Líf og list - 01.11.1950, Blaðsíða 22

Líf og list - 01.11.1950, Blaðsíða 22
ull um ótta þinn, sé honum fyr- ir að fara. í þeim hópi er þögnin höfuðdyggð, skilningur og þekk- ing á mannlegu eðli nauðsynleg- ur hæfileiki, ásamt afleiðingum þessa alls, sem er: frjálslyndi og víðsýni þess sem ekki dæmir. Ef ég bendi á þessi andlit og segi svo þú heyrir: — Mann- legra, betra og jafnvel saklaus- ara fólki en þessu fólki hefi ég aldrei kynnzt, þá hróparðu upp með sáluhjálparótta í röddinni: Almáttugur, skelfing er að heyra, hvað maðurinn er spillt- ur! Og mér þykir leiðinlegt, þín vegna, að þú skulir hafa samúð með mér. Það er óþarfi að hafa samúð með þeim sem skilur. Því að skilji hann, þá er honum borgið, kæri hann sig um það. Sjái hann í gegnum allan svind- ilinn, eigi hann til að bera þetta nauðsynlega sambland af kæru- leysi og ábyrgðartilfinningu, þá er veröldin hans. Líttu í þessi andlit. Það eru andlit einfeldn- innar og hins margbrotna, hins sæla og hins þjáða, þess sem er einnoghins sem á vini.En það er ekki andlit dómarans. Og mað- ur kemur til okkar og talar um Indian hay eða Texas tea. Mari- huana! hvísla ég í eyra þér til þess að gefa þér skýi’ingu. En þú skilur ekki einu sinni, hvað marihuana er, því að þú hefur aldrei neytt eiturlyfja. Þú veizt ekki fyrr en ég segi þér það, að þetta eru sígarettur, eiturlyf, sem maður reykir eins og ópí- um. Hiss Emma? spyr hann þá. Það skilur þú ekki heldur. Ég læt þig vita, að það sé heiti á morfíni; en þú ypptir öxlum gáttaður. Iívað á það að þýða að nefna þetta öðrum nöfnum en venjulegum? spyr þú. Og ég er að því kominn að gefast upp að svara. Að lokum hefur afstaða mín til þín breytzt á þann veg, KVÆÐI — Brot af minning löngu liðins dags. Ljóð, sem hvarf í blórra vega firrð. Veikur ómur löngu kveðins lags. Langt að baki liggur slóðin þin, langt að baki i tímans döpru kyrrð. Hljóðnar ómur gamals bcrnskubrags. Ain líður lygn um grænan dal. Lógvær ómur berst af fossanið. Hógvær byggðin bíður sólarlags. Erlendur Jónsson. að ég fer að gera meinlaust grín að þér og spyr þig, hvort þú viljir ekki koma á pansy-ball. En óðara sé ég eftir að hafa spurt þig þannig, því þegar allt kemur til alls, get ég enganveginn krafizt þess af þér, að þú vitir neitt. Þú hváir við spurningu minni, en ég flýti mér að svara og segist ekki hafa sagt neitt. Piccadilly og Soho, að ógleymd- um þeim hverfum sem þéttbýl- ust eru, hafa löngum verið heim- kynni þeirra sem teljast til „the underworld“. Sá sem aldrei hef- ur gist þann heim, aldrei viljað kynnast honum, skilja hann og forsendur hans, hann hefur ekki séð heimsborgina. í skrautleg- um salarkynnum gleymist betl- arinn. I leikhúsum gleymist hinn tragíkómíski sjónleikur, sem á sér stað nokkrum metrum fyrir utan leikhúsveggina. I frá- sögninni af glæsileik Lundúna er hvergi getið um ástina sem ekki þorir að nefna nafn sitt, or- sökina fyrir því að andlit næt- urinnar eru blá og gul, tilefnið til þess, að ung stúlka fyrirfór sér í Thames, auðmanninum sem stjórnar hópi auðnulítilla glæpamanna. I skýrslum lög- reglunnar er sumt af þessu geymt. En ekki allt. Á rekafjörunni Franska sendiráðið í Reykja- vík iærði nýlega Handíða- og myndlistarskólanum að gjöf 200 ljósmyndir af frægum listaverkum, málverkum, teikningum og högg- myndum, sem til eru í frönskum listasöfnum, einnig af franskri byggingarlist. Bókmenntaverðlaun Nó- bels var úthlutað nýlega, tveim höfundum að þessu sinni, vegna þess að ekki náðist samkomulag innan sænska akademísins á síðast- liðnu ári. Bandaríski skáldsagna- höfundurinn William Faulkner hlaut verðlaun ársins 1949, en brezki heimspekingurinn Bertrand Russell verðlaun 1950. Þeirra verð- ur beggja getið í næsta hefti Lífs og listar. Myndabók Kjarvals er að koma út. Þriðja bókin í hinum glæsilega bókaflokki Helgafells: íslenzk list. Litmyndirnar hafa tekizt sérstaklega vel, allar prent- aðar í London. Framan við þær er löng ritgerð um Kjarval og list lians el’tir Flalldór Kiljan Laxness. Hallarklúbburinn nefnist nýr bókmenntaklúbbur, sem heldur fund hvert fimmtudagskvöld í kaffihúsi hér í bænum. Vér vonum, að félagsskapur þessi fái afrekað eitthvað frásagnarvert. V egna þrengsla verður ýmis- legt efni að bíða næsta heftis: Tón- listar- og kvikmyndarýni, grein um Shaw o. fl. ☆ BLÁA STJARNAN hefir hafið starfsemi sína á ný. Gleðigjafi er jafnan góðra gjalda verður. 22 LÍF og LIST

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.