Morgunblaðið - 18.06.2011, Blaðsíða 1
MStoðir fjárlaga veikjast »22
L A U G A R D A G U R 1 8. J Ú N Í 2 0 1 1
Stofnað 1913 141. tölublað 99. árgangur
www.ms.is
Með D-vítamíni sem hjálpar
þér að vinna kalkið úr mjólkinni.
Meira fjör með Fjörmjólk! Nú í nýjum
umbúðum
með
skrúftapp
a
LANDSMÓT
HESTAMANNA
24 SÍÐNA AUKABLAÐ FYLGIR BLAÐINU Í DAG
Morgunblaðið/Kristinn
Hópar frá Austur-Evrópu, búsett-
ir hér á landi, hafa náð aukinni
hlutdeild í sölu og dreifingu am-
fetamíns, auk þess sem talið er að
þeir standi að framleiðslu efnis-
isins. „Það er minna af amfetamíni
flutt inn og meira framleitt. Þeir
sem hafa kunnáttuna, getuna og
tengslin við að fá þau efni sem þarf
til framleiðslunnar erlendis frá, það
eru Austur-Evrópubúar,“ segir
Bjarni Ólafur Magnússon lögreglu-
fulltrúi sem stýrir aðgerðahópi lög-
reglu höfuðborgarsvæðisins gegn
sölu og dreifingu vímuefna.
Að sögn Bjarna er áberandi
hversu miklu minna af kókaíni hef-
ur fundist á undanförnum misser-
um við húsleitir og telur hann svo-
nefnda helgarneytendur vímuefna
hafa verið að færa sig úr kókaíni og
yfir í amfetamín. Spurður hvort
það sé verra fyrir lögregluna telur
Bjarni það ekki endilega vera. »26
Aukin hlutdeild
hópa frá A-Evrópu
á vímuefnamarkaði
Alvarleg staða
» Útgjöld velferðarráðuneyt-
isins stefna í að fara 3 millj-
arða fram yfir heimildir í ár.
» Staðan vegna umfram-
útgjalda sjúkratrygginga er
sögð vera „alvarleg“.
» Áætlanir gera ráð fyrir um
35 milljarða halla á fjárlögum.
Örn Arnarson
Hjalti Geir Erlendsson
Útgjöld velferðarráðuneytisins
stefna í að fara þrjá milljarða fram
yfir fjárheimildir í ár. Þetta kemur
fram í minnisblaði fjármálaráðu-
neytisins til fjárlaganefndar Alþing-
is og ríkisstjórnarinnar um stöðuna í
ríkisfjármálum eftir fyrstu þrjá
mánuði ársins. Fram kemur í minn-
isblaðinu að staðan vegna umfram-
útgjalda vegna sjúkratrygginga sé
„alvarleg.“ Útgjöld vegna þeirra
stefna í að verða tveimur milljörðum
meiri en fjárlög gera ráð fyrir.
Auk þessa þarf ríkið að taka á sig
tugmilljarða kostnað á þessu ári sem
ekki er gert ráð fyrir í fjárlögum,
m.a. vegna kjarasamninga, meðgjaf-
ar vegna yfirtöku Landsbankans á
SpKef, endurfjármögnunar Íbúða-
lánsjóðs og vegna annarra nýsam-
þykktra frumvarpa. Ljóst er að til
verulegs niðurskurðar þarf að koma
eigi markmið fjárlaga um 35 millj-
arða króna halla að nást. Það sama
gildir um langtímamarkmið efna-
Milljarða framúrkeyrsla
Velferðarráðuneytið milljarða umfram fjárheimildir fyrstu þrjá mánuðina
Þingmaður í fjárlaganefnd segir stefnuleysi í ríkisfjármálum vera algjört
hagsáætlunarinnar um að afgangur
verði á fjárlögum árið 2013.
Kristján Þór Júlíusson, þingmað-
ur í fjárlaganefnd, segir stefnuleysið
í ríkisfjármálum algjört og áætlun
stjórnvalda til ársins 2013 sé öll að
ganga úr skorðum. „Höfuðvandinn
er að það er enginn hagvöxtur í takt
við þær útgjaldaheimildir sem verið
er að gera,“ segir Kristján. „Það er
lausungin í ríkisfjármálum sem mað-
ur sér verða meiri og meiri.“
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Læknir Jónína, kandídat í læknis-
fræði, ásamt dóttur sinni.
Jónína Ingólfsdóttir fagnaði kandí-
datsprófi í læknisfræði síðastliðinn
laugardag. Er hún var nýorðin 13 ára
greindist Jónína með stórt krabba-
meinsæxli í nefkoki sem jafnframt
hafði dreift sér til eitla í hálsi hennar.
Við tók löng og erfið lyfjameðferð
sem varði mánuðum saman. Sá tími
reyndist Jónínu mjög erfiður og sam-
hliða veikindum sínum glímdi hún við
miklar aukaverkanir sökum meðferð-
arinnar. Jónína segir fjölskyldu sína
hafa staðið þétt að baki sér og reynst
stoð sín og stytta í baráttunni við
krabbameinið. Jónína segist löngum
hafa haft mikinn áhuga á námi í
læknavísindum. Ári áður en hún
greindist var hún þegar farin að leiða
hugann að slíku námi og er hún
gekkst undir krabbameinsmeðferð
sína sýndi hún starfi lækna sinna
mikinn áhuga.
Jónína og sambýlismaður hennar,
Jósep Þórhallsson, eignuðust dóttur í
nóvembermánuði síðastliðnum og
áformar hún að njóta sumarsins með
fjölskyldu sinni eftir langt nám lækn-
isfræðinnar. »16
Björt framtíð framundan
Greindist með alvarlegt krabbamein snemma á lífsleiðinni
Jón Sigurðsson forseti var í aðalhlutverki á
Hrafnseyrarhátíð á þjóðhátíðardaginn. Nokkrir
virðulegir Arnfirðingar voru í hópi gesta og lífg-
uðu upp á samkomuna með því að mæta í gervi
sjálfstæðishetjunnar.
Hér eru þeir Gústaf Jónsson, Pétur Bjarnason
og Jens Valdimarsson með Fjallkonu Vestfjarða,
Ásu Dóru Finnbogadóttur, sem einnig er frá
Bíldudal í Arnarfirði. »12
Jónar Sigurðssynir mættu á Hrafnseyri
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Einar K. Guð-
finnsson þing-
maður leggur til
að Jón Bjarnason
sjávarútvegs-
ráðherra rífi
strax frumvarp
sitt um breyt-
ingar á fisk-
veiðistjórn. Sam-
kvæmt niður-
stöðu sérfræðinefndar mun
frumvarpið hafa veruleg og nei-
kvæð áhrif á starfandi sjávar-
útvegsfyrirtæki og erfitt verði fyrir
fyrirtækin að halda áfram rekstri.
Ólína Þorvarðardóttir, varafor-
maður sjávarútvegsnefndar, segir
að álit sérfræðinganna verði skoð-
að vel. »4
Lagt til að ráðherra
rífi frumvarpið
Jón Bjarnason