Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Lķf og list

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Lķf og list

						hefur grannkynnt sér hverja mann-

lega tilfinningu og geðshræringu.

Hann hefur þekkt til hlítar öll svið

tónlistarinnar. Hjá honum er ekk-

ert þurrt eða þungt. Það er ekki til

neitt kennara eða prófessora-við-

horf í tónsmíðum hans. Ég held, að

það sé aðallega Þjóðverjum um að

kenna, hvað Bach hefur lengi verið

misskilinn. Þeir hafa ekkert ímynd-

unarafl, en hins vegar hafá þeir

eignað sér Bach og túlkað hann á

sinn ímyndunarsnauða hátt. Aðrar

þjóðir hafa tekið þessa túlkun góða

og gilda, af því að þeir skildu Bach

ekki betur og héldu, að þýzk túlk-

un hlyti að vera sú rétta. Satt er

það, að Bach var fæddur í Þýzka-

landi, en tónlistareðli hans var í-

talskt og franskt og ungverskt ekki

síður en þýzkt. Og reyndar er ég á

þeirri skoðun, að Bach hafi ekki

verið þýzkur í eðli sínu. Auðvitað

var hann aldir á undan samtíð

sinni. Hann samdi verk (einkum

íyrir sólóhljóðfæri), sem á þeim

dögum virtust vera óðs manns æði.

Jafnvel eru enn til menn, sem

skilja hann ekki. Það sannaðist

n'ka, þegar Schumann fór að setja

píanóundirleik við íiðlusónötur

hans. Gricg og fleiri hafa gert hið

sama við sellósvíturnar. Gounod

samdi hina heimskulegu umgjörð

við Ave Maria, sem sýnir algert

skilningsleysi á Bach. Albert

Sclrweitzer varð fyrstur til að koma

roönnum í skilning um Bach."

Casals telur það aðalatriði í túlk-

un á Bach, að láta hverja nótu

Mjóma út af fyrir sig, staka, leika

staccato en ekki legato.

»Bach getur tjáð hverja hugar-

hræringu mannsins," sagir Casals,

~»°g þar af leiðandi notar hann

hinn víðtækasta tjáningarmæli-

kvarða. Það er kraftaverk. Og við

verðum að túlka það þannig. Þeg-

ar hann er harmþrunginn, verðum

við að skynja harminn. Þegar hann

er viðkvæmur,  er  ekki   til  meiri

mildi annars staðar en í tónlist

hans. Ég hef aldrei rekizt á setn-

ingu í tónsmíðum hans, sem erfitt

er að-útskýra. Hjá Bach skýrir allt

sig sjálft."

Þannig farast Pablo Casals orð,

hinum 73 ára gamla tónlistarsnill-

ingi, sem byrjaði að leika á fiðlu

7 ára gamall. Leikfélagar hans

hlógu að honum og stríddu, af því

að hann lokaði augunum og

muldraði við sjálfan sig um leið og

hann lék, svo að hann hætti við

fiðluna. Þegar hann heyrði fyrst

leikið á selló, sagði hann föður sín-

um, að hann langaði til að læra á

það hljóðfæri. Hann byrjaði á því

ellelu ára gamall og heldur því víst

áfram meðan honum endist aldur

— fyrir vini sína. „Ég er af fátæku

'fólki kominn, faðir minn var al-

þýðumaður. Þess vegna var ég ein-

lægur lýðræðissinni," segir hann.

Þess vegna er hann í mótmælaverk-

falli, sannfæringin býður honum

það. Því að hann er samvizka sam-

tíðarinnar, ekki síður en sellóleik-

ari. En hann varð að gera undan-

tekningu í minningu um vin sinn

Bach, sem hann telur, að mann-

kynið standi í óborganlegri þakk-

arskuld við.

G.B.

Bach-ættin

Grein eftir Ivor Jones

Fyrir tvö hundruð árum var Jó-

hann Sebastian Bach grafinn í

nafnlausri gröí. Dauði hans fór fyr-

ir ofan garð og neðan hjá flestum,

og næstu öld á eftir voru verk hans

vanrækt, og fáir hugðu þeim lang-

lífi. Nú er öldin önnur. Snilld hans

hefur verið vakin upp, og í sumar

er tveggja alda dánarminning hans

haldin með hljómleikum og há-

tíðahöldum um heim allan.

Um leið og vér minnumst Jó-

hanns Sebastians er ekki óviðeig-

andi að minnast hinnar stóru, frjó-

sömu ættar hans, sumpart vegna

þess að erfðavenja ættarinnar gerði

úr honum það sem hann varð, og

sumpart vegna ættarinhar sjálfrar.

Þetta var einhver frábærasta ætt

sögunnar, þar sem snilldarhæfileik-

ar fylgdu kynslóð eftir kynslóð í

tvær aldir. Á þeim tíma spruttu af

þessari ætt 56 tónlistarmenn.Nærri

allir voru ágætlega verki sínuvaxn-

ir, og sumir eru enn í minnum

hafðir fyrir verk sín eða áhrif á

önnur   tónskáld.   Gáfa   ættarinnar

gufaði loks upp fyrir hundrað ár-

um. Samt á ætt þessi engan sinn

líka í allri listasögunni.

Fyrsti tónlistarmaðurinn, sem

kemur við sögu í ættinni, var Veit

Bach, malari í þorpinu Vechmar í

Þýzkalandi. Hann settist að um

tíma í Ungverjalandi, en varð að

flýja þaðan aftur til Wechmar,

vegna trúarofsókna, hann var ákaf-

ur Lútherstrúarmaður. Hann átti

tvo sonu, dó 1619. Fjórum manns-

öldrum síðar skrifaði Jóhann Se-

bastian þetta um hann: „Það, sem

hann hafði mest yndi af, var gígj-

an hans, sem hann var vanur að

hafa með sér í mylluna. Hann lék

á gígjuna á meðan myllan malaði.

Allhávært hefur verið á þeim

hljómleikum! Samt kenndi þetta

honum að fylgja taktinum, og

þannig hefur tónlistin bersýnilega

komizt inn í ætt okkar."

GÁFAN FESTIR RÆTUR.

Tónlistargáfan dafnaði vel í ætt-

inni, og næstu fimm Bach-kynslóð-

LÍF og LIST

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16