og óhollra, gaetir víða í list okkar, eldri sem yngri. Sí og æ renna upp ný skeið í myndlist hans lista- maðurinn hefir lifað lengi í inni- legum tengslum við náttúru lands- ins og sífellt verið að sjá hana í nýju ljósi, eins og marka má af nvyndum hans, enda þótt valið á þeim sé miður heppilegt á ýmsan hátt. Til eru fallegar myndir eftir Asgrím frá ýmsum öðrum tíma- bilum, sem væri betri kynning á Hst hans en sú á sýningunni. Eink- um eru olíumálverkin áberandi ó- smekklega valin í heild. Eitt þeirra Sumar (nr. 2) sker sig þó úr að feg- urð. Sú mynd er byggð á sama mótívi og myndirnar nr. 1 og 6, en niunurinn er sá, að myndin Sumar er gædd þróttmeiri og hreinni lita- gjöf en hinar síðarnefndu ekki eins hrá og þær. Þó að Ásgrímur virðist yfirleitt leggja öllu meiri áherzlu á hæfileika lita en bein- hnis formið sjálft, sé kóloristi fremur en formalisti, fer því víðs fjarri, að formbygging þessarar myndar bíði af því hnekki. Fáar myndir sýningarinnar eru jafn- gagnhugsaðar að því leyti. Myndir JÓNS STEFÁNSSON- AR eru yfirleitt svo samfelldar að gæðum, að ekki er ofsögum sagt, að þær skyggi á flest önnur mál- verk þar á sýningunni. List hans skipar þarna öndvegi, þegar á heild er litið ekki sízt ef hún er lögð á vogarskálarnar við lengri og nánari kynni. Þá kemur æ bet- ur í ljós, að myndir hans vaxa yfir flest önnur verk í íslenzkri mynd- list. Þó að Jón 'máli stundum að sumu leyti öllu meira með heil- anum en hjartanu, fer hann sjaldn- ast varhluta af þeim innblæstri, er gagntekur listamannshjarta. Sú tignarlega fyrirmennska og menn- ingarfágun, sem har<n glæðir myndir sínar, sú djúpa hugsun og rökvissa, sem einkennir myndirn- ar: allt þetta getur, ef til vill, ork- að fráhrindandi og kaldranalegt við fyrstu sýn. Margur mun hugsa: hér vantar líf og leik (sprell), lífs- og listargleði. En við nánari tengsl og kynni af list hans vitnast, að bak við þennan oddborgarahjúp býr falinn eldur lífshrifni og ein- lægni, sem logar varanlega. Um JÓHANNES KJARVAL gildir hið sama og málarann Cha- gall, að örðugt er að gera sér skýra grein fyrir því, hvers vegna list þeirra nær til dulinna kennda. List Kjarvals er svo ótæmandi svo yndiþrungin, að hún gctur áldrei lotið neinum lögmálum raunveruleikans. Kjarval er og verður óráðin spurn úr duliðs- heimum. 7. des. 1950. Steingrímur Sigurðsson. Jón Stefánsson: Stúlko í Ijósrauðri blússu Jón Sterónsson, listmálari LÍF og LIST 11