Höfundurinn ásamt stofnandanum Páli Geheeb. ans. Hann neitar allri þjóðernisstefnu, opinn hugmyndaauðgi heimsins alls. Hann er ætlaður börnum allra þjóð- erna, trúarbragða og kynþátta. Þess vegna eru kennarar skólans ávallt af ýmsum þjóðernum. 3) Eitt uppeldislegt grundvallarsjón- armið skólans er sameiginlegt uppeldi beggja kynja. Drengir og stúlkur lifa saman í f jölskyldum" átta til tíu barna eða ungmenna, sem kennari eða hjón úr hópi uppalendanna standa fyrir. Börn beggja kynja vinna saman í skólanum, garðinum og á verkstæðunum, í leik, dansi, leiksýningum og sameiginlegum ferðalögum. Eðlilegur og frjáls þroski æskunnar krefst sameiginlegs uppeldis. 4) Óðinsskógarskólinn er ekki kerfi, heldur uppeldisfélag, samfélag; full- orðnir sem börn og ungmenni eiga þátt í tilhögun og háttum samlífsins í skól- anum og bera á því fulla ábyrgð. Þessi grundvallarregla birtist einkum í skólafélaginu, sem er sérstaklega ætl- að uppeldi til samábyrgðar hvers ein- staklings á heildinni. Hver kennari og nemandi hefur rétt til frjálsrar ræðu í skólafélaginu um hvaðeina, sem kemur við persónulegu lífi hans eða snertir líf samfélagsins alls. Vitanlega gætu hinir fullorðnu þátt- takendur skólalífsins einfaldlega skipað fyrir um tilhögun frá degi til dags. En slíkt væri að kippa fótum undan allri viðleitni til uppeldis á ábyrgum sjálfs- forráðum. Það er ekki hægt að beita sjálfsábyrgð nema í aðstæðum lifandi veruleika. Einungis á þennan hátt: með því að svara kröfum líðandi dags, und- irbúa hátíðir, gera við húsin, vegi, tæki, aðstoða flóttamenn, veita fátækum fé- lögum eða barnmörgum fjölskyldum hjálp, taka þátt í alþjóðlegum æsku- lýðsmótum og svo framvegis, þroskast unglingar inn í lýðræðislega samfélags- háttu. Af sömu ástæðum sjá nemendurn- ir sjálfir um mikinn hluta allrar dag- legrar vinnu, taka til í herbergjunum, þvo upp eftir matinn, hreinsa ganga, en fullorðnir eru þeim til leiðbeiningar og aðstoðar. Það er regla, að eldri nem- endur hjálpi þeim yngri í næstum öllum erfiðleikum dagsins. Einkum verða stærri stúlkurnar til mjög virkrar að- stoðar, og þegar unnið er af fullri ein- lægni, sameiginlega af hinum eldri nem- endum, þá hefur það hið mesta uppeldis- gildi fyrir hina, sem yngri eru. Æskan sér s.jálf um uppeldi sitt. 5) Óðinsskógarskólanum hefur fram til þessa orðið mest ágengt í framkvæmd á umbótum í kennsluaðferðum, og má þakka það óháðri og sjálfstæðri stöðu hans gagnvart ríkinu. öll menntun verður fyrir manns eigið verk," segir Fichte. Tvær aðalreglur gilda um nám- ið: takmörkun efnisins og takmörkun námsgreinanna. Til þess að forðast sundurleita og ósamstæða fjölbreytni sex daglegra námsgreina hefur verið tekin upp sú aðferð, að fjalla í lengri tíma um sama efni, eins konar erinda- flokks-fyrirkomulag. Kennslan fyrir há- degi skiptist í þrenna tíma með mismun- andi námsefni. En námsefnið, sem f jall- TlMARITIÐ VAKI 85