RITSTJÓRAR: Gunnar Bergmann, Skecnjag. 21. Steingrím.ur Sigurðsson, Barmahlíð 49. Símar: 81248 7771 LIFogLIST TÍMARIT UM LISTIR OG MENNINGARMÁL AFGREIÐSLA: Laugaveg 18 Kemur út í byrjun hvers mánoðor. Ar- gangurinn kostar kr. 50.00. Verð ! lausa- sölu kr. 5.00. Sími 7771. I. árgangur Reykjavík, ógúst 1950 5. hefti Form myndarínnar skiptir engu máli, ef myndin er góð" Jón Stefánsson: Blóm í krús. EFNI: MYNDLIST: ,,Form myndarinnar skiptir engu máli, ef myndin er góð." (Við- tal við Jón Stefánsson, list- málara......... 3 TÓNLIST: Samvizka og selló. (Grein um Pablo Casals)......6 Bach-ættin, grein eftir Ivar Jones 7 SÖGUR: Victoría, smásaga eftir Geir Kristjánsson......9 Sakleysi, smásaga eftir Graham Greene........11 LJÓÐ: Leitin, eftir Svein Bergsveinsson 14 ÞANKAR: A. kaffihúsinu.......2 Viðtal við Jón Stefánsson, listmálara Þegar við ámálguðum við Jón Stefánssön, listmálara, að mega . ræða við hann hér í ritinu um ým- islegt, er varðar myndlist, sagði hann, að sér væri fjarri skapi að auka á deilur þar að auki væri ókleiít að gera þessu skil í stuttu máli. En við tókum þó upp þráð- inn og sveigðum talið að abstrakt- listinni, sem enn er svo á huldu, og spurðum listmálarann um sjðnar- mið hans á þeim afbrigðum listar- innar meðal íslcndinga. Hlutræn og óhlutræn list. Það hefir verið þyrlað upp svo miklu moldveðri um abstrakt-list hér á landi, að engu líkara er en sumt af þessu fólki, sem boðar þessa list', tilheyri einhverjum of- stækistrúarsöfnuði. Þetta fólk er fullt af belgingi og talar um þetta eins og alfa og ómega meira að scgja hefir trúaræsingur þessara manna gengið svo langt, að omn þeirra hefir í mín eyru óskað sér af heilum hug, að Louvre-safnið yrði brennt i því að það sé nóg búið að skaða listina. Þetta fólk el- ur í sér óskiljanlega gremju í garð þeirra manna hér, sem leyfa sér að segja opinskátt, að hin íslenzka ab- strakt-list .falli þeim ekki alls kost- ar í geð. Sú gagnrýni er fordæman- leg að því finnst , en hins veg- ar finnst mér, að allt það há- stemmda lof um abstrakt list, sem hér hefir einnig sézt á prenti, eigi engu meiri rétt á sér, því að það er sízt viturlegra né óskaðlegra en allar skammirnar. Ekki veit ég, hvort hér séu nokkrir einvaldir listdómarar" eins og Líf og List talaði um fyrir nokkru. Virtist þar m. a. vera sveigt að Jóni Þorleifs- syni. Jón Þorleifsson tel ég hins vegar vera einhvern nytsamasta mann í íslenzkum listfélagsskap. Sumt af þessu fólki notar slagorð, orð, sem það hvorki kann né skil- ur, einhvers staðar rakst ég á það á prenti, þar sem því var hald- ið fram, að öll list væri bókmennt- ir eða nánar tiltekið hárnákvæm vísindi. Þetta og annað eins er tóm vitleysa. Þó að listin eins og annað styðjist að mörgu leyti við niður- stöður vísindanna, er hún ekki vís- indi. Listin er sambland af sú- bjektívum og objektivum kennd- LÍF og LIST