Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Lķf og list

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Lķf og list

						hefðum heldur átt að fara til

Maidenhaid. Þar var líka „uppi í

sveit."

Veitingakráin var ekki nákvæm-

lega þar, sem mig minnti, að hún

hefði verið. Þarna var ráðhúsið, en

það hafði verið reist nýtt kvik-

myndahús með márísku hvelfþaki

og veitingastofu, og þarna var bif-

reiðaskýli, sem hafði ekki verið

þarna í minni tíð. Ég hafði einnig

gleymt vegarspottanum, sem beygði

til vinstri upp bratt leiti.

„Ég trúi því ekki, að þessi vegur

hafi verið til, þegar ég var hér."

„Þegar þú varst hér?" spurði

Lóla.

„Sagði ég þér ekki, að ég er fædd-

ur hér?"

„Þér hlýtur að finnast skrýtið að

koma með mig hingað," sagði

Lóla. „Ég býst við, að þú hafir oft

hugsað um svona nætur, þegar þú

varst drengur."

„Já, sagði ég, vegna þess að það

var ekki henni að kenna. Hún var

ágæt. Ég kunni vel við ilmvatnið,

sem hún notaði. Hún notaði líka

smekklegan varalit. Þetta var mér

að vísu nokkuð dýrt allt saman,

fimm sterlingspund handa henni í

vasapeninga og að viðbættum öll-

um reikningum, fargjöldum og á-

fengi, en mér fannst því betur var-

ið til þess en nokkurs annars.

Ég staldraði við um stund neðst

á veginum. Eitthvað var að brjót-

ast um í huga mér, en ég býst ekki

við, að ég hefði munað það, ef hóp-

ur barna hefði ekki komið þar að

ofan frá hæðardrögunum og birzt

í hélugráu götuljósinu.með hávaða

og glymjandagangi, og um leið og

þau gengu undir ljósið lagði mökk

úr vitum þeirra vegna frostkuld-

ans.Þau báru öll línpoka og nokkr-

ir þeirra voru saumaðir fanga

marki. Þau voru klædd sínum

beztu fötum og vissu töluvert af

sér. Litlu telpurnar voru sér í hóp,

í eins konar þéttri og umsetinni

fylkingu, og manni datt ósjálfrátt

í hug slaufur í hári og gljáskór og

hægt glamur á slaghörpu. Allt

þetta rifjaðist upp fyrir mér: þau

höfðu öll verið í danstímum, alveg

eins og ég hafði eitt sinn verið, í

litlu ferhyrntu húsi a miðri hæð-

inni — það lá afleggjari að húsinu

og beggja vegna óxu sígrænir runn-

ar. Og nú óskaði ég þess meira en

nokkru sinni fyrr, að Lóla væri

ekki með mér, og hún sómdi sér

þarna enn síður, er mér var hugsað

til þess, „að eitthvað vantaði á

myndina". Og ég fann til einhvers

logandi sársauka um hjartaræturn-

ar.

Við drukkum nokkur glös af

viskíblöndu á barnum, en það var

enn hálftími, þangað til við feng-

um kvöldverðinn framreiddan.

„Þig langar ekki til að eigra hér

um þorpið. E£ þér er sama, þá æda

ég að skreppa út í tíu mínútur og

líta á stað, sem ég þekki." Henni

var sama. Það var maður þarna á

barnum, sennilega skólakennari úr

þorpinu, sem beinlínis þreyði að

bjóða henni snafs; ég sá, hve hann

blóðöfundaði mig, vesalings mað-

urinn, af því, að koma með hana

hingað úr borginni til þess eins að

vcra með henni um nótt.

Ég gekk upp hæðardragið.

Fremstu húsin voru öll ný. Mér

hugnaði þau ekki. Þau byrgðu fyr-

ir ýmislegt, sem ég hefði munað

eftir, eins og akra og skógargötur.

Þetta minnti á landabréf, sem hef-

ir velkzt til og blotnað í vasanum,

svo að það hefir límzt saman á

köflum; og þegar þú opnar það,

vantar á það heila bletti. En þarna

GRAHAM GREENE (f. 1904) þykir frumlegur og

ferskur skáldsagnahöfundur og fer hróður hans sí-

vaxandi í enskum bókmenntum. Hann stundaði há-

skólanám í Öxnafurðu, var blaðamaður við „The

Times" 1926—30 og ritaði kvikmyndagagnrýni í „The

Spectator 1935—39. Fyrsta skáldsaga hans, „The Man

Within", kom út 1929. Hefir hún nýlega birzt á ís-

lenzku, útgefin af Helgafelli og íslenzkuð af Siglaugi

Brynleifssyni, bókaverði á Akureyri. Mikilfenglegustu

skáldsögur Greenes eru „The Power and the Glory" og

„Brighton Rock". Hefir sú síðarnefnda verið kvik-

mynduð ásamt „The Man Within".

Greene er kaþólskur, en stíll hans þykir bera mik-

inn keim af róttækum hugsjónum vinstri sinnaðra rit-

höfunda Breta, hinnar svonefndu „The Left Wing

Group". Enskur bókmenntagagnrýnir merkur, John

Pudney, hefir sagt, að Greene sé einhver hárfínasti

og hugvitsamasti rithöfundur, sem nú er uppi.

í greininni um enskar bókmenntir í fyrsta hefti

þessa tímarits er þessa höfundar getið ítailega.

12

LÍF og LIST

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16