Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Lķf og list

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Lķf og list

						BERNARD SHAW

Eftir   H.   G.  W E L L S

ÉG   hefi   þekkt  George  Bernard

Shaw náið, síðan ég var um

stutt skeið leiklistargagnrýnandi

við Pall Mall Gazette fyrir fimmtíu

árum.

Fyrstu kynni mín af honum urðu

með þeim hætti, að ég varð honum

eitt sinn samferða úr leikhúsinu.

Við komum frá því að sjá leikinn

„The Importance of Being Earn-

est" eftir Oscar Wilde.

Ég spurði hann hreinskilnislega,

hvað honum fyndist um leikritið,

og sagði honum jafnframt, hvers

vegna mér þætti það ekki nándar

nærri eins gott og ég hafði búizt

við af Oscar Wilde.

Hann svaraði því á töfrandi hátt

og deildi af kappi á gamanleikrit

samtíðarinnar, og svo var ræða

hans kjarnmikil, fersk, hnitmiðuð

og sannfærandi, að ég hafði öðlazt

töluverða þekking á viðfangsefn-

inu, þegar ég settist niður til þess

að skrifa um leikinn.

Þetta var ekki eina skiptið, sem

Shaw lagði eitthvað af mörkum til

menntunar minnar.

Hann átti síðar eftir að kenna

mér að hlýða á tónlist. Heimtaði

hann, að ég fengi mér píanólu, svo

að ég lærði að þekkja fyrirfr. form

og tiUgang alls þess.sem ég ætlaði að

hlusta á, og gæti þess vegna hlustað

á tónverk, án þess að vanþekking

á hinni flóknu uppbyggingu tón-

tækninnar stæði mér fyrir þrifum.

En það leið langt á milli kennslu

hans í leiklistarrýni og píanólunn-

ar, og við höfðum á þeim tíma

komizt í skarpa andstöðu í skoð-

unum hvor við annan, sem raunar

batt okkur traustum vináttubönd-

um.Varð ekkert lát á þrefi og orða-

hnippingum millum okkar, en báð-

ir áttum við sammerkt í því að

vera einstaklega hneigðir til þess

að vera á öndverðum meið við

menn og málefni.

Ég var framar öllu öðru díffræð-

ingur, en Shaw hafði lífeðlisfræði-

legan viðbjóð á líffæralegri starf-

semi mannskepnunnar.

Hann snerist hatramur gegn

henni. Hann uppgötvaði þá kenn-

ingu, að undirrót allra kynferðis-

mála væri grimmdin í manninum.

Þetta er ég blindur á.

Undir niðri var allt þetta við-

horf Shaws sprottið af knýjandi

þörf hans til að vera í andstöðu og

skapa ágreining, sem ég og tel, að

hafi verið grundvöllur persónu-

leika hans.

Hann fullnægði þessari æsingar-

þörf sinni með því að vekja ofsa-

fenginn ágreining og vinna síðan

bug á honum til fullnustu. í þess-

ari íþrótt, sem hann iðkaði megnið

af ævi sinni, var honum enginn

fremri.

Og svo vikið sé að undraverðasta

misbresti í fari hans. Shaw var ó-

trúlega hégómagjarn. Hann var af-

dráttaxlaust haldinn helberri hé-

gómagirni, sjálfhverfri og mann-

spillandi. Þess háttar hégómagirni

er sjaldgæft að rekast á í lífinu.

Ég hefi stundum spurt sjálfan

mig: Var þessi sjálfhverfa hégóma-

girni að einhverju leyti ásköpuð —

eða hafði hún læðzt inn í einstak-

lega errna (kverulant) sálgerð og

tekið hana herskildi?

a

Keppikefli hans.

Chaw gat auðsjáanlega aldrei hugs-

að sér aðra menn, en einkum

þó   annað  frægt   mikilmenni,   án

þess að verða um leið hugsað til

sjálfs sín.

Þó bar jafnvel enn meira á þeirri

ástriðu   hans   að  rekja   andlegan

skyldleika  sinn  við þessa  menn.

„Shakespeare"    er    bersýnilega

samslungið verk gert af mörgum

G. Wells

H. G. W E L L S er af mörgum talinn eini rithöfundur sinnar kynslóðar, sem

stenzt einhvern samjöfnuð við Bernard Shaw. Þeir voru fornir vinir, en þeir

eltu oft og tíðum grátt silfur og höfðu ólíkar skoðanir í flestum efnum. Wells var

fœddur 1866 og dó 1946. Hann ritaði minningargrein þcssa skömmu fyrir andlát

sitt. Birtist hún fyrir skemmstu í brezku blaði, sem hafði varðveitt hana allt

fram að þessu.

Sennilega er fátítt að skrifa eftirmæli um mann nokkrum árum áður en hann

deyr, og þó er enn fáheyrðara, að eftirmælahöfundurinn deyi töluvert á undan

þeim, sem hann ritar minningargrein um. Þessi berorða og forvitnilega grein hef-

ir vakið óhemju athygli í hinum menntaða heimi.

U

LÍF og LIST

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Auglżsingar
Auglżsingar
Auglżsingar
Auglżsingar
Auglżsingar
Auglżsingar
Auglżsingar
Auglżsingar
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Auglżsingar
Auglżsingar
Auglżsingar
Auglżsingar
Auglżsingar
Auglżsingar
Auglżsingar
Auglżsingar
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28