og þau bregða drungalegri skimu á áfjáð andlit stúlkunnar og líks- lins. Einkennilegt, segi ég. Verulega skrýtið. Kötturinn hvæsir fyrirlitlega úti i lestinni, og stúlkan hlær honum til samlætis köldum hlátri. Þegar við laumumst aftur til klefa okkar vælir kötturinn einmana ndðri í lestinni. Greyið. Um nóttina: Ég er að synda til sólarinnar og sólargeislarnir eru alls staðar um- hverf is mig eins og haf. Og ég stend á sólinni og gular ísbreiðurnar eru jökulkaldar og endalausar og þær hlæja stöðugt unz ég fýk burt gegnum ótal bimna. Þegar ég vakna i draumnum er ég ofan i hangikjötspotti móður minnar og hún stingur i mig gaffli og étur mig. Namm namm. * Þegar ég vaknaði um morguninn var vinstri hlið mín dauð. Stein- dauð. Ég var svo samfærður um þessa skelfingu að ég hreyfði mig ekki, og ég fann tár læðast fram í augun. Regnið niðaði góðlátlega við kýraugiín. Þoka yfiir hafinu. Bak við mig flögruðu raddir sam- ferðamanna minna angráðar fram og aftur eins og tjargaðar kríur. Þeir lágu aftur á hak í kojunni og reyktu og töluðu saman, og þeir voru frámunalega syfjulegir. Sunnudagur. Hurðinni var hrundið upp og stúlkan laut yfir mig, og varir hennar læstust að mínum, mjúkar og gráðugar og ákafar. Ég var of undrandi til að hugsa, en ég skynj- aði gular girndarbylgjurnar. sem stigu í víkkandi hrdngjum upp frá samferðamönnum mínum unz þær brotnuðu á þakinu og fylltu klef- ann. Eftir andartak var hún farin, en ég lá og geiflaði munninn eins og fávdti og hló að vinunum í hinni kojunni. Klefinn var skyndilega orðinn fullur af fjandsamlegri jþögn. Ef tir hádegi stend ég uppi á þil- fard, og við fætur mér liggja nokkr- ir þönglar. Til landsins er aðeins að sjá þokubakka, og himinninn er hulinn grárri þokuslæðu. Það er blæjalogn og bærdst ekki hár á höfði, og sjórinn er spegilsléttur. Loftið er svo mollulegt að ég næ vart andanum, en samt er hugur minn fulílur af óstjórnlegri gleði, og mig langar til að stappa í þdl- farið og öskra. Það er fingur guðs, sem hefur fiskað þessar rósir upp úr hafinu, svo að ég geti gefið elskunni minni þær, segi ég við sjálfan mig. Og þegar ég tek þessa þöngla upp og kyssi þá, kyssi ég fingur guðs. Rós- irnar, sem guð hefur tekið í sínar eigin lúkur. Skyndilega stendur hún við hlið mér, án þess, að ég hafi heyrt hana koma, og brosir við mér hvítum tönnum í grænleitu andlitinu. En ég er veraldarvanur og læt ekki koma mér á óvart og ég segi: Viltu ekki þiggja af mér þess- ar rósir. sem guð hefur tekið með sínum eigin fingri og slett hér inn á jþilfarið? Þegar þú kyssir þessar rósir, kyssirðu fingur guðs. Og rödd hennar er dimm og djúp sem niður þúsund hafa, þeg- ar hún svarar: Við skulum koma niður í lest- ina og láta aósaraugun skína yfir líkinu. Og við skulum flétta sveig úr rósunum og láta líkið éta hann. Niðri í lestinni er líkið kyrrt í böndum sínum, og kertin brenna umhverfis það hægum loga, og það er ekki að sjá, að þau hafi runnið síðan siðast. Undir borðinu liggur kötturinn dauður og afvelta með útspentar klær. Við setjumst í skugga út við vegg, og nú eru rós- ir guðs gleymdar, en handleggir stúlkunnar eru mjúkir og heitir og kossar hennar langir og ákafir og brennandi. Draumurinn: Nótt og myrkur umhverfis. Og við ein í blóðdökku myrkri her- bergisins. Kertið týrir a borðinu bláum loga, og konan er grænir þríhyrningar á kviki um rúmið þvalt og saurugt. Og við erum maðkar í rauðum loga gindarinn- ar, sem brennir án jþess að eyða, brennir óralengi, unz ég flý á nýj- an leik undan svörtum háleggjuð- um geldingum, vörðum kvenna- búrsins. Og ég hleyp eftir myrkum göngum, tjölduðum svörtum slæð- um, sem bílakta stöðugt, og undan þeim gýs ísköld nálykt. Og geld- dngarnir elta mig; í svörtum and- litslausum ásjónum þeirra brennur gulur eldur. Unz Nei, slíka hugsun er ekki hægt að hugsa til enda og ég hrekk upp skjálfandi af hryllingi og baðaður ísköldum svita. Hugur minn er eins og ljósaauglýsing, sem endurtekur í sífellu rauðum stöfum: - Er ég ástfanginn? Er ég ást- fanginn? Er ég ástfanginn? Regnið er tekið að kveða ein- tóna stemmu sína við Iþilfarið yfir höfðum okkar, og ég sé djarfa fyr- ir líkama stúlkunnar við hlið mér, LÍP og IJST