli þessu va,r haldinn héraðsfundur Eyjafj.prófastsdæmis. 125: ára afmæli Sig-lufjarðar- kirkju .var minnzt með hátíða- mesau í kirkjgnni og samkvæmi í Sjómánnaheimilinu, 'Hinn ,28. ágúst 1932 var nú- vérandi kirkjuhús Sigluf jarðar vígt. Voru því hin 28. ág. síðastl. rétt 25 fir frá yígsludegi. Var þessara tímamóta minnst með hátíðamessu í, 'kirkjunni. — Prófastur, .Eyjafjarðarprófasts- dæmíá, sr. Sigurður Stefánssón, pres^tur.,að Möðruvöllum í Hörgár-. dal, flutti predikun, en prestarnir sp. Kristján Róþertsson ,og. sr. Ragrjar Fjalar , sóknarprestur þjónuðu fyrir altari. Fluttu þeir Hvítasunnumessusöng, éftir séra Bjarna Þorsteinsson prófessor. — Annaðist Kirkjukór Siglufjarðar sönginn undir stjórn Páls Erlends- sonar. yið me^suvoru staddir aðkomu- préStar' auk prófasts og séra Kristjáns, þeir séra Fjalar, prest- ur j Jtjj’ís.ðy ,þg iaðir hans past.em. Sigurjori: Jórisson. Þá voru og við- staþdir allir safnaðarfulltrúar, er setið-.höfðu héraðsfund hér daginn áður, . • ffinnig • voru viðstaddir eldri Siglfirifingar búsettir annars- sta.ðar, meðal annarra frú Ólöf Blöndal, akkja Soph. sál. Blöndals, kaupmanns hér í bæ, en hann og þau hjón unnu mjög að því að þetta myndarlega guðshús væri byggt. Athöfnin, ,í kirkjunni fór öll fram með virðulegum hátíðablæ. Síðastliðinn vetur var kirkjan máluð að innan, og utanhúss vár málningu lokið fyrir skömmu. — Þótti kirkjan . breyta mjög upi svip yið málninguna. Áður var kirkjan að innan í ljósum litum, fremur fölleit, sviplítil en þó alltaf viðkunnanleg. Með nýju málning- unni 'komu sterkari litir, sem þykja gera kirkjupa svipmeiri og Mflegri, en sóma sér vel. Málningarverksmiðjan Harpa h.f. Reykjavík iagði til allt efni, en litasérfræðingur hennar, Hörð- ur Ágústsson listmálari, réði litum bæði írinán kirkju .og utan. Þennan . afmælisdag var sigl- firzkt.. bMðuveður, stafalogn . og sólskin. ., Geislar sumarsólarinnar léku ,um kirkjuna og ljómaði hún- öll ,af gulli og -glans og, jók mjög þann hátíðablæ, sem á, , Jíirkjuat- höfninni var. Nýstárlegur við- burður í kirkjuathöfninni var sár; að brjúðhjónaefni voru gefin sam- • an í messunni, þau fröken Edda Thorlacíus, nemandi í lyfjafræði og Sigurður fsaksson iðnnemi, bæði úr Reykjavík. Sóþnarprestur gifti. Að .aflokinni messu, var setzt að kaffidrykkju í Sjómannaheim-. ilinu. Hafði sóknarnefndin boðið til þessa afmælishófs, og stjórnaði formaður hennar, Andrés Hafliða- son, því með ágætum. Bauð hann gesti velkomna til þessa hófs. — Þá voru margar ræður fluttar og sungnir ættjarðarsöngvar og sálmar á milli þeirra. Ræður fluttu prófasturinn séra Sigurður Stef- ánsson, safnaðarfulltrúarnir Jón Melsteð frá Hallgilsstöðum og Magnús Hólm fulltrúi frá Saur- bæjarþingum í Eyjafirði, Baldur Eiríksson forseti bæjarstjórnar, Jóhann Jóhannsson skólastjóri Gagnfræðaskólans, séra Kristján Róbertsson, frú Guðrún Björns- dóttir, séra Fjalar Sigurjónsson frá Hrísey og sóknarpresturinn séra Ragnar Fjalar. Frá öllum ræðumönnum bárust heiilaóskir til kirkjunnar á þessum tímamótum. Tvær ræður voru þarna dálítið sérstæðar. Frú Guðrún Björns- dóttir ryfjaði upp nokkrar Ijúfar endurminningar viðkomandi bygg- ingu þessarar kirkju og fór mikl- um og verðugum lofsorðum um þann mifela þátt, sem Sophús heit. Blöndal kaupmaður átti i að koma upp kirkjunni, og mælti um leið nokkur orð til eftirlifandi konu hans, frú Ölafar Blöndal, er skip- aði eitt heiðurssætið í samsætinu. Þá minntist frú Guðrún á altaris- töfluna, sem nú prýðir gafl kórs- ins. Kvað hún hana hafa verið gjöf til kirkjunnar frá nokkrum góðum unnendum hennar. — I því sambandi las hún útdrátt úr ræðu, er Þormóður Eyjólfsson hélt, er taflan var afhent kirkjunni. — Ekki hefur enn verið upplýst um álla gefendur, en sá sem átti fyrstu uppástunguna og stærsta fjárframlag til kaupa á altaristöfl- unni, kvað frúin eifeki lengur vera leyndarmál og skýrði frá, að það hefði verið Ingvár heitinn Guð-J: jónsson útgerðarmaður. En sjálfsagt hafa þéir Þormóð- ur og Sophús stutt mjög uppá- stungúna og vérið þess mjög fýs- andi-, áð Sigiufjarðarkirkja • eign- aðist þetta fagra málverk eftir Gunnlaug Blöndál listmálara. Séra Ragnar hélt einkar fróð- legt erindi- um kirkjurnar* á Siglu- nesi og Hvanneyri og flutning þeirra frá Siglunesi að Hvanneyri, ofan á Eyrina og síðan á þennan stað, sem hún nú stæði. Flutti að síðustu þakkarorð til allra, sem hefðu fært kirkjunni góðar og myndarlegar gjafir fyrr og síðar og hlynt svo að kirkj- unni, að telja megi, að hún sé nú með myndarlegustu og vistlegustu kirkjuhúsum á þessu landi. Að síðustu las sóknarnefndar- form. upp allmörg heillaskeyti, sem kirkjunni hafði borizt. — Einnig las hann upp tilkynningu frá Kvenfélaginu Von hér í bæ þess efnis, að það gæfi kr. 2500 í orgelsjóð kirkjunnar, og upplýsti um leið, að allt efni til málningar á kirkjunni hefði verið gefið, en mætti ekki að svo stöddu, geta gefandans. — Þakkaði hann öllum, sem á einn eða annan hátt hefðu sýnt Siglufjarðarkirkju vinarhug, þakkaði öllum fyrir þátttöku í þessum afmælisfagnaði og bað aðkomufóiki heillrar heim- komu. „Um leið og ég flyt héðajn frá Siglufirði, sendi ég ykkur, kæru Siglfirðingar, hugheilar kveðjur og velfaniaðar óskir. Ólöf Barðadóttir“. Eins og sést á ofanrituðu er frú Ölöf Barðadóttir alflutt héðan til Reykjavíkur, og setzt hún að hjá dóttur sinni, Vilhelminu og tengda syni Kristjáni Karlssyni. Frú Ólöf var fædd á Siglufirði, dóttir 'hins margrómaða og ágæta skipstjóra Barða Guðmundssonar Brynjólfssonar, verzlunarstjóra hér og Guðrúnar Einarsdóttur. Hér sleit frú Ólöf sínum barns- skóm. Hér átti hún sína æsku- drauma og fjölmargar ánægju- stundir í 'hópi glaðra systkina og frændaliðs. Hér bjó hún sín mann- dómsár; stofnaði indælt heimili með manni sínum, Vilhelm Jóns- syni, kaupmanni. Ánægjustund irnar voru margar, sem hún átti á heimili sínu —- en skin og skúr skiptist tíðum á í lífi okkar mann- anna — hún varð líka að þola þungar og erfiðar sorgarstundir. Hún varð að sjá á eftir tveimur börnum sínum á bernsku og æsku- skeiði yfir móðuna miklu. Maður hennar missti heilsuna og 9 ár, löng og stundum erfið, sat hún 1 við sjúkrabeð hans og hjúkraði honum með stakri alúð og innileik þar til hann hlaut hinztu hvíld. Úr þessum mifelu mannraunum kom Ólöf sem hetja. Yfir henni hvíldi' höfug ró og friður, og virt- ist manni við frekari kynni, liða straumur yls og hlýleika frá henni til alls og allra. Hún var guðrækin og unni kirkjunni sinni. Var hún Yfir samsætinu hvíldl léttúr, frjálslegur og virðulegur blær og fór það mjög vel fram. Því lauk þann veg, að allir risu úr sætum og sungu „Þin misikunn á guð“. Háraðsfundur Eyja fj.prófastsdæmis var haldinn hér laugardaginn 31. ág. síðastl. Er það í fyrsta sinn, sem sá fundur er haldinn hér. Fyrir fundinn voru lagðir árs- reikningar allra sókna í prófast- dæminu til umræðu og samþykkt- ar. Ennfremur voru til umræðu ýmis mál, er varða kirkjulega starfsemi. Að afloknum fundi, sátu fundar- menn kvöldboð, kaffidrykkju, heima á Hvanneyri hjá presthjón- unum frú Herdísi og sr. Ragnari Fjalar. Var veitt með myndarskap og rausn og kvöldstundin hin ánægjulegasta. þar viðstödd við hverja messu og aðrar athafnir, sem þar fóru fram og sat þá alltaf í sama bekknum. Hún var bundin óröfa tryggða- böndum bænum sínum og sam- ferðafólki, og því mun henni hafa fundizt erfitt að slíta þessi gömlu tengsl og flytja héðan. En dóttir hennar þráði að veita móður sinni aðstoð og aðhlynningu á elliár- unum og það varð að ráða. Oft mun frú Ólöf renna hug- anum norður yfir fjöllin til æsku- stöðvanna og æskuvinanna, sem eru hér eftir búsettir. Og um leið og hún flytur héðan, færir henni allt gamla samferða- fólkið og það yngra, sem kynntist henni, alúðarfyllstu þakkir fyrir ógleymanlegar liðnar samveru- stundir og óska henni guðs bless- unar og varðveizlu til hinztú stundar. P. E. SIGLFIRÐINGAR! Við erum enn með lægstu hlut- fallstölu samanborið við aðra kaupstaði, í samnorrænu sund- keppninni. Athugið, að sundlaug- inni verður lokað 15. sept., er því aðeins um viku að ræða til þess að ijúka af þessari keppni. Nú verða allir, sem geta synt þessa 200 metra, að ljúka þeim, vilji þeir ekki, að bæjarfélag þeirra dragist langt aftur úr hliðstæðum kaupstöðum í þessari keppni. Góður og gamall Siglfirðingur kveður samborgara sína.

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.