Líf og list - 01.03.1951, Blaðsíða 18

Líf og list - 01.03.1951, Blaðsíða 18
Bjargbátur nr. 1 Smásaga eftir Geir Kristjánsson KÆNURNAR við skipshHð- ina gengu upp og niður eins og í rólu, og menn áttu erfitt með að hemja sig við að koma hökunum á kjöttunnurnar, sem áttu að fara um borð. Skipstjór- inn rak á eftir með eimpípu- blæstri, því þetta var ein af smá- höfnunum, og það þurfti að renna niður stiganum til að' taka farþegann. Það var venjulegur gamall maður, sem hélt dauða- haldi í kaðlana í handriðinu, og það þurfti tvo til að draga hann uppávið. Hreppsnef n darodd vitin n úr landi studdi hann með miklum tilburðum undir þiljur og talaði einslega við jómfrúna, svo sagði hann aftur nokkur orð' við gamla manninn, klappaði á bak- ið á honum, brosti og horfði út í bláinn. — Nii verð ég að fara, sagði hann. hann hafði ekki sinnu á að fara upp til að sjá þorpið hverfa, en las skileríið á veggnum í klef- anum og setti á sig merkið, sem eimpípan átti að gefa, þegar menn yrðu kallaðir í bátana og setti á sig í hvaða bjargbát hann ætti að fara. Það var bjargbát- ur nr. 1, og hann hneppti upp eina tölu í vestinu sínu til að muna það betur og til að muna það án þess að þurfa fyrst að lesa á skileríið og til að muna það þó að hann væri ekki í klef- anum. Hann hafði ekkert annað til að muna, og hann var svo feginn að þurfa að muna eitt- hvað. Hann þurfti ekki einu sinni að muna hvert hann var að fara, því það hafð'i verið borgað fyrir hann og fólk beðið að líta eftir honum og annað fólk beðið að sækja hann um borð, þegar skip- ið kæmi til Reykjavíkur. Það hafði staðið lengi til að hann færi suður og vikuna áður en hann fór voru allir góðir við hann og kölluðu hann aumingja, jafnvel sjálfur oddvitinn, en hann var búinn að gleyma því, hvernig það hafði verið, og gleyma því, sem fólk hafði ságt við hann, og þegar hann varð þess var að skipið var lagt af stað fór hann að gráta, án þess að gráta af nokkru sérstöku og án þess að honum liði tiltakan- lega illa. Þetta var einskonar bil- un inni í honum, fann hann, og hann var einn í klefanum og eng- inn, sem heyrði til hans, og þeg- ar hann varð þreyttur sofnaði hann ofurlítið. Lokan sat föst fyrir kýraug- anu, þegar hann vaknaði, og hann vissi ekki hvort það var dagur eða nótt, en það var enn- þá rafljós í klefanum og hann vissi eklci hvernig það var kveikt eða slökkt, en las aftur á skile- ríið á veggnum og þreifaði á vestinu eftir tölunni. Þannig stóð hann, þegar jóm- frúin opnaði hurðina og spurði, hvort hann vildi koma upp til að borða. Hún þéraði hann og hann kinkaði auðmjúkur kolli, þvi hann vissi að það var bara hærra sett folk, sem þéraði lægra sett fólk, og hún hafði heldur ekki verið góð við hann og kall- að hann aumingja og ekki klapp- að á bakið á honum og þess vegna kinkaði hann kolli, afþvi hann hélt að hún vildi að hann kinkaði kolli, og þegar lnin lok- aði hurðinni var hannaftureinn. Orðin brengluðust fyrir hon- um, þegar hann reyndi að hugsa éitthvað og líka þegar hann reyndi að tala eitthvað, og það var langt síðan menn hættu að hlusta á hann í alvöru og stund- um urðu þeir reiðir og óþolin- móðir og svöruðu ekki, og stund- um liðu heilir dagar svo hann sagði ekki orð nema við sjálfan sig. Hann var búinn að gleyma því, hvert verið var að senda hann, eða til hvers hann var að fara þetta, en hann þreifaði a tölunni og mundi það sem hann hafði ásett sér að muna. Það var hringt klukku ein- hversstaðar uppi á efri hæðinm, og þegar hann opnaði hurðina sá hann á eftir fólki, sem flýtti sér upp stigana. Það voru hand- rið fram með veggjunum í göng- unum, sem hann las sig eftir, og' þegar hann stóð á pallskörinni, sá hann inn í matsalinn, þar sem glamraði í diskum og hnífapör- um, en hann var feiminn við rautt gólfteppið og feiminn við þessi gljáandi hnotutrésþil, og hann þorði ekki inn í hávaðann, en hélt áfram upp næsta stiga, þar sem aftur var salur með rauðum gólfteppum og gljáandi hnotutrésþiljum, og það gengn nokkrir menn fram hjá honum niður stigann. Hurðin var opin útá bátaþil- farið, og kaldur, dökkblár vind- ur ruglaði á honum hárinu og 18 LÍF og LIST

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.