Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Teningur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Teningur

						Heimur Helga Þorgilss

HHræðirviðHÞF

Helgi Þorgils Friðjónsson erfœddur 7.

mars 1953 í Búðardal, sonur hjónanna

Friðjóns Þórðarsonar alþingismanns og

þáverandi sýslumanns Dalasýslu, síðar

ráðherra, Kristjánssonar bónda og

hreppstjóra á Breiðabólsstað á Fells-

strönd, og Kristínar Sigurðardóttur Lýðs-

sonar bónda í Selsundi á Rangárvöllum.

Helgi ólst upp í Dölunum ogfluttist ekki

til Reykjavíkur fyrr en fimmtán ára að

aldri og varþar auk þess ísveit á sumrum

eftir það. Jafnvel enn í dag dvelur hann

hluta úr sumri á Hafursstöðum á Fells-

strönd ásamt fjblskyldu sinni, þar sem

hann málar á milliþess að reka rollurnar

úr túninu. Kona hans er Margrét Lísa

Steingrímsdóttir og eiga þau einn son,

Orn, og köttinn Klóra. Heimili þeirra er

að Rekagranda 8 í Reykjavík. Við kom-

um okkur nú þarfyrir í betri stofunni.

—  Eiga dalimir mikið í þér?

Já, ég held að það sé talsvert öðruvísi

að vera úr sveit, og hún hafi verið enn

ólíkari borginni þegar ég var að alast

upp. Þegar ég kom til Reykjavíkur tal-

aði ég t.d. allt annað mál en jafnaldrar

•nínir hér.

—  Varstu þá byrjaður að mála?

Kannski ekki að mála, en ég hef allt-

af teiknað og skrifað. Myndirnar voru

oft skreytingar við sögurnar. Ég fór

með handrit til útgefanda þegar ég var

12 ára, en fékk þau svör að „bíðendur

ættu byr, en bráðir andróða".

-  En þú hefur þá ekki hœtt til að bíða

byrjar?

Nei, ég hef alltaf unnið jafnt og þétt,

aldrei orðið neitt verulegt hlé hjá mér.

Það má líkja þessu við bíómynd, ef í

hvern glugga filmunnar er sett málverk

eða teikning. Það er alltaf um framhald

að ræða þó svo að það séu hægir og

hraðir kaflar í myndinni.

-  Myndlistarskólinn hefur þá auðveld-

lega fallið inn í þá mynd?

Já, það má segja það. Margir töluðu

þó um prestinn, og ég veit ekki hvort ég

var svo fráhverfur því, þ.e.a.s. ef hug-

urinn hefði ekki þróast svona eins og

hann gerði. Ég held að ættingjum hafi

fundist ég eitthvað prestslegur, mest

vegna tilsvara sem ég hafði gefið í

æsku.

-  Ertu trúarlegur í list þinni?

Já, ég tel það.

-  Trúarlegur í hefðbundinni merkingu?

Ég veit það ekki, en huglægt séð þá

held ég það. Ég held að listin eigi sitt

fegurðarríki, framtíðarríki. Ég vil að

myndirnar mínar skili sömu áhrifum og

maður gæti ímyndað sér að altaristöflur

ættu að gera. Einhvers konar yfirhafn-

ingu.

-   Og þú gœtir hugsað þér að gera

altaristöflu?

Já, ég væri spenntur fyrir því, þó ég

viti ekki hvort kirkjan væri það að sama

skapi. Annars finnst mér hún starfa af

of miklum vana og það sem ég sækist

eftir er huglægt séð líkara sértrúar-

söfnuðum.

— Eru myndlistarmenn þá einhvers kon-

ar sértrúarsöfnuður?

Já, það má segja það. Starfinu fylgir

nokkur einangrun og hefur alltaf gert,

en ég umgengst ekki einungis lista-

menn, reyndar á ég mjög fáa en góða

kunningja úr hópi listamanna. Ég hef

t.d. talsvert samband við fólkið í Dala-

sýslu. Það má eiginlega segja að ég sé

hreinræktaður ungmennafélagssinni,

og ef ég ætti mér einhverja ósk, þá vildi

ég að það gengi einhver sambærileg

bylgja yfir ísland og gamla ungmenna-

félagsbylgjan. Ljótasti löstur fólks

finnst mér vera tillitsleysi og frekja.

—  En hvað segja Dalamenn þá um verk-

in þín?

Það er sterk samkennd með Dala-

mönnum, svo ég býst við að þeir verji

mig ef í harðbakkann slær. En ef ég tala

í alvöru, þá hugsa ég að þeir séu ekkert

yfirmáta hrifnir af öllu því sem ég geri.

En t.d. málaði ég rollu í hitteðfyrra á

Hafursstöðum, sem Inna á Breiða

fannst svo falleg að ég gaf honum hana.

Fólkið þar, á Breiðabólsstað, finnst

mér reyndar eitt besta dæmið um gott

fólk, sem ég veit um.

—  Þú sagðir mér einhvern tíma á gömlu

Borginni að þú hefðir mœtt andstöðu

meðal kolleganna með fyrstu sýningam-

ar þínar?

Þú gerir nú kannski dálítið stórt úr

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV