Líf og list - 01.04.1951, Blaðsíða 7

Líf og list - 01.04.1951, Blaðsíða 7
ann í myndrænum vandamálum fyrir sig, því að ella getur list hans aldei orðið sönn né sjálfri sér samkvæm né staðið undir sér. Þá er býsna mikil hætta á því að málari, sem eingöngu leitar fyrir sér í verkum annarra listamanna, en ekki í því, sem hann skynjar og lifir í sjálfum sér og náttúrunni geti aldrei orðið sannfærandi eða heilsteyptur eða persónulegur listamaður. Le style c’est l’homme méme (stíllinn er maðurinn sjálfur), segir gott franskt spakmæli, og það er einn höfuðveikleiki mynda Valtýs, að ógerlegt er að bera kennsl á nokkurn persónulegan stíl í allri myndgerð hans, þó að hann bregði sér í ýmiss konar gervi, allt frá algerlega natúralistiskum myndum frá sjáv- arsíðunni og semifígúratívum kyrrlífismyndum að skreytingarkenndum litasamsetningum. Þess vegna getur tæpast nokkur mynd hans festst manni í minni, þó að maður sé allur af vilja gerð- ur. Persónu er aldrei hægt að búa til á sama hátt og auðvelt er að gera smekklegar og áferðarfall- egar litasetningar af lærdómi og tillærðri tækni. Persóna, brjóstvit, hugsæi (intuition): allt þetta verður að haldast í hendur, til þess að myndin hafi varanleg áhrif og listrænt gildi, því að per- sónulaus list er engin list, hversu svo mikla mynd- ræna tækni og kunnáttu málarinn kann að hafa aflað sér í höfuðmiðstöð heimslistarinnar. Eitt- hvert háskalegasta sjónarmið ýmissa pótentáta í list nú á dögum er það, að leggja höfuðáherzlu á hina köldu tækni, að gera listina að eins kon- ar smáfræðigrein, blóðlausri og náttúrulausri stærðfræði, tilfinningalausri og eins fjarri manm legum kenndum og hægt er að komast. Þessara áhrifa verður, því miður, vart í myndum Valtýs, enda þótt þær séu áferðarsnotrar, einkum við fyrstu sýn. En allar virðast þær einhvern veginn renna út í sandinn, er frá líður, sem hlýtur að stafa af því, að það vantar í þær sál og eðlislæga innlifunarkennd, hjarta og einlægni. Þess vegna er afar erfitt að tilgreina og tína hér til einstak- ar myndir, því að þær skilja lítið annað eftir en minning um sama sífellda svipleysið, þó að mál- arinn fái óspart sitthvað að láni frá ýmsum góð- um málurum. En þegar ekkert er orðið annað eftir en stæl- ingin (prentvilla af Braque, Gromaire, etc.), verð- ur listin fljótt ömurleg iðja, hálfgerður sálarlaus verksmiðjuiðnaður, enda þótt hún fái inngöngu í sýningarsali franska menntamálaráðuneytisins í baðstaðnum Deauville við Ermarsund. S. S. Jarl Hemmer: A einnœttum ísi A bláum einnœttum ísi óralangt geng ég í dag, en samt um orku og sólskin syng ég lofgerðarbrag. Ótraust og svikult svellið svignar, er um það ég fer, í gegnum gagnsœjan ísinn glottir djúpið við mér: Vatnsgrcenir þörungar vaggast og vefjast um klettaþil, daufbláir sólgeislar drukkna t djúpsins koldimma hyl Alein heldur mér uppi íssins nœfurþunn skel. Yfir er sólskin og yndi, undir myrkur og hel, Hyldýpið undir tsnum er mitt heimkynni samt, birtan og myrkrið biksvart búa t sál mér jafnt. Aðgreinir undirdjúp koldimm og upplönd i sálu mér aðeins brothcettur isinn, sem brestur hvencer sem er. Ragnar Jóhannessson lagSi tít. v___________________________________________J LÍF og LIST 7

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.