Morgunblaðið - 11.07.2011, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2011
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
1:0 25. Rafn Andri tók horn-spyrnu frá vinstri og sendi
boltann á fjærstöng þar sem Kári
Ársælsson stökk hæst og skallaði
boltann af miklum krafti í markið.
2:0 41. Olgeir tók við-stöðulaust skot úr víta-
teigsboganum sem Guðmundur
Kristjánsson stýrði í hægra hornið
en hann var staðsettur rétt utan
markteigsins.
2:1 45. Sveinn Elías tók boltanná lofti hægra megin í vítat-
eignum og knötturinn virtist vera á
leiðinni framhjá vinstri markstöng-
inni en þá birtist Dávid Disztl og
skoraði nokkuð auðveldlega. Nokkr-
um sekúndum síðar var flautað til
leikhlés.
3:1 55. Rafn Andri sendi góðafyrirgjöf frá hægri á fjær-
stöngina þar sem Dylan Macallister
skallaði boltann í netið.
4:1 63. Rafn Andri tók horn-spyrnu frá hægri og sendi á
fjærstöng þar sem Dylan skallaði
boltann niður á Kristin Steindórsson
og hann skoraði af stuttu færi enn
eitt markið sitt á Kópavogsvelli.
I Gul spjöld:Kári Ársælsson (Breiðabliki)
15. (brot).
I Rauð spjöld: Enginn.
MMM
Enginn.
MM
Kristinn Steindórsson (Breiðabliki)
M
Ingvar Þór Kale (Breiðabliki)
Finnur O. Margeirsson (Breiðabl.)
Guðmundur Kristjánsson (Brei.)
Rafn Andri Haraldsson (Breiðabl.)
Dylan Macallister (Breiðabliki)
Srdjan Rajkovic (Þór)
Ármann Pétur Ævarsson (Þór)
Sveinn Elías Jónsson (Þór)
Kristinn Steindórsson skoraði sitt
níunda mark á Kópavogsvelli í sum-
ar og ljóst að hann kann vel við sig á
vinnustaðnum. Kristinn eyddi
reyndar meiri tíma en 90 mínútum á
vellinum á laugardaginn en hann
skokkaði allt leikhléið úti á velli á
meðan að aðrir leikmenn ræddu
málin í búningsklefunum. Þetta
gerði Kristinn til að stífna ekki upp í
löppunum, en hann á við einhver
meiðsli að stríða.
James Adcock, 27 ára Englend-
ingur frá Nottingham, var annar að-
stoðardómaranna á leiknum á laug-
ardag. Hann
stóð sig með
prýði.
Þórsarar
gátu ekki teflt
fram fram-
herjanum Jó-
hanni Helga
Hannessyni
né heldur
bakverðinum
Inga Frey
Hilmarssyni
því báðir þurftu að taka út leikbann
vegna fjögurra gulra spjalda.
Leikurinn fór fram kl. 16 á laug-
ardaginn og ljóst að sá leiktími hent-
ar afar illa þegar um ferðalagahelgi
er að ræða eins og þá sem nú er ný-
liðin. Aðeins mættu 615 áhorfendur
á leikinn og þeir létu ansi lítið í sér
heyra lungann úr leiknum. Tíma-
setningin helgast að einhverju leyti
af því að Blikar leika gegn Rosen-
borg í Noregi í Meistaradeildinni á
miðvikudaginn.
Á mbl.is er að finna myndband-
sviðtöl við Atla Sigurjónsson úr Þór
og Kára Ársælsson úr Breiðabliki.
Þetta gerðist á
Kópavogsvelli
Jóhann Helgi
Hannesson
Í KÓPAVOGI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Óhætt er að segja að vendipunktur
leiks Breiðabliks og Þórs í Pepsi-
deild karla í knattspyrnu á laugar-
dag hafi verið á 25. mínútu. Fyrirliði
Blika, Kári Ársælsson, kom Íslands-
meisturunum þá á bragðið með hör-
kuskallamarki, rétt eftir að hann
hafði verið viðriðinn atvik sem Þórs-
arar eru líklega enn að svekkja sig á
þar sem Kári hefði hugsanlega átt
að fá rauða spjaldið.
Atvikinu má lýsa þannig að
Sveinn Elías Jónsson, kantmaðurinn
óþreytandi í liði gestanna, elti
stungusendingu Atla Sigurjóns-
sonar í gegnum miðja vörn Blika og
virtist vera sloppinn einn gegn
markverði þegar hann féll um fætur
Kára sem renndi sér á eftir bolt-
anum. Mín fyrstu viðbrögð voru að
um brot og þar með rautt spjald
væri að ræða, sem hefði augljóslega
haft mikil áhrif á leikinn. Lýsing
Kára á atvikinu rennir ákveðnum
stoðum undir að um brot hafi verið
að ræða en hann sagðist við Morg-
unblaðið ekki hafa snert boltann, en
að Sveinn Elías hefði verið klaufi að
falla við. Fáum ef nokkrum á Íslandi
er betur treystandi til að dæma um
þetta atvik en Kristni Jakobssyni
sem var dómari í leiknum, en hann
lét leikinn halda áfram. Ég tel hins
vegar að það hafi verið mistök.
Það var samt í góðum takti við
gang leiksins að Blikar kæmust í 2:0
en Þórsarar minnkuðu muninn á
lokaandartökum fyrri hálfleiksins.
Þeir óðu svo í færum í byrjun seinni
hálfleiks og ljóst að varnarleikur
meistaranna, sem hafa fengið á sig
mark í öllum leikjum sínum í sumar,
er enn mikill höfuðverkur. Það getur
hins vegar verið unun að fylgjast
með sóknarleik þeirra og sér í lagi
töktum Kristins Steindórssonar.
Hann skoraði enn eitt markið á
heimavelli og það er einnig fagn-
aðarefni fyrir Blika að Ástralinn
Dylan Macallister er farinn að skila
mörkum. Hann skoraði annan leik-
inn í röð, og gat hæglega gert fleiri.
Guðmundur Kristjánsson skoraði
einnig annan leikinn í röð og Rafn
Andri Haraldsson var mjög góður.
Blikar eru nú taplausir í fjórum
leikjum í röð í deildinni en þurfa að
ná góðri hrinu sigurleikja til að
blanda sér í toppslaginn. Þeir hafa
enn ekki unnið tvo leiki í röð í sumar.
Nýliðar Þórs voru vel meðvitaðir um
það fyrir Íslandsmótið að þeir yrðu í
fallbaráttu. Eftir taplausan júnímán-
uð hafa þeir nú tapað tveimur leikj-
um í röð með þriggja marka mun og
eru nærri fallsæti. Það er þó engin
ástæða til örvæntingar ef liðið fer að
nýta færin sín aðeins betur en það
gerði á Kópavogsvelli.
Morgunblaðið/Golli
Einbeittir Kristinn Steindórsson reynir að skýla boltanum frá Atla Sigurjónssyni en Srdjan Rajkovic fylgist einbeittur með í markinu.
Slapp við rautt og skoraði
Fyrirliðinn kom Íslandsmeisturunum á bragðið gegn Þór eftir að hafa sloppið
við rauða spjaldið Ástralinn kominn í gang Enn fá Blikar á sig mark
Kópavogsvöllur, Pepsi-deild karla,
10. umferð, laugardag 9. júní 2011.
Skilyrði: Hæg gola og sólskin. Völl-
urinn flottur.
Skot: Breiðablik 22 (13) – Þór 13 (5).
Horn: Breiðablik 8 – Þór 4.
Lið Breiðabliks: (4-3-3) Mark: Ingv-
ar Kale. Vörn: Jökull I. Elísabetarson,
Kári Ársælsson, Elfar F. Helgason,
Arnór S. Aðalsteinsson. Miðja: Guð-
mundur Kristjánsson, Olgeir Sig-
urgeirsson (Arnar M. Björgvinsson
67.), Finnur O. Margeirsson. Sókn:
Rafn A. Haraldsson, Dylan Macallis-
ter (Viktor U. Illugason 84.), Kristinn
Steindórsson (Andri Yeoman 78.).
Lið Þórs: (4-3-3) Mark: Srdjan
Rajkovic. Vörn: Gísli Páll Helgason,
Þorsteinn Ingason, Janez Vrenko
(Pétur H. Kristjánsson 87.), Kristján
Páll Hannesson (Baldvin Ólafsson
70.). Miðja: Ármann P. Ævarsson,
Aleksandar Linta, Gunnar Már Guð-
mundsson. Sókn: Sveinn Elías Jóns-
son, David Disztl (Sigurður M. Krist-
jánsson 76.), Atli Sigurjónsson.
Dómari: Kristinn Jakobsson – 6.
Áhorfendur: 615.
Breiðablik – Þór 4:1
Skannaðu kóðann
til að sjá viðtal við
Kára Ársælsson.