Skólinn í Óðinsskógi KURT ZIER 00» Suður í Þýzkalandi, ekki fjarri forn- frægu háskólaborginni og menntasetr- inu Heidelberg og í austurjaðri víðáttu- mikillar Rínarsléttunnar eru skógi gró- in hæðadrög, er hlotið hafa nafnið Oden- wald og nafnið auðfært til íslenzks máls: Óðinsskógur, enda vettvangur Niflungasögu. Hins vegar Rínarfljóts, tuttugu og fimm kílómetrum vestar, er Worms, setur Niflungakonunga og borg Lúters. Enn eru þar önnur nöfn er ekki ó- kunnuglegan hljóm hafa í íslenzkum eyrum: Hraðlestin er flytur gestinn frá Frankfurt fer um Benzheim, að vísu ekki kennd við Fjalla-Bensa, heldur Benzo biskup, er hér átti bú forðum. Og síðan skal stigið af lestinni í Heppen- heim, ef til skógar skal, og er sá kennd- ur við Happo biskup, er grundvallaði staðinn. Og mætti þá kallast Heppna- heimur til samræmis við íslenzka stað- háttu. Hér við Heppnaheim, 7 km út af norð- urlandsbrautinni miklu, er liggur sunn- an Rínardals og norður í land, er Oden- waldskólinn, eða óðinsskógarskóli í sveit settur. Fyríir hefur komið, að íslenzkir vinir mínir hafa gist hann. Og jafnvel vinir vinanna. Og það skal tekið fram þegar í upphafi máls míns, að sérhverjum gesti íslenzkum skal tekið opnum örmum. Vinir mínir íslenzkir hafa sýnt svo ríkan áhuga á starfi skólans, tekið svo mikinn þátt í lífi hans að fáum dögum liðnum frá komu þeirra, að mér er ánægja að verða við bón þeirra og segja stuttlega frá sögu og gerð skólans í Óðinsskógi. Skólinn í Óðinsskógi var stofnaður 1910 af Páli Geheeb, er var einn af leið- togum hinna nýju uppeldisviðhorfa, sem lágu til grundvallar stofnun heimavist- arskóla eða uppeldisheimila í sveitum um aldamótin síðustu. Skólinn í Óðins- skógi var stofnaður í mó.tmælaskyni við liinn borgaralega heim, er orÖinn var vafasamur og ófullnægjandi. Hann var hugsaður sem vettvangur, þar sem æsk- an gæti lifað sínu eigin viðburðaríka lífi: lífi, sem nær stæði uppruna allrar tilveru, náttúrunni, heiminum, heldur en ríkisstofnanir þess tíma og einkum hinir opiriberu skólar rikisins veittu tækifæri til. Undirstöður skólans eru því í dag sem fyrir f jörutíu árum: 1) Meðvituð barátta gegn yfirborðs- mennsku og afmennskun, sem tækni og efnishyggju er hætt við að hafa í för með sér, sem og einhliða skynsemis- dýrkun. (Geheeb ræddi um uppeldis- fræðilegan iðnað" ríkisskólanna). 2) Óðinsskógarskólinn berst gegn öllu kynþátta- og stéttahatri. Hann leitast við að ala upp ósvikið umburðarlyndi gagnvart þeim, er hugsa öðruvísi, fé- lagslega ábyrgðarvitund í nauð nútím- TlMARITIÐ VAKI 84