Bach-ættin. Framhald af bls. 7. stríðsárin. Hann rataði í margar raunir. Skömmu eftir fyrsta brúð- kaup hans ól konan honum and- vana barn og dó sjálf halfri klukku- stund síðar. Þrjú börn hans af öðru hjónabandi dóu einnig í æsku. Auk þessa var Erfurt hernumin af minnst tveim herjum á meðan hann var aðaltónlistarfrömuður borgarinnar, og hlýtur hann og fjölskylda hans að hafa haft af því mikil óþægindi. Það var líka naumt um mat hjá þeim árum sam- an, og 1644 f jórum árum áður en stríðinu lauk þraut Jóhannes ráð til að útvega daglegt brauð. Hann segir: Ég hef ekki fengið borguð laun í meira en heilt ár, og ég hef nærri orðið að grátbiðja um hvað lítið sem var." ÚRKYNJUNIN. Þegar stríðið var loks á enda og lífið komst í eðlilegt horf, komst Bachættin einnig aftur á strik. Ætt- fólkinu fjölgaði ört, og tveir af efnilegustu ættmönnunum Jó- hann Michael og Jóhann Kristófer hinn fyrri uxu upp á fyrstu ár- um friðarins. Hjá næstu kynslóð náði ættin hámarki snilldarinnar með Jóhanni Sebastian, og í þeirri þar næstu varð hún fjölmennust og sterkust. Eins og þegar hefur verið sagt, lét ættin tónlistarmönnum sínum í té þekkingu og aðstæður, sem örv- aði gafu þeirra og kom í veg fyrir, að hún kafnaði. Enginn getur sagt, hvar hún hefur byrjað, en þó sýn- ist ljóst, að um hafi verið að ræða meðfædda eða arfgengna tónlistar- gáfu, sem magnaðist snögglega í fyrstu og annarri kynslóð eftir Veit. Hún gekk aldrei að erfðum í kvenlegg, þó að fyrsta kona Jó- hanns Sebastians, sem var frænka hans, hafi ef til vill arfleitt syni sína að einhverjum slíkum skerf. Þeir voru almennt taldir gáfaðri en synir af síðara hjónabandi hans. Þá brast allt í einu snilldin í Bachættinni. Hrörnunarmerki komu jafnvel fram meðal barna Jó- hanns Sebastians. Elzti sonur hans var gáfaður, en reikull, og dó von- svikinn. Sömuleiðis voru tengdar vonir við fjórða soninn, en einnig þær brugðust. Karl Philipp Eman- uel hefur skrifað um hann: Hann hafði snilldargáfu, en það varð aldrei neitt úr honum." Af næstu kynslóð á eftir komu aðeins fáeinir tónlistarmenn. Hin- ir urðu lögfræðingar .efnafræðing- ar, embættismenn og skólastjórar. Það voru endalokin, þó að síðasti tónlistarmaðurinn af Bachkyninu, sonarsonur Jóhanns Sebastians, lifði fram að 1845. Tveim árum áður en hann dó, horfði hann í Á kaffihúsinu. Framhald af bls. 2. fyrir sverði," mun prófessor Hallesby hafa sagt, að táknaði dauðarefsingu fyr- ir manndráp og fyrirskipaði varnarstríð gegn innrásarmönnum. Vér ætlum ekki að gera tíðrætt um þetta hér, aðeins vekja athygli á, að einnig norskir guð- fræðingar og menntamenn hafa að und- anförnu deilt um þetta efni, svo að séra Pétur stendur ekki einn. I nýju hefti af tímaritinu Syn og segn skrif- ar gamall norskur menntamaður, Jakob Naadland, um þetta deilumál. Hann tekur fyrir alla þá staði í nýja testa- mentinu, sem notaðir hafa verið til sanna", að Kristur hafi leynt valdbeit- ingu og manndráp, og sýnir, hvernig þeir eru ýmist ónákvæmt þýddir úr griska frumtextanum eða vanskildir og hártogaðir. Niðurstaða hans er sú, að Kristur hafi kveðið upp skilyrðislaus- an og alvöruþrunginn dóm yfir öllu vopnavaldi, í hvaða mynd sem er, og einkum berit á þau sálrænu áhrif, sem vopnaburður og manndráp hafa á mennina. Og ef menn gera sér grein fyrir", segir Naadland, hvernig síð- ustu styrjaldir hafa brennimerkt mann- kynið og heltekið hið.almenna hugar- ástand, hljóta þeir að viðurkenna, að þessi orð Krists hafa að fullu sannazt." Kristilegri virðist oss þessi kenning en séra Péturs. Leipzig á afhjúpun minnismerkis- ins um afa sinn. Þá fékk hann full- vissu um það, að minnsta kosti mesti sonur ættarinnar mundi ekki falla í gleymsku. HVÍLD Á SJÓ! Margir lita svo á, að fátt veiti betri hxrild en röleg sjóferð á góðu skipi, og þvi er það, að fstir sjá eftir þeim tima, sern i sjóferðina fer, ef þeir á annað borð hafa ástður til að laka sér hvild frá störfum, Hafið, með sinu lifi, hefir lika sitt aðdrátlarafl, og landsýn er oft hin fegursta frá skipi. Nú höfum vér beiri skipakost en fyrr á árum til farþegaflutnings, og tti þvi fólk að athuga það timanlega hvort ekki vri rétt að taka sér far með skipum vorum. SKIPAÚTGERÐ RÍKISINS LÍF og LIST 15