Morgunblaðið - 22.06.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.06.2011, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 2. J Ú N Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  144. tölublað  99. árgangur  SKEMMTILEGT GRÚSK AÐ SAFNA NÝJUM NÖFNUM FÖGNUÐU ALÞJÓÐLEGUM DEGI HJÓLABRETTISINS FÆSTIR VARAN- LEGA VEIKIR ALLS KYNS BRELLUR 31GEÐSJÚKDÓMAR LÆKNANLEGIR 18 NÖFN ÍSLENDINGA ENDURÚTGEFIN 10 Fréttaskýring eftir Unu Sighvatsdóttur  Jón Magnússon hæstaréttar- lögmaður hefur stefnt Persónu- vernd fyrir að heimila Seðla- bankanum að fylgjast með og safna erlendum kreditkorta- upplýsingum. Jón segir ákvörðun Persónuverndar brjóta í bága við stjórnarskrána. Jafnframt segir hann skipun stjórnar Per- sónuverndar stangast á við þrí- skiptingu ríkisvaldsins. »14 Lögmaður stefnir Persónuvernd Jón Magnússon Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Skýrsla Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, um Ísland staðfestir mikilvægi þess að arð- semi íslensks sjávarútvegs sé sett í öndvegi, að mati Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráð- herra. Í henni er lagt til að kvótakerfinu verði ekki breytt í grundvallaratr- iðum, því slíkar breyt- ingar stefni arðsemi og hagkvæmni kerfisins í hættu. Hins vegar sé hægt að fara þá leið að hækka auðlindagjald til að slá á gagnrýni á kerf- ið. „Við þurfum að tryggja með öðrum hætti að greinin skili til samfélagsins eðlilegum arði í formi gjalda. Aðal- áherslan verður að vera á arðsemina. Við viljum öll tryggja eignarhald þjóðarinnar á auðlindinni, en við verðum að setja okkur raunhæf markmið í því efni til að tapa ekki arðseminni. Ef við töpum henni töpum við öll,“ segir Árni. Bæta við lögfræði og skynsemi Formaður LÍÚ, Adolf Guðmundsson, segist mjög ánægður með það sem fram kemur í skýrslu OECD. „Við erum mjög ánægðir að fá þarna aðra staðfest- ingu á að það sem við höfum haldið fram sé rétt. Bæði hagfræðiskýrslan og nú skýrsla OECD stað- festa okkar rök og röksemdafærslu í málinu.“ Adolf segist vona að stóra kvótafrumvarpið verði sett til hliðar og annað samið með hagfræðiskýrsluna til grundvallar. „Það má bæta við það smá lögfræði og ennþá meiri skynsemi, en viðbrögð formanns og varaformanns sjávarútvegsnefndar Alþingis vekja svo sem ekki mikla bjartsýni hjá manni. Mikilvægt er að verja hagkvæmni greinarinnar, en ef það er markmið stjórnarflokkanna að valda skemmdum á kerfinu þá er það mjög alvarlegur hlutur.“ MSegir að vernda verði hagkvæmni »16 Arðsemi í öndvegi  Efnahagsráðherra seg- ir að setja verði raunhæf markmið við veiðistjórnun Markmið » OECD segir að styrkja þurfi pen- ingamálastjórnun Seðlabankans. » Nauðsynlegt sé til lengri tíma að af- nema gjaldeyris- höft. Það var líflegt á Skjálfandaflóa í gær þegar skip Norðursiglingar, Náttfari og skonnortan Hildur, sigldu um flóann með ferðamenn í hvalaskoðun. Steypireyður, stærsta skepna jarðarinnar, lék sér meðal annars í sjónum sæ- farendum til mikillar gleði og ekki síður ljós- myndaranum sem sveimaði yfir í flugvél. Í fyrrakvöld var einstakt líf á Skjálfanda og þá bar fyrir augu ferðamanna sýningu steypi- reyðar, langreyðar, hnúfubaks, hrefnu og höfr- ungs. Ferðamannatíminn er kominn vel í gang á Húsavík og meðal gesta síðustu daga hefur verið Mark Carwardine, sem meðal annars hef- ur gert náttúrulífsþætti fyrir BBC og kom að upphafi hvalaskoðunar Norðursiglingar frá Húsavík árið 1995. Hvalir léku listir sínar á Skjálfanda Ljósmynd/Heimir Harðarson  Gamalt og niðurnítt fiskvinnslu- hús í Grundarfirði hefur verið gert upp sem farfuglaheimili. Það er nýj- asta viðbótin í rekstri Johnny Cram- er sem byggt hefur upp rekstur á þessu sviði undanfarin ár. Johnny sér mikla möguleika í ferðaþjónustu í Grundarfirði og vinnur með öðrum að þróun afþrey- ingar fyrir ferðafólk. Það segir hann lykilinn að því að erlendir ferða- menn dvelji lengur á staðnum. »12 Farfuglaheimili í gamalli fiskverkun Morgunblaðið/Þorkell Skapti Hallgrímsson Kristel Finnbogadóttir Svo fáir læknar starfa á sumum deildum Sjúkrahússins á Akureyri (FSA) að sjúklingum kann að vera ógnað, að því er segir í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar. Forstjóri FSA segir þau atriði órökstudd og fagnar úttekt á starfseminni. „Það er auð- vitað lykilatriði að öryggi sjúklinga sé tryggt. Ég dreg þá ályktun af skýrslunni að Ríkisendurskoðun telji að of fáir læknar séu í hverri sérgrein og það geti valdið skorti á öryggi, en við því er bara eitt svar: Við leggjum fólk ekki inn á spít- alann nema öryggi þess sé tryggt. Getum við það ekki eru sjúklingar sendir til Reykjavíkur,“ segir Þor- valdur Ingvarsson, forstjóri FSA. „Það er ekkert launungarmál að við vildum vera betur mannaðir en það er ekkert nýtt; hér hefur vantað lækna árum saman – svo lengi sem ég man eftir mér,“ segir Þorvaldur og hann kennir ekki einungis fjár- skorti um. FSA hafi fjármagn til að ráða 3-4 sérfræðinga sem hann telur vanta, en enginn fáist til starfa og það sé því miður þekkt víðar. Land- spítalinn og aðrar stofnanir glími við sama vandamál. Hann nefnir að tveir lyflæknar hafi hætt á sama tíma fyrir tveimur árum en annar komi til starfa á ný í haust. „Allar vaktir eru mannaðar en vissulega hafa menn þurft að vinna fleiri vakt- ir á undanförnum árum en æskilegt er, og við höfum áhyggjur af því.“ Umrædd skýrsla er m.a. byggð á viðtölum við starfsfólk, en ekki er tekið fram um hvaða deildir er að ræða og engin dæmi eru nefnd. „Það er vandinn, að orð Ríkisend- urskoðunar eru órökstudd. Við deil- um áhyggjum fólks að því leyti að við vildum hafa fleiri starfsmenn en ég fagna því að við þessari órök- studdu fullyrðingu um að öryggi sjúklinga sé ekki tryggt, verði brugðist með því að landlæknisemb- ættið taki út öryggismálin,“ segir Þorvaldur. Áhyggjur af læknaskorti Geir Gunnlaugsson landlæknir segir FSA reka öfluga og fjöl- breytta þjónustu sem krefjist sér- þekkingar á ákveðnum fagsviðum. Samtímis sé spítalinn í samkeppni um vinnuafl við höfuðborgarsvæðið. „Þetta er erfið staða sem ég treysti þeim til að vinna úr. Við höfum ekki fengið neinar kvartanir, tilkynn- ingar um mistök eða ákærur vegna þessa,“ segir Geir um skýrslu Ríkisendurskoðunar. Hann hefur hins vegar almennt áhyggjur af læknaskorti hér á landi. „Ég veit ekki hvenær komið er að mörkum sem segja hingað og ekki lengra en það er mikilvægt að við sem samfélag veltum því fyrir okk- ur,“ segir Geir. »9 „Hér hefur vantað lækna árum saman“  Ríkisendurskoðun telur að sjúklingum á FSA kunni að vera ógnað  Órökstutt, segir forstjórinn  Boðun verkfalls hjá Klafa, sem sér um upp- og útskipun á Grund- artangasvæðinu, var samþykkt í atkvæðagreiðslu með öllum greiddum atkvæðum. Verkfallið á að hefjast 5. júlí hafi ekki samist fyrir þann tíma. Fram kemur á heimasíðu Verka- lýðsfélags Akraness að verkfallið geti haft mjög alvarlegar afleið- ingar í för með sér fyrir Elkem Ís- land. Verkfall gæti truflað starfsemi Elkem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.