Líf og list - 01.11.1950, Blaðsíða 10

Líf og list - 01.11.1950, Blaðsíða 10
BRENNIVÍN Sprenging hafði átt sér stað — langt í burtu, full, óskýr, en sprenging var það. Samt sem áður var hann ekki alveg viss. Fyrir þrem dögum höíðu flugvélarnar varpað sprengjum yfir Madrid. En Don Manúel hafði heyrt talað um undirvitund. Og hann hélt það væri mögulegt, að skelfingin við sögurnar, sem hann hafði hyert og minningin um tómu sprengjuna í liúsinu í Puerla del Sol hefðu verið að verki í liugskoti hans: Það hefði bara orðið ótti, sem vakti hann þessa írostnótt í nóvember. Don Manuel átti ekki vanda til að vakna á nóttunni. Hann svaf höfgum svefni hins miðaldra manns, sem búinn er að fá þann ávana að éta yfir sig. Af því staf- ar draumaþrugl, sem er undanfari að slagi. En ekki höfðu draumar vakið hann. Og ekki gat það hafa verið konan á loftinu, sem stund- um hafði ónáðað hann með gleð- skaparhávaða, af því að hún var ekki við eina fjölina felld. Hann renndi augunum um kol- dimmt svefnherbergið, en sá ekki nokkurn skapaðan hlut. Heilinn í honum var tómur, og það var dauðaþögn, utan tifið í vekjara- klukkunni á náttborðinu, sem heyrðist eins og lijartsláttur. Og enn juku á þögnina hinar djúpu, rytmísku hrotur í Donu Júanítu, sem hvíldi við hliðina á lionum. Hinn feiti kroppur liennar þand- ist út yfir dýnuna. Hann lagði við hlustirnar kvíð- inn og vissi ekki, hvort hann ætti að kveikja á lampanum á nátt- borðinu eða ekki. Hann lá með annan fótinn undir fætinum á SVIPMYND eftir ARTURO BAREA Donu Júanítu og hafði stingandi óþægindi af þunganum, því að hann var alveg að stöðva blóðrás- ina. Þessi fótur var að verða hon- um martröð, og hann reyndi að losa hann með hægum erfiðismun- um, en í hvert sinn sem það var að takast, kom hreyfing á hrúguna, sem hvíldi við hlið hans, svo að hann hætti við allt. Þó var hann búinn að mjaka löppinni talsvert áleiðis og vantaði ekki nema herzlumuninn, þegar önnur sprenging heyrðist — skýrar, nær. Og það hafði þá blessun í för með sér, að nú losnaði fóturinn allt í einu úr kreppunni. Dona Júaníta kipptist við, andvarpaði, kumraði og velti sér á hina hliðina án þess að vakna. Don Manúel settist upp í rúm- inu, og sekúndu síðar titraði loft- ið af háværum drunum sprengju- flugvélanna og af annarri spreng- ingu, sem var svo nærri, að liann heyrði húsin lirynja og rúðurnar brotna. Hann kvcikti á náttlampanum, en birtan af honum var drunga- legri en sjálft myrkrið. Það var Jítill lampi, vafinn blárri grisju, og um hann hélt með hendinni gyðja úr ódýru bronsi. Hann vildi ekki vekja konuna sína né kveikja á loftlampanum, }rví að hætt var við að Ijósglæta kynni að síast út um rifurnar á hleranum, sem liann liafði byrgt gluggann með, og það mundi leiðbeina flugvélunum. Hann hentist fram úr rúminu og hugsaði með sér, að hann gæti af- sakað sig fullkomlega með því að hann væri að ganga þarfa sinna, ef konan hans skyldi vakna. Sannleikurinn var sá, að hann var skraufþurr í munninum og tungan þykk, eins og hann hefði étið salt. Hendur hans skulfu. Hver veit, hvar sprengja kynni að falla? Tvö hundruð og fimmtíu kílógrömm. Og íbúðin hans var á þriðju hæð í gömlum timburhjalli. í borðstofunni átti hann opna brennivínsflösku, þá tegund, sem kunnáttumenn telja bezta brenni- vín á Spáni á friðartímum, og nú ekki lengur falt, jafnvel ekki þó að gull væri í boði. Hann var ekki gefinn fyrir áfengi. En samt trúði hann á mátt þess á veikleikastundu eins og þessari. Hann læddist á tánurn inn í borðstoíuna og lokaði dyrunum vandlega. Hann kveikti ljós og gekk úr skugga um, að það skini ekki í svefnherbergið, og tók fram brennivínsflöskuna, hræddur og skömmustulegur, eins og þjófur. Hann setti stútinn á varirnar og fékk -sér vænan teyg, án þess að finna fyrir því, þegar vökvinn streymdi niður um þurrt kokið. En strax á eftir fann hann ofsalegan jhita rísa frá maganum upp og fram í ennið. Nú leið honum vcl. Rökvísi lians sannfærði hann um það, að Madrid væri eitt hundrað og sextán ferkílómetrar. Að svefnherbergið væri sextán fer- metrar. Að ef gert væri ráð íyrir því, að varpað væri niður fimm- tíu sprengjum, myndu líkurnar fyrir því að ein þcirra mundi falla á þessa sextán fermetra vera . . • livað voru þær miklar? Þegar hann fór aftur inn í svefnherbergið, var liann kaffærður í útreikningum. Þetta var erfiðara en að reikna út verðlagið í íbúðinni. En samt ætl- aði hann að íinna lausnina á dæm- inu. Hann fór að lirósa sjálfum sér 10 LÍF og LIST

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.