Morgunblaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011 Elsku amma Sidda. Þá er komið að kveðjustund. Ævi þín í þessum heimi er liðin og þú farin heim til skaparans þar sem þú hittir afa Magga. Ég er fullur þakklætis í þinn garð. Þú varst hraust hetja og lést ekk- ert stoppa þig og kærleikur þinn til okkar ættingjanna var aðdá- unarverður. Borðin í Hvera- gerðinu svignuðu undan kræs- ingum í hvert sinn sem gesti bar að. Ég litli snáðinn var ætíð spenntur fyrir að koma og fá volga ástarpunga með rúsínum og nýbakaðar kleinur. Það var mikið ævintýri að koma í heimsókn því það var aldrei dauð stund. Afi spilaði á orgelið, þú stjanaðir við mann og Biggi frændi leiddi mig í ævin- týraheima og sýndi mér merki- Sigurbjörg Oddsdóttir ✝ SigurbjörgOddsdóttir, fæddist á Flateyri við Önundarfjörð 16.7. 1930, hún lést á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi þann 20.5. 2011. Útför Sig- urbjargar fór fram frá Akraneskirkju 30. maí 2011. lega hluti. Það var engu líkara en mað- ur væri konungbor- inn gestur. Sögur þínar um gamla tíma voru skemmti- legar og alltaf var stutt í hláturinn. Þú hefur gengið í gegnum súrt og sætt en ávallt staðið keik. Myrkrið beið ávallt ósigur fyrir ljósinu sem umvafði þig. Gleðin, einlægnin og kærleikurinn fylgdu þér allt til síðasta dags. Það var gaman að koma og hitta þig um daginn, amma mín, og sú heimsókn rifjaði upp margar góð- ar bernskuminningar. Nú hef- urðu lagst til hvílu í síðasta sinn en minning um góða konu mun lifa um ókomna tíð. Guð blessi þig, hrausta hetja. Í gegnum móðu’ og mistur ég mikil undur sé. Ég sé þig koma, Kristur, með krossins þunga tré. Af enni daggir drjúpa, og dýrð úr augum skín. Á klettinn vil ég krjúpa og kyssa sporin þín. (Davíð Stefánsson.) Magnús Sigurjón II. Þegar ég fæddist var ég svo heppin að fæðast inn í fjöl- skylduna þína, það eru ekki all- ir sem eru svo heppnir að eiga afa sem er hetjan þeirra en þú hefur alltaf verið mín. Þegar ég var lítil ætlaði ég alltaf að vera eins og afi þegar ég yrði stór og enn þann dag í dag ert þú fyrirmyndin mín. Þú hefur kennt mér svo margt og ég vona að ég hafi bara brot af þínum hæfileikum því þeir voru svo ótal margir. Ég man eftir því eins og það hafi gerst í gær að ég fór í kjól, hvíta hnésokka, ballerínuskó, fékk slaufu í hárið og beið við gluggann í herberginu mínu eftir þér og aldrei þurfti ég að bíða lengi því þú varst alltaf svo stundvís. Þú kenndir mér að bera virðingu fyrir tíma ann- arra og mínum eigin. Minningarnar eru ótal marg- ar, allt það sem við gátum brallað saman, þegar ég var með þér í vinnunni, þegar við borðuðum svið saman á mið- vikudögum, þú byggðir Spóa- staði fyrir mig við hliðina á Álfafelli, sumarbústaðnum ykk- ar ömmu, keyptum og skreytt- um jólatré saman, fórum á íþróttamót fatlaðra, á hesta- mót, þegar þú komst í heim- sókn til mín í Danmörku, öll föxin sem við sendum hvort öðru á meðan ég bjó í Dan- mörku eða allar ferðirnar upp í Álfafell. Þetta eru minningar sem ég mun aldrei gleyma, elsku afi minn. Það er aðdáunarvert hvað þú afrekaðir mikið á þinni lífsleið og ætti fólk að taka það til fyr- irmyndar. Þú hafðir endalausa orku til að framkvæma og Sigurður Magnússon ✝ SigurðurMagnússon var fæddur á Reyð- arfirði 2. júní 1928. Hann lést á Hrafn- istu í Reykjavík 27. mars 2011. Sigurður var jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík 1. apríl 2011. hjálpa öðrum. Þú kenndir mér að maður á aldrei að gefast upp og að maður geti allt svo lengi sem viljinn er fyrir hendi. Allt þetta kenndir þú ekki með því að lesa yfir mér held- ur með því að sýna gott for- dæmi. Þú hefur verið svo stór part- ur í mínu lífi. Fátt í mínu lífi hefur reynst mér jafn erfitt og veikindi þín, að þér skyldi líða svona illa og fara frá okkur að mínu mati allt of fljótt. Ég veit líka að það er ekki sanngjarnt af mér að vilja hafa þig lengur hérna á jörðu þar sem þú varst kom- inn með sjúkdóm sem ekki einu sinni þú gast sigrað. Ég er þakklát fyrir allar þær minningar sem við eigum sam- an og allar þær stundir sem við áttum saman, og einnig undir það síðasta þar sem við áttum góða kveðjustund sam- an. Þegar ég eignaðist Ísak Kristófer varst þú einn af þeim fyrstu til að koma og kíkja á fyrsta langafabarnið þitt. Þú lést aldrei neitt halda þér í burtu frá fjölskylduviðburðum enda algjör fjölskyldukarl. Við Ísak Kristófer syngjum oft lagið okkar Lóan er komin og ég mun halda áfram að segja Ísak Kristófer frá lang- afa sínum, sem slapp frá Grýlu, stofnaði Melabúðina, vann fyrir fatlaða, kom með kandífloss til Íslands og að þú hafir hlotið fálkaorðu fyrir störf þín í þágu íþrótta og stórriddarakross og margt fleira. Þið Ísak Kristófer náð- uð rosalega vel saman og hann talar oft um þig og fyrir nokkrum dögum sagði hann mér að núna væri langafi ekki lengur veikur. Ég vona að þú hafir það gott í himnaríki, elsku afi, því ég veit að þú ert þar því þú ert sannur engill! Takk fyrir allt, elsku afi. Þín afastelpa, Linda Jóhannsdóttir. Elsku fallegi gullmolinn minn. Ég sit og horfi á síðustu mynd- ina sem tekin var af þér með hin- um gullmolunum mínum. Öll þessi geislandi fallegu andlit, öll brosandi á leið í sund. Dagurinn sem átti að vera eitt stórt æv- intýri endaði á þann hátt sem engan óraði fyrir. Það á enginn að þurfa að horfa á eftir svona glaðlegum ungum dreng sem á allt lífið framundan. Við sem eftir stöndum verðum þó að trúa að þessi atburður hafi einhvern til- gang, þér hafi verið ætlað eitt- hvert mikið hlutverk á öðrum stað. Það hrúgast inn fallegar myndir í höfðinu á mér, af þér fallegi fjörkálfurinn minn. Hvað þú varst ánægður þegar við vor- um búin að teikna bílabrautina á stéttina heima hjá ykkur í Dan- mörku og við lékum okkur þar saman. Þú varst oft að rifja það Vilhelm Þór Guðmundsson ✝ Vilhelm ÞórGuðmundsson fæddist 1. desem- ber 2005. Hann lést af slysförum 22. maí 2011 á Land- spítalanum í Reykjavík. Útför Vilhelms Þórs fór fram frá Selfosskirkju 1. júní 2011. upp og við ætluðum alltaf að endurtaka það hér heima. Tívólíferðin, ára- mótin, öll kósý- kvöldin með ykkur systkinunum og mömmu þinni, mun- um við Guðný alla tíð eiga í minninga- bankanum okkar. Lífsgátan er stundum stríð, stundum góð og stundum blíð. Stundum bros og stundum tár, stundum ljúf og stundum sár. Barnið, drottinn, þökkum þér, þótt fengi stutt að dvelja hér. Samt var þessi gjöfin góð, sem gull í minninganna sjóð. Kveðjustundin komin er, kveðjan hlý, sem héðan fer. Guð minn geymdu barnið mitt, já, geymdu það við hjarta þitt. Í kistu blundar barnið mitt, það biður faðirvorið sitt. Og til þín drottinn leggur leið, svo langt frá heimsins sorg og neyð. (Hörður Zóphaníasson.) Guð geymi þig, elsku fallegi gullmolinn minn. Þín frænka, Hildur. Elsku litli frændi minn. Ég var svo lánsöm að fá að kynnast þér vel þegar þið bjugg- uð í Danmörku. Þú byrjaðir á barnaheimilinu mínu og á sömu stofu og ég, og ég fékk að passa þig í heilt ár. Það var alltaf svo yndislegt þegar þú komst á morgnana og ég fékk knús þegar við sátum við gluggann og vinkuðum til mömmu þinnar, og þú komst allt- af annað slagið yfir daginn og knúsaðir mig. Þú varst fljótur að eignast vini og þið lékuð ykkur vel saman og mörg voru prakkarastrikin. Besti vinur þinn hann Mathias spurði oft um þig, hvort þú hefðir það gott, hann hafði áhyggjur af þér af því að á Íslandi voru svo mörg eldgos. Ekki hvarflaði að mér þegar ég kvaddi þig á planinu heima hjá mér að þetta væri í síðasta skipt- ið sem ég sæi þig. Ég spurði hvað ég ætti að gera núna þegar ég fengi engin knús frá þér, og þú svaraðir að þá mætti ég knúsa besta vin þinn í staðinn. Bless, elsku litli frændi minn. Takk fyrir að ég fékk að passa þig. Minningin um þig lifir í hjarta mínu. Elsku Elísa, Guðmundur og fjölskyldur. Missir ykkar er mik- ill, megi Guð og allir englar him- ins verða ykkur til styrktar. Sigrún. Vilhelm Þór og Sóley Björk systir hans voru kærkomin við- bót í barnahópinn sem tengist fjölskyldunni, þegar Guðmundur faðir þeirra og Íris Rán fóru að rugla saman reytum. Síðan systkinin fluttu aftur heim til Ís- lands hefur samband okkar við þau systkin styrkst með hverri vikunni sem líður. Sóley hlédræg og oft feimin, en Vilhelm Þór þeim mun frakkari og ekki sak- aði að þeir Sólmundur Ingi voru jafnaldrar og á sömu deild í leik- skólanum Jötunheimum. Það þróaðist með þeim mikill og góð- ur vinskapur, utan skóla sem inn- an. Ef við heimsóttum þau á Stokkseyri leið oftast ekki á löngu áður en „gormarnir“ hlupu út til að leika sér, gjarnan við Þuríðarbúð og „skotturnar“ Sól- ey og Aníta litla á eftir þeim. Það var heldur engin lognmolla í Lóurima 9 þegar Guðmundur, Ír- is og börnin þrjú kíktu í heim- sókn. Kæra fjölskylda! Sár tregi og söknuður er eitthvað sem enginn vill upplifa. En Vilhelm Þór skildi eftir sig ótal góðar og ljúfar minningar sem við geymum í hjörtum okkar áfram og við erum þess fullviss að Vilhelm litli er á góðum stað og að honum líður þar vel, hjá Guði og Jesú. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Við biðjum góðan Guð að gefa fjölskyldum og öðrum ástvinum Vilhelms styrk og von í sorginni. Símon, Þórdís, Magnús Bjarki, Eyþór og Sólmundur Ingi. Amma Bestó var mögnuð kona og ávallt hress. Hún hugsaði vel um sitt fólk og naut þess að hafa fjölskylduna í kringum sig. Stóra húsið á Bergstaðastræti geymir ótal æskuminningar. Heimsókn til ömmu og afa á Bestó var eins og að heimsækja ævintýraland; þar var alltaf eitthvað nýtt að gera eða finna. Tískusýningar úr fataskáp þeirra, uppgötvun á tölvuöld gegnum Sinclair Spectr- um og Manic Miner, samsetning mannslíkamans úr óteljandi smáum hlutum og skák er meðal þeirra hluta sem við komumst í kynni við. Oft var kvöldunum eytt í að borða ís, spila og spjalla um allt á milli himins og jarðar. Amma Bestó var mikil at- hafnakona sem hafði fullt af Soffía Axelsdóttir ✝ Soffía SvavaÓlöf Axels- dóttir fæddist á Ísa- firði 15. mars 1923. Hún lést á Land- spítalanum 17. maí 2011. Útför Soffíu fór fram frá Fossvogs- kirkju 27. maí 2011. áhugamálum, og leyfði okkur gjarn- an að taka þátt ef við óskuðum þess. Hún spilaði golf og brids, synti dag- lega, ferðaðist bæði innanlands og utan og fór á ýmis nám- skeið um tölvur og tækni, jafnvel eftir áttræðisaldurinn. Amma var ekki hrædd við neitt, hún naut þess að prufa eitthvað nýtt og óhefð- bundið og hún hvatti okkur ein- dregið til að gera slíkt hið sama. Henni þótti gaman að heyra ferðasögur frá framandi slóðum og styrkti okkur jafnvel til að ferðast meira og sjá heiminn. Amma var mjög sjálfstæð kona og fór oft sínar eigin leiðir. Eins og hún sjálf sagði: „Það gerir líf- ið skemmtilegra“ – enda átti hún langt og gott líf. Við munum alltaf minnast ömmu Bestó fyrir góðu stund- irnar sem við áttum með henni og þökkum fyrir að hafa þekkt þessa lífsglöðu konu. Stefán, María og Ásta Soffía. Að skrifa minningagrein Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina. Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar. Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til birtingar á mánudag og þriðjudag. Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000 tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum, þar sem þær eru öllum opnar. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efn- isliður valinn. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minn- ing@mbl.is og láta umsjón- armenn minningargreina vita. Minningargreinar ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR KJARVAL. Sérstakar þakkir til þeirra sem önnuðust hana á hjúkrunarheimilinu Grund. Hrafnhildur Tove Kjarval, Robin Løkken, Jóhannes S. Kjarval, Gerður Helgadóttir, Kolbrún S. Kjarval, Ingimundur S. Kjarval, Temma Bell, María S. Kjarval, Nielserik Hald, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, LEIFUR ÖLVER GUÐJÓNSSON frá Stafnesi, lést fimmtudaginn 26. maí. Útförin fer fram frá Hvalsneskirkju föstu- daginn 3. júní kl. 13.00. Jón Ben Guðjónsson, Þorbjörg Aldís Guðjónsdóttir, Margrét Lóa Guðjónsdóttir, Gísli Hermannsson, Guðjón Gísli Gíslason, Guðmunda Þórisdóttir, Stefanía Rós Gísladóttir, Björk Ína Gísladóttir, Gísli Kr. Ísleifsson, Árni Snær Gíslason, Hermann Fannar Gíslason, Guðrún S. Magnúsdóttir, Ívar Örn Gíslason, Allen Jón Gunnarsson, Katheryn Stefanía Gunnarsdóttir og systurbarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.