Líf og list - 01.12.1951, Blaðsíða 24

Líf og list - 01.12.1951, Blaðsíða 24
Fyrsta skáldsaga Jökuls Jakobssonar kom út á vegum Helgafells fyrir fáeinum dögum, heitir TÆMDUR BIKAR og er rituð síðastliðið sumar, en þá var höfundur aðeins seytján ára að aldri. SYONA FÓR ÞAÐ Smásaga eftir JÖICUL JAKOBSSON HÚN SAT ein við borð, og bragðaði lítið eitt á rjómaís, lítil stúlka, sem hefur yfirgefið bernsku- leikina, en kynnzt ofurlítið gleði og sorgum lífs- ins. Auk skálarinnar með ísnum var á borðinu fyrir framan lítið veski, sem var lokað með renni- lás: Þar geymdi hún myndir af kunningjunum, fimmkrónuseðil og ýmislegt smádót, sem stúlk- um þykir gaman að; þar var líka lítið hólf, sem erfitt var að opna, þar geymdi hún litla dularfulla bréfmiða með máðu letri. Við hlið veskisins lá ósnertur Camelpakki. Nettir ullar- vettlingar með smágervu munstri lágu líka á borðinu, í öðrum þeira voru nokkrir smápen- ingar og húslykill festur upp á lítinn tinhring; það er undarlegur ávani hjá stúlkum að geyma peninga í vettlingum þegar þær eiga veski. Kennslubók í stærðfræði var stillt upp við vegg- inn, stúlkan var nefnilega að koma úr aukatíma í stærðfræði. Það var erfitt að segja að hún væri ljót, hún var allra lögulegasta skinn; kinnarnar kannske ívið holdugar að hennar dómi, neðri vörin dálítið fyllri en hin; augun voru blá og venjuleg; og hár- ið skolleitt og venjulegt. Hún var dálítið feitlagin, en ekkert um of; og gráa þykka kápan og lág- stígvélin gerðu hana máske ofurlítið klunnalegri en hún átti skilið. Og hún sat þarna ein og dreypti við og við teskeiðinni í rjómaísinn, dálítið rauna- leg, því að það var síðla dags á hausti, orðið dimmt úti og hálfgert hret. Hún var einna lík- ust hnuggnum litlum einmana kálfi, þar sem hún sat innan um fólkið, sem var étandi og kjaftandi á borðunum í kringum hana. Úr viðtækinu í horninu glumdu jazzlög og straussvalsar á víxl, tónarnir yfirgnæfðu manns- raddirnar, svo álengdar var að heyra eins og lág- vært suð. Þá opnuðust dyrnar handan auða rúmsins á gólfinu og snöggvast stóð vindgustur um salinn og feykti burt tóbaksreyknum, sem lá eins og dalalæða í loftinu. Hann kom inn. — Hann sá hana ekki strax, eða þóttist ekki sjá hana, heldur strunzaði innar í leit að félögunum, en enginn þeirra sást, þá ætlaði hann út aftur, en virtist koma auga á hana af tilviljun rétt í því. Hann staðnæmdist við borðið hennar, strauk kaldri hendinni um hökuna á sér og sagði með hálfkæruleysislegum digurbarka: Þú ert hér? Mest langaði hana til að hrópa nei af öllum kröftum, en hún vissi hve það mundi verða hlægi- legt, það var óneitanleg staðreynd að hún var hér. Svo hún svaraði og reyndi að vera þótta- full í rómnum, en andlitið var samt sem áður eins og á hnuggnum litlum einmana kálfi: Já. Hún hlaut að vera skrýtin í framan, vafalaust fýluleg og það fór henni illa. Og léttur roði færð- ist yfir vanga hennar, en hún leit ekki upp, þó að hann stæði þarna fyrir framan hana, einblíndi aðeins á einn frakkahnappinn hans, þann þriðja í röðinni talið að neðan. Hefurðu séð nokkuð af strákunum, sagði hann og settist svo á móti henni án þess að spyrja um leyfi; hún þorði ekki að líta upp af ótta við að 24 LÍF og LIST

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.