Morgunblaðið - 20.06.2011, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 0. J Ú N Í 2 0 1 1
Stofnað 1913 142. tölublað 99. árgangur
SELJA SJÁVAR-
RÉTTI VIÐ
HÖFNINA
GLAUMUR
OG GLEÐI
17. JÚNÍ
HAMINGJA,
HEILSA OG
HOLLUSTA
LÍFLEGUR MIÐBÆR 26-27 KARMA KEFLAVÍK 10ATHAFNAMENN 9
Morgunblaðið/Eggert
Á Alþingi Pétur H. Blöndal þingmaður fór
663 sinnum í ræðustól.
Pétur H. Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, var ræðu-
kóngur á nýafstöðnu Alþingi. Þetta
er fjórða þingið í röð sem Pétur
hampar titlinum. Hann talaði sam-
tals í 1.684 mínútur eða 28 klst.,
flutti 159 þingræður og gerði 504
athugasemdir við ræður annarra.
Næstur honum kemur flokksbróðir
hans, Ásbjörn Óttarsson, sem talaði
samtals í 1.360 mínútur eða í yfir 22
klst. Sex sjálfstæðismenn eru lista
yfir þá tíu þingmenn og ráðherra
sem töluðu mest á nýliðnu þingi.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra talaði mest stjórn-
arliða og vermir 5. sætið. »6
Pétur ræðukóngur
Alþingis í fjórða
skiptið í röð
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fundurinn var jafn nálægt því og
komist verður að snúast um ekki
neitt. Þá er atburðarásin nú ekki það
sem menn höfðu í huga þegar skrifað
var undir kjarasamningana 5. maí.
Hvort þetta þýðir að samningar eru í
upplausn verða fundir næstu daga að
skera úr um,“ segir Vilhjálmur Eg-
ilsson, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, í samtali við Morgun-
blaðið.
Fulltrúar samtaka vinnumarkaðar
funduðu með innanríkisráðherra í
gær um stöðuna í kjaramálum, eink-
anlega viljayfirlýsingu ríkisins sem
gefin var út í tengslum við samninga-
gerðina í vor um að fara af stað með
mannaflsfrekar framkvæmdir til að
skapa hagvöxt. Horft hefur verið til
þess að fjármagna þær með sérstök-
um hætti, svo sem einkaframkvæmd
eða veggjöldum, en nú er afstaða
ráðherrans sú að framkvæma ekki
nema með mörkuðum framlögum á
fjárlögum hvers árs.
„Við finnum að á brattann er að
sækja,“ segir Ólafur Darri Andra-
son, hagfræðingur ASÍ. „Það er
sameiginlegt takmark að auka fjár-
festingar svo auka megi hagvöxt. Ef
vegaframkvæmdir fara ekki af stað
þarf að finna eitthvað annað.“
Kjarasamningarnir eru til þriggja
ára en gilda fram í janúar á næsta ári
haldist forsendur þeirra ekki við
endurskoðun sem lýkur á morgun,
þriðjudag. Fjárfestingar og fram-
kvæmdir eru hluti af þeim pakka.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra segir fundinn í gær hafa
verið hreinskiptinn og gagnlegan.
Hugmyndir voru uppi um að fjár-
magna vegaframkvæmdirnar með
vegtollum en sú hugmynd hefur
mætt andstöðu og í undirskriftasöfn-
un sem efnt var til lýsti um fjórð-
ungur atkvæðisbærra manna sig
mótfallinn veggjöldum. Segir hann
að taka þurfi tilliti til þeirra. Ög-
mundur fjallar um hvaða leiðir eru
færar við framkvæmdir í vegagerð í
aðsendri grein í Morgunblaðinu í
dag. »17
Upplausn ef ekki finnst leið
„Jafn nálægt því og komist verður að snúast um ekki neitt,“ segir framkvæmda-
stjóri SA um fund með ráðherra „Á brattann er að sækja,“ segir hagfræðingur ASÍ
Morgunblaðið /Ómar
Sigling Skiptar skoðanir eru um
kvótafrumvarpið meðal manna.
„Niðurstaðan er þannig að menn
þurfa ekki að fara af hjörunum,“
segir Steingrímur J. Sigfússon,
fjármálaráðherra og formaður VG.
Hagfræðingar gagnrýna harðlega
frumvarp sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra um breytingar á lög-
um um stjórn fiskveiða, sem nú
liggur fyrir Alþingi. Telja þeir að
nái hugmyndirnar fram að ganga
muni draga úr arðsemi í sjávar-
útvegi, nýliðun verði erfiðari auk
þess sem bann við veðsetningu afla
geri bönkum erfitt fyrir. Strand-
veiðar fá falleinkunn, eru sagðar
leiða til kapphlaups um afla, stuðla
að brottkasti og draga úr verðmæti.
Björn Valur Gíslason, þingmaður
VG, segir mikilvægt að horfa til
byggðasjónarmiða en ekki bara
beita hagrænni mælistiku í fiski-
veiðistjórnunarmálum.
Þingmenn stjórnarandstöðu í
sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd
Alþingis hafa óskað eftir fundi í
nefndinni vegna álits hagfræðing-
anna. Einar Kr. Guðfinnsson sem
situr í nefndinni segir skýrsluna
rothögg á stefnu stjórnarflokkanna
í sjávarútvegsmálum. »2, 14
Menn fari ekki af hjörum
Ekki nóg að beita hagrænni mælistiku, segir Björn Valur
Börn hlupu kappsfull að hætti víkinga á hinni ár-
legu víkingahátíð sem fram fór í Hafnarfirði um
helgina.
Fjöldi erlendra víkinga sótti hátíðina heim,
m.a. stór hópur Færeyinga, auk þess sem einn
besti handverksmaður Grænlands lét sjá sig.
Fjölbreytt dagskrá var í boði, t.a.m. bardaga-
sýningar, bogfimikeppnir, fornir leikir og dans-
leikir og skemmtu allir sér hið besta.
Vaskir víkingar vopnaðir sverðum og skjöldum
Morgunblaðið/Ernir
Tillaga
Hafrannsókna-
stofnunar um
aflahámark á
grásleppu þýðir
að veiðar verði
skertar um ná-
lægt 30% frá
meðalvertíð síð-
ustu ára, skv.
upplýsingum frá
Landssambandi
smábátaeigenda. Grásleppuveið-
arnar eru nú bundnar leyfum.
Leyfin eru nú um 340 talsins og
hefur hvert leyfi verið selt á allt
frá 700 þúsund krónum fyrir
minnstu leyfin og sveiflast upp í
þrjár milljónir fyrir leyfi fyrir
stærstu bátana. »6
Um 30% skerðing
grásleppuveiða
340 leyfi eru til
grásleppuveiða.
Bandaríski geðlæknirinn og vís-
indamaðurinn dr. Daniel Fisher
er staddur hér á landi og mun
halda erindi á málþingi sem fer
fram í Háskóla Íslands við
Stakkahlíð. Fisher boðar hug-
arfarsbreytingu í tengslum við
meðferð á geðrænum vanda-
málum. Lengi hafi of mikil
áhersla verið lögð á vísindalega
þekkingu og efnafræði heilans í
stað mannlegra þátta. Fisher nýt-
ur mikillar virðingar í sínu fagi
og var t.a.m. skipaður í nefnd
Hvíta hússins um geðheilbrigð-
ismál. Hann hefur sjálfur barist
við geðklofa og
var lagður inn á
geðsjúkrahús á
sjöunda ára-
tugnum. Fisher
er því einn
fárra geðlækna
sem talar op-
inberlega um
eigin veikindi.
En í kjölfar
þeirra helgaði
hann sig baráttunni fyrir eyðingu
ranghugmyndanna um að ekki
væri hægt að ná sér af geðrösk-
unum. »4
Ranghugmyndum um
geðræn vandamál eytt
Dr. Daniel
Fisher