BREF FRA EINMANA fór aftur út í kvöld og hitti eingan en fann á mér að eitthvað mundi gerast og það gekk eftir. ég fór framhjá litlu útisundlauginni við gula og bláa húsið nærri hjólbarðaverk- stæðinu þú manst. veður var mjög gott stillt og næstum albjart. og þarna við laugina voru þeir tveir saman hettuklæddir í kuflum að baða krókódíl (amerísk tegund) og skrúbba á honum bakið. hann deplaði tárvotum augunum í sífellu en síðan var einsog honum færi að leiðast þófið því hann beit höfuðið af öðrum þeirra. ég hafði einmitt búist við þessu og dró hægt upp vasabókina og penna og skrifaði til minnis: blaðsíða númer 43. stanislaus fann að hitinn var að verða of mikill fyrir nefið. vaxið farið að nálgast bræðslumark og límið tekið að hlaupa uppí bólur. hann greip sólhjálminn af borðinu og skellti honum á höfuðið. hristi sóda- vatnsflöskuna og lét sprautast úr henni framan í andlit sitt. beið þolinmóður með- an svartur þjónninn þurrkaði af borðinu. teygði sig í riffilinn athugaði miðið og hleypti af inná milli trjánna. magdalena! kallaði hann inní húsið.magdalena! ég hitti......ég lokaði vasabókinni ánægður. hélt áfram og hneppti að mér frakkanum því nú var farið að kula og öll sól horf- in. beygði þrisvar sinnum til vinstri og einusinni til hægri og þá var ég næstum kominn heim aftur og greikkaði sporið því ég mundi altíeinu að ég átti eftir að gera við ruggustólinn. TVILYFT HUS AUTT VIÐ HAF teinréttir steinveggir slípaðir af veðri og vindum þartil yfir lýkur. sjórinn skiptir litum í sífellu. þessa stundina pernod- grænn. síðan bleikur. niðurnídd þvottasnúra í bakgarðinum. til- finníng um formlausa nærveru einhvers. reyni að hugsa ekki um það beina huganum að öðru (gleyma sögunni um froskana sem ryðjast upp slitna stiga gamla kastalans og skilja eftir sig slímrákir). það gustar inn hurð niðri skellur aftur og aftur aftur mér finnst ég sjái bregða fyrir rauðhærðum manni haldandi á vatnsglasi. hann leysist upp og ekkert hefur gerst nema rauðhærður maður hefur haldið á vatnsglasi og kannski var það ekki einusinni glas heldur pappírshnífur og það skiptir líka minnstu. ég er einn. 18