Líf og list - 01.03.1951, Blaðsíða 17

Líf og list - 01.03.1951, Blaðsíða 17
Andrés Bjömsson: Askur Yggdrasils ANDRÉS BJÖRNSSON Tré nokkurt segja sagnir vorra áa að sígrænt vaxi yfir foldar-stól. Það fagurlimað ber við heiðið bláa með brumi fögru, stjörnum, jörðu, sól. Rætur þess dvelja djúpt í Urðarbrunni og dreifast víða og lengra en hugur nær, en laufin hjúpar himindöggin tær, og heimsins drottinn ber þau sér að munni. Maðkur lifi ég í djúpu díki, en dimmt er jafnan á þeim villustig, og margar ógnir ráða í myrkraríki, en rætur trésins standa gegnum mig. Þær sjúga að sér safa og orkugnótt, er sóast ei, þótt jarðarbönd mig spenni, og gegn um þær á góðri stund ég kenni síheiðan dag, sem á sér enga nótt. legast fram, þegar maður dvelst uppi í sveit, því að þar er fátt, sem truflar áhrifin, en einnig þar, sem fleira er um fólkið, verður stundum greini- lega vart stilliáhrifa frá hverjum einstökum. — Hver maður hlýtur að geta gengið úr skugga um það með sjálfum sér, að kenningin um stillilög- nrálið á við rök að styðjast. Með því að athuga jafnan gaumgæfilega, að draumum dreymdum, hverjir hafi verið líklegastir til að hafa áhrif á 'nann, af þeim mönnum sem maður umgekkst daginn áður, þá h'ður varla á löngu, áður en sá sem þetta gerir, fer að verða var við merkilegt samræmi milli drauma og stillis. Hér í Reykjavík ei'u þeir að vísu oft svo margir, sem maður hittir sama daginn, að erfitt er að átta sig á stilliáhrif- Unum, enda verða draumar einatt mjög ruglings- bgir þegar svo er. En slíkt er auðvitað ekki nærri alltaf, og er engum vorkunn að rannsaka stilli- lögmálið, þótt í borg búi. í sambandi við þetta lögmál og því til styrktar má geta þess, að þeir eru flestir, sem engu geta ráðið um drauma sjálfra sín, hvernig sem þeir til þess reyna. Það eru aðrir, sem valda. — Séð hef ég því lialdið fram, að hungraða menn dreymi stundum krásir fram reiddar. Er það mjög skiljanlegt út frá stillilög- málinu, ef þeir eru fleiri en einn, sem saman svelta. Og svo er um allt, sem menn óska sér saman. Þá er eðlilegt, að þá dreymi eitthvað í líkingu við óskina. En „óskadraumar“, sem kallaðir eru, hugsa ég séu ekki til, enda er það orð ekki af vorri göfugu tungu. Það er innflutt, eins og mörg önnur orð, sem tákna falshugtök. Þorsteinn Guðjónsson. LÍF 0g LIST 17

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.