Blað stuðningsmanna Gunnars Thoroddsens í Hafnarfirði - 01.06.1968, Blaðsíða 1

Blað stuðningsmanna Gunnars Thoroddsens í Hafnarfirði - 01.06.1968, Blaðsíða 1
BLAÐ / & ) STUÐNINGSMANNA GUNNARS THORODDSENS í HAFNARFIRÐI Glœsilegur kjósendafundur í Bœjarbíó Stuðningsmenn Gunnars Thoroddsens samtaka um kröftuga og markvissa loka- baróttu fyrir sigri í forseta- kosningunum •c»e*c*c*c*e*e*c*c*c«c*cæ*c»cíc*c*c*c*c*c*c*c* r ■** ** -lí Fundur stuðningsmanna Gunnars Thoroddsens, sem haldinn var í Bæjarbíó s.l. sunnudag var einn glæsilegasti kosningafundur, er hald- inn hefur verið í Hafnarfirði. Her- mann Guðmundsson setti fundinn með skeleggri og snjallri ræðu, er hann flutti fyrir hönd fundarboð- enda. í lok ræðu sinnar tilnefndi Hermann, Matthías Á. Mathiesen tii að taka við fundarstjórn og þau Gunnur Gunnarsdóttir og Sigurð T. Sigurðsson, sem fundarritara. Nokkru áður en fundurinn hófst var hvert sæti í húsinu setið og varð fólk að standa meðfram sætaröðum og í anddyri hússins, en þar hlýddu fundarmenn og konur á ræður og á- vörp með hjálp hátalarakerfis Fimm stuðningsmenn Gunnars Thoroddsens fluttu ávörp og ræður á fundinum; frú Guðrún Ingvarsdótt- ir, dr. phil. Vilhjálmur Skúlason, bæj- arfulltrúi, Þórður Þórðarson, fram- færslufulltrúi, Friðbjörn Hólm, kenn- ari og Eggert isaksson, bæjarfull- trúi. Málflutningur var allur hinn hóg- værasti og þótt baráttuhugur væri mikill hjá ræðumönnum, sat alvaran og mikilvægi þess að kjósa rétta manninn í æðsta embætti islenzku þjóðarinnar , í fyrirrúmi. Boðskapur þeirra var ótvíræð hæfni, reynsla og virðuleiki frambjóðanda þeirra, sem Gunnar Thoroddsen sannaði svo fundarmönnum er hann með sinni þjóðkunnu mælsku og háttprýði á- varpaði fundinn, af festu og glögg- skyggni á íslenzku þjóðlífi og þjóðar- sál. i ræðu Gunnars Thoroddsens kom í Ijós, hve létt hann á með að túlka hið rétta mat þjóðarandans á hverj- um tíma. Hann sannaði og víðsýni sitt á vandamálum þjóðarinnar og umfram allt, hve þýðingarmikið er að þjóðhöfðingi fslands sé maður, sem gerir sér fulla grein fyrir hlut- verki sáttasemjarans og virðingu þeirri, sem forseti íslands má aldrei láta sig henda að skerða, sakir van- kunnáttu eða reynsluleysi varðandi þekkingu á íslenzku þjóðlifi, stjóm- háttum og atvinnuvegum. í fundarlok, eftir að forsetaefnið hafði af þekktri lipurð og kunnug- leik svarað fyrirspurnum fundar- manna, kallaði Matthías Á. Mathie- sen, forsetaefnið og konu hans, frú Völu, fram á sviðið og fögnuðu fundarmenn þeim hjónum með lang- varandi lófataki og húrrahrópum. Matthías Á. Mathiesen, alþingismaður: Gifturík forysta verði tryggð Matthias Á. Mathiesen, alþm. Þegar við göngum að kjörborðinu og veljum okkur æðsta embættis- mann þjóðarinnar, forseta, hljótum við að gera okkur Ijósa grein fyrir ar reynslu, sem fengin er af störfum þeirra tveggja manna, sem gegnt hafa embættinu frá stofnun lýðveldis- ins. Starf forseta er tvíþætt annars vegar að koma fram, sem sameining- artákn þjóðarinnar og hins vegar að fjalla um hin mikilvægustu málefni á stjórnmálasviðinu og taka ákvarð- anir oft á tíðum á mjög örlagaríkum tímum. Það liggur í augum uppi, að við- tæk þekking á stjórnmálum og stjórn- málamönnum samfara góðri þekk- ingu og reynslu á öðrum þáttum þjóðlífsins hlýtur að gera þann mann, sem velst til forseta starfinu hæfari til þess að gegna því en ella. Án þess að kasta rýrð á annan frambjóðandann við i hönd farandi forsetakosningar, þá hefur að mínum dómi dr. Gunnar Thoroddsen, sendi- herra, með menntun sinni og störf- um öðlazt þá yfirburðar þekkingu og reynslu, sem æskilegt er að forsetinn hafi. Hann er ennfremur gæddur eig- inleikum hins áhrifaríka stjórnmála- manns hefur fágaða og prúðmann- lega framkomu og er afburða snjall og rökfastur ræðumaður. Það er skoðun mín að með því að fela þeim hjónum, frú Völu og dr. Gunnari Thoroddsen að stýra þjóðar- heimili okkar að Bessastöðum, verði bezt tryggð gifturík forysta islenzks þjóðhöfðingja og þar verði búið með þeim sóma og reisn, sem við viljum að þar rlki. Frá hinum fjölmenna fundi í Bæjarbíó. Svo sem sjá má var húsið þétt- skipað áheyrendum. Nokkrir Hafnfirðingar fluttu ávörp, og birtist ávarp dr. Vilhjálms G. Skúlasonar á baksiðu blaðsins. Í fundarlok flutti Gunnar Thoroddsen ræðu og svaraði fyrirspurnum. Gunnar Thoroddsen ávarpar fundargesti. isuhí

x

Blað stuðningsmanna Gunnars Thoroddsens í Hafnarfirði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Blað stuðningsmanna Gunnars Thoroddsens í Hafnarfirði
https://timarit.is/publication/810

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.