Líf og list - 01.01.1951, Blaðsíða 20

Líf og list - 01.01.1951, Blaðsíða 20
urð'u fyrstar á vettvang og liittu negrann í fordyrunum, hann hleypti þeim inn og síðan hvarí hann. Hann gekk þvert yírum húsið, út um bakdyrnar og sást ekki framar. Frænkurnar tvær voru óðara komnar. T>ær létu jarðsvngja strax daginn eftir, en þorpsbúar komu að horfa á jómfrú Emilíu undir dyngju af aðkeyptum blómum og yfir börunum gnæfði andlit föður hennar í órofa þönk- um á blýantsmyndinni, óog sus- andi konurnar eins og emhverj- ar forynjur utan um líkiðj Og öldungarnir — surnir hverjir í nýburstuðum einkennisklæðum frá borgarastríðinu — í for- skyggninu og úti á balanum að spjalla um jórnfrú Emilíu, eins og hún hefði verið jafnaldra þeirra, fannst þeir hafa dansað við hana og kannske vottað henni hug sinn. Þannig rugluð- ust þeir í hinu stærðfræðilega tímatali eins og gömlu fólki er títt,, fortíðin er því ekki vegur, sem mjókkar i baksýn, heldur óslitið, víðlent engi, þar sem aldrei vetrar að kalla, en síðast- liðinn áratugur er öngstigið, sem skilur á milli þeirra og fortíð'ar- landsins. Við vissum, að uppi á loftinu var herbergi, sem enginn liafði séð í fjörutíu ór og þurfti að brjóta upp. Það var látið bíða að opna herbergið, þangað til jómfrú Emilía var komin í gröf sína. Trið átökin á hurðinni var eins og herbergi þetta barmafylltist af gagnsmjúgandi ryki. Húsbún- aður var allur í brúðhjónastíl, en þunn og lyktarbeizk hula hvíldi á öllum hlutum ein.s og í grafhýsi: á upplituðum, rósbleik- um damasktjöldum, róslituðum lampahjálmum, snyrtiborðinu, sm ágjörvum krystalsmunum, Anna María frá Bæ (Skozkt Ijóð: Bonnie Mary from Argylc) Ég hef hlýtt á ástaráma, ungra þrasta krónum frá og séð daggardropa Ijóma dœgurgömlum rósum á. Samt mig hefur söngur fegri seitt við dimmrauð aftanljós, augu leit ég yndislegn en þá dögg, sem skein á rós: Það var rödd þín, elsku Anna, og þitt bros með töfráblœ, sem mér færði Edens-unað, Amw María frá /tœ. Þó að rödd þín töfrum týni, tind-ii ei framar augu þín, hreyfingar ei hrifning brýni, hrímgi hár, sem glóbjart skín, — lreitar þér ég æ mun unna öllu, sem fær lieimur veitt: . Fegurð þín mig fangað hefur; fleira samt en þetta eitt. Hjarta þitt, hið göfga, góða, gaf mér lífsins d/ýrsta fræ œvinlega eina kæra Anna María frá fíœ. Leifur Haraldsson layði Ú1: snyrtiáhöldum karhnanns, silfur- renndum en svo áföllnum, að fangamarkið duldist. Hjá áhöld- um þessum lágu flibbi og bindi eins og væri nýlega búið að leggja þau til hliðar; þegar mað- ur tók þau upp sat daufur hálf- hringur eftir í rykinu. Fötin hengu á stól, vendilega frágeng- in; báðir skórnir með kyrrum kjörum undir stólnum og sokk- arnir hjá. Sjálfur lá maðurinn í rúminu. Langa hríð stóð'um við að- gerðalaus og horfðum niður á botnlaust, holdvana glottið. Svo var að sjá sem líkaminn hefði einhvern tíma legið í faðndags- stellingu, en nú var svefninn langi, sem lifir ástina og sigrar jafnvel afskræmingu hennar, bú- inn að kokkála hann. Ræfillinn af manninum, allur drafnaður undir náttskýrtuleifunum, var órjúfanlega samrunninn rúmföt- unum, og nú hafði rykfallið smám saman lagt sinn sléttfellda stað'naða hjúp yfir manninn og auðan koddann við hliðina á honum. Þá tókum við eftir því, að auði koddinn var bældur. Maður úr hópnum var að taka eitthvað upp af koddanum og sem við lutum áfram til að gá með þenn- an þurra sviða af smágjörvu, ó- sýnilegu rvki í vitunum, sáum við að þetta var langt, járngrátt hár. Kristján Karlsson, bókavörður, islenzkatSi. 20 LÍF og LIST

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.