INNGANGUR Á síðari tímum hafa oröið miklar breytingar i íslenzku þjóðlífi, misjafnlega hraðar og með ýmsum hætti, en hafa að öílu athuguðu leitt iil nýrra lífshátta i landinu. Oft er sagt, að þr miði i þroska- átt, þetta séu framfarir, en framfarir eru vinsælt orð og mörgum munntamt. Ekki eru allir jafnbjartsýnir, enda virðist stundum á- stæða til að efast um sannleiksgildi þessa pólitiska töfraorðs í þróun síðustu ára. En allir hljóta að vera á einu máli að breytingar hafi hér orðið bði örar og gagngerar, og þykir hlýða að benda á eina sér- staklega: við erum ekki lengur einangruð þjóð. Við munum hvernig staða Islands i heiminum hefur sifellt verið að breytast. Hin norrna víkinganýlenda, sem hér var stofnuð á mið- öldum Evrópu, stóð framan af í allnánum tengslum við fyrri heim- kynni sín, Norðurlönd og Bretlandseyjar. íslendingar voru um skeið allra þjóða víðförlastir. En á þessu varð smátt og smátt nokkur breyting, með minnkandi gengi innan lands fækkaði ferðum Islend- inga til annarra landa, þeir urðu upp á aðra komnir með flutninga til og frá landinu. Á dögum hinnar dönsku einokunar voru þeir orðnir afskekkt smáþjóð. Þeir fáu útlendingar, sem vissu um tilvist landsins, litu jafnan á það sem skritið forngripasafn norður i hafi, þar sem fundust gömul handrit og bkur, sóðalegt fólk, skreið og prjónles. En þetta fólk átti eftir að hrista af sér bönd einangrunar- unar og ófrelsis. Það hélt tryggð við tungu sína og menningarerfðir, hélt áfram að vera Islendingar. Upp úr þessum jarðvegi spratt ís- lenzk þjóðerniskennd, aflvakinn í sjálfstðisbaráttunni gegn dönsk- um valdhöfum. íslenzkir menntamenn á nitjándu öld, forvígis- menn i baráttunni, fylgdust með þjóðernisvakningunni í Evrópu og gengu á lagið. Fyrir þrotlausa baráttu rak hver sigurinn annan, 187If, 1904, 1918, 19^4- Þá var þróun mála i álfunni okkur í vil, en hún átti eftir að sýna okkur aðrar hliðar: hagkreppur og styrj- aldir. Okkur ætti að vera í fersku minni hlutur okkar í síðustu heimsstyrjöld, hernám Breta, vernd Bandaríkjamanna, brottflutn- ingur herja að loknu striði. Keflavíkursamningur, Atlantshafs- TlMARITIÐ VAKI