börnin. Um átta leytið fá allir sér árbít saman, en eftir það á að taka til í her- bergjunum og búa um rúmin, og ljúka því íyrir kh 9. Síðan heldur kennslan áfram til hádegisverðar, um kl. 1, og að honum loknum er hvíldartími tíl kl. 3 og gengið strangt eftir því að hvíldin sé haldin. Sé veðrið verulega gott er hvíldartíminn gefinn frjáls til útidval- ar. Klukkan 3 hefjast síðdegisverkin. Hver nemandi er frjáls að kjósa sér eitt eða fleiri vinnufélög. 1 áætlun skólans eru boðin um 25 ólík starfs- eða athafna- svið. Má telja starf í hinum ýmsu verk- stæðum skólans og vinnustofum, list- rænt starf, málverk og teikning, mótun og föndur, garð- og byggingarvinnu (í fyrra byggðum við okkur sundlaug), íþróttir, kappleiki, víðavangsleiki, tón- list, Jeiklist, verklega eðlis- eða efna- fræði og svo framvegis, allt í frjálsum starfs- eða vinnufélögum. Ef til er einhver, sem ekki vill kjósa sér grein úr þessu fjölbreytta úrvali, ber honum engin skylda til þess. Hann má láta sér leiðast. Leiðindin hefjast miklu fyrr, einkum meðal yngri barna, heklur en þau hefðu búizt við, sem ekki eru hrifin af vinnunni. Blærinn yfir vinnunni og nytsemi hennar og vitræn tilhögun hafa áhrif skjótlega. En einn- ig leiðindin bera í sér skapandi kraft. Að minnsta kosti meiri en sífelld kúg- un og nauðung af hendi fullorðinna. Er síðdeginu hefur verið varið á þenn- an hátt er snæddur kvöldverður um hálf-sjö-leytið. Á kvöldin fara fram ýms- ar skemmtanir, eftir því hvaða dagur er. Einu sinni eða tvisvar vikulega kem- ur fjölskyldan saman undir forsæti fjöl- skylduföðurins. Þá er leikin tónlist, les- ið upp, leiknir leikir, eða, meðal hinna eldri, rætt og rifizt um alla skapaða hluti milli himins og jarðar. Einu sinni í viku fara fram tónleikar, hlustað á stofutónlist í túlkun nemenda og kennara. Á sunnudagskvöldum kemur skóla- félagið saman til hátíðar". Kennarar, nemendur, gestir eða einhverjir kunnir menn, sem er boðið í þessu skyni, segja frá því, sem þeir hafa lifað og reynt, tala um reynslu og vanda í starfi sínu, ræða hin miklu vandamál líðandi stund- ar, pólitísk og félagsleg, eins og þeir reyna þau í starfi sínu og lífi, eins og þau birtast þeim í verki þeirra. Kvöldhátíðin er opinn gluggi að heim- inum. Skáld og listamenn koma fram í verkum sínum. Þar eru birtar hugsanir hinna miklu hugsuða allra þjóða, verka- manna friðarins og félagslegs réttlætis, þeirra er börðust fyrir skilningi meðal þjóða. Kvöldhátíðin er vettvangur, ,,where pilgrims meet", eins og einka- ritari Gandhis sagði okkur, er hann heimsótti okkur á ferð sinni um Ev- rópu og bjó okkur með indverskri speki þeim andans vopnum, er fá varið mann gegn stríðsæsingum hinna stóru og vold- ugu . . . Á nokkrum slíkum kvöldstundum lýsti höfundur þessara orða lífi íslenzks fólks, fegurð íslenzkrar náttúru og leit- aðist við að kynna eitthvert brot af auðgí íslenzks skáldskapar og íslenzkrar sögu og sagna. Eitt sinn var spennandi kvöldstund um björgunarafrek við Látrabjarg" fyrir yngri börnin, sem oftast hafa sína eigin hátíð sér, annað skipti enn hugtækari (ef slíkt var hægt) frásögn af hvarfi íslenzkrar flugvélar og björgunarleiðangri á Vatnajökli. Þessar fáu bendingar verða að nægja til að leiða einmitt íslenzkum lesendum fyrir sjónir hver sé tilgangur þessara sunnudagskvölda: Þau eru raunveruleg- ar kvöldvökur, eins og ég lifði þær oft á Islandi. Stund til að hugsa um og TlMARITIÐ VAKI 88