Morgunblaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011
Jóhanna Sigurðardóttir kunni þvíilla í umræðum á Alþingi í vik-
unni að vera kölluð friðarspillir. Þó
er ljóst að í umræddu máli hefur hún
gert sitt ýtrasta til að rjúfa friðinn –
og tekist vel upp.
Í ótengdu máli erJóhanna líka
friðarins manneskja
að eigin áliti. Spurð
út í viðbrögð við
áfellisdómi kæru-
nefndar jafnréttis-
mála fyrir að hafa
gengið framhjá
konu við skipan í
stöðu sagðist Jó-
hanna ekki ætla með
málið fyrir dóm-
stóla.
Ég vil leita sátta íþessu máli og að því hefur ver-
ið unnið,“ sagði forsætisráðherra.
Hún bætti því við að ríkislögmaður
hefði verið að vinna í málinu og ver-
ið í sambandi við lögmann Önnu
Kristínar Ólafsdóttur, sem kæru-
nefnd jafnréttismála hefur úrskurð-
að að Jóhanna hafi brotið gegn.
Síðar sama dag og Jóhannagreindi frá miklum sáttahug
sínum í málinu kom fram í frétt á vef
Morgunblaðsins að Önnu Kristínu
hefði aðeins einu sinni verið boðið til
fundar í forsætisráðuneytinu til að
ræða málin.
Þar var ennfremur frá því greintað lögmaður Önnu Kristínar
hefði sent sáttaboð og gefið tiltekinn
frest til að því yrði svarað, en ekkert
svar hefði borist. Af þeim sökum
væri nú í undirbúningi að stefna for-
sætisráðherra.
Sáttahugur Jóhönnu hefur falist íþví að gera ekkert til að leysa
málið og stuðla að átökum. Orðið
friðarspillir er þá varla fjarri lagi.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Friðarspillir að
„leita sátta“
STAKSTEINAR
Anna Kristín
Ólafsdóttir
Veður víða um heim 10.6., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 5 alskýjað
Akureyri 9 skýjað
Kirkjubæjarkl. 10 skýjað
Vestmannaeyjar 8 rigning
Nuuk 8 skýjað
Þórshöfn 11 heiðskírt
Ósló 15 skúrir
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 25 heiðskírt
Helsinki 27 heiðskírt
Lúxemborg 17 skýjað
Brussel 12 skúrir
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 15 heiðskírt
London 12 léttskýjað
París 12 skýjað
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 18 heiðskírt
Berlín 20 heiðskírt
Vín 21 skýjað
Moskva 22 heiðskírt
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 18 skýjað
Mallorca 23 léttskýjað
Róm 25 léttskýjað
Aþena 28 léttskýjað
Winnipeg 17 léttskýjað
Montreal 18 alskýjað
New York 28 heiðskírt
Chicago 16 alskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:02 23:54
ÍSAFJÖRÐUR 1:33 25:33
SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16
DJÚPIVOGUR 2:19 23:36
Guðrún Vala Elísdóttir
vala@simenntun.is
Húsið þar sem Ragney Eggertsdóttir
fæddist og ólst upp í er kallað Dalur
og því festist nafnið Eyja í Dal við
hana. Nú býr hún á Dvalarheimili
aldraðra í Borgarnesi, en þangað flutti
hún eftir lærbrot fyrir tæpum 10 ár-
um. „Það er hugsað alveg dásamlega
vel um mann hérna á dvalarheimilinu.
Alltaf er verið að skemmta fólkinu og
láta okkur líða vel. Þótt ég sé komin í
hjólastól er farið með mig út um allt,“
segir Eyja. Ragney er góð til heils-
unnar, hefur þokkalega sjón og les
bæði blöð og tímarit gleraugnalaus
„og geri grófa handavinnu eins og
þessa til dæmis,“ segir hún og sýnir
fallegan krosssaum sem verður brátt
að púða. Hins vegar segir hún að
heyrnin sé farin að dofna, en bætir við
að það gæti þó verið stillingaratriði á
heyrnartækinu.
Aðeins kynnst góðu fólki
Eins og gefur að skilja man Eyja
tímana tvenna og segir það vera mikla
dásemd að fá að lifa svona lengi. „Að
upplifa allar þessar tækniframfarir og
framfarir í læknavísindum, að sjá alla
vegina brúaða og malbikaða, það
finnst mér yndislegt að sjá.“ Hún seg-
ist hafa hlotið hefðbunda skólagöngu,
byrjaði 9 ára og var í skóla fram að
fermingu. Allt var þetta jafn skemmti-
legt og síðar var hún tvo vetur í kvöld-
skóla í Borgarnesi þar sem hún lærði
m.a. ensku og dönsku. Ekki var um
frekara nám að ræða, en Eyja missti
pabba sinn þegar hún var á tólfta ald-
ursári og Þórður bróðir hennar 8 ára,
og því þurftu þau snemma að hjálpa til
og fara til vinnu. „Til að drýgja tekj-
urnar leigði mamma út herbergi í hús-
inu okkar og þar bjuggju jafnvel þrjár
fjölskyldur samtímis. Það hafa verið
uppundir tólf til sextán manns á heim-
ilinu og því mikið fjör og glatt á
hjalla.“
Eyja segist jafnframt hafa verið
svo lánsöm að hafa aldrei kynnst öðru
en góðu fólki. „Það var samheldið fólk
í Borgarnesi, bændasamfélag og mik-
ið félagslíf. Þegar ég var að alast upp
var fyrst ekkert útvarp og ekki sjón-
varp svo að fólk var duglegt að hafa
eitthvað fyrir stafni. Það voru oft
dansleikir, hér var gott söngfólk og
góðir leikarar og með ungmenna-
félaginu voru sett upp mörg leikverk.
Ég lék þó ekki sjálf heldur hvíslaði og
minnti á. Við fengum stundum leik-
stjóra að sunnan, t.d. Gunnar Eyjólfs-
son sem leikstýrði Ævintýri á göngu-
för.“
Lykillinn kærleiksrík fjölskylda
Starfsvettvangur Eyju var við
verslunarstörf í meira en hálfa öld
þar sem hún vann hjá Versl-
unarfélagi Borgarfjarðar. Í versl-
uninni voru seldar allar hugsanlegar
vörur: álnavörur, pakkavörur, fatn-
aður og smádót, en ekkert ferskmeti
nema fyrir jólin þegar eplin og app-
elsínurnar komu. Aðspurð hvort hún
hafi verið mikil sölukona, brosir hún
og segist varla hafa starfað svo lengi í
verslun ef svo hefði ekki verið.
Um hina sígildu spurningu hver
aðferðin við að ná 100 árum sé, segir
hún hana líklegast vera þá að hún eigi
svo kærleiksríka fjölskyldu sem hafi
alltaf hugsað svo vel um hana. „Ég
bjó í mörg ár á neðri hæðinni hjá
bróður mínum og mágkonu minni
henni Sólveigu Árnadóttur. Öll börn-
in þeirra og barnabörn eru mér svo
góð og hafa sýnt mér einstaka ást og
kærleika og gera enn. Þórður bróðir
minn lést í fyrra, og núna er Sólveig
komin hingað á dvalarheimilið.“
Eyja segist aldrei hafa snert tóbak
og áfengisneysla var í algjöru lág-
marki, hún skálar aðeins á mjög há-
tíðlegum stundum. „Því miður tók ég
aldrei lýsi, sama hvernig mamma
reyndi að koma því niður í mig, en ég
vil alls ekki vera einhver siðapostuli
og segja öðrum til.“
Haldið verður upp á afmælið á
mánudaginn nk. – annan í hvítasunnu
– í sal eldri borgara á efstu hæð að
Borgarbraut 65a, í Borgarnesi, frá kl.
14:00 til 17:00.
Yndislegt að fá að lifa svona
lengi og upplifa svo margt
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Handavinna Ragney hefur þokkalega sjón og og gerir grófa handavinnu.
Ragney Eggertsdóttir í Borgarnesi fagnar aldarafmæli annan í hvítasunnu
Aldarafmæli
» Ragney Eggertsdóttir fædd-
ist hinn 13. júní fyrir 100 árum
í Borgarnesi.
» Foreldrar hennar voru Egg-
ert Eiríksson skósmiður í Borg-
arnesi (f. 11.6. 1868, d. 17.6.
1923, 55 ára) og Margrét Jóns-
dóttir (f. 4.7. 1889, d. 4.11.
1963, 74 ára).
» Hún átti einn bróður sem
hét Þórður Jóhann Eggertsson
(f. 12.8. 1915, d. 19.1. 2010, 94
ára).