Teningur - 02.12.1985, Blaðsíða 37
uppgötva ekki (í grafík frá Þýskalandi)
aðra trú, heldur teiknimáta - og stund-
um myndbyggingarleiðir. Þeir sjá alls
ekki neitt Sannleikshugarflug Ijóma af
gotnesku formunum; þeir sjá form ...
slitin úr sambandi við guðdóminn. A
sama hátt tæmir sjónvarpið kvikmynd-
irnar af öllu „sannleikshugarflugi",
leysir þær frá uppruna sínum, léttir af
þeim öllu því sem gerir þær einstakar.
Það er líklegt að sjónvarpið hafi lagt sitt
af mörkum til að breyta vitundinni um
fortíð kvikmyndanna sem fæddi af sér
raunverulegan maníerisma, í rétt og
slétt forðabúr af mótífum og mynd-
um sem aftur sé að fæða af sér útþynnt-
an og slappan maníerisma með stæla.
En hér þarf kannski að hefja aðra sögu:
söguna um allsherjarendurhæfingu
kvikmyndanna...
Þór Stefánsson þýddi úr Cahiers de cinéma,
nr 370, apríl 1985.
Björn Birnir
í hvammi
Hún stefndi mér einn morgun
þá sól skein glatt á sjá
og sagði mér að koma
í hvamminn
í hvamminn fyrir norðan á
Hún sagðist eiga gersemar
sem ég ætti að fá
einn ég átti að fá að sjá
í hvammi
í hvamminum fyrir norðan á
Ég setti upp húfu
og skaust í skó
skjótur á fæti í hvamminn smó
í hvammi
í hvamminum var af berjum nóg
Er ég þar einn í berjum óð
og kýldi vömb
í kinnar tróð
í hvammi
í hvamminn kom hún englablóð
Hún kyssti mig og gældi við
ég sæll var þá
og gettu nú
í hvammi
í hvamminum fyrir norðan á
Ég fengi þrjá og flissaði
Einn feitan koss?
Nei! Máski mör?
í hvammi
í hvamminum var á svörin spör
Hún lyfti pilsi og leit mig á
Ó lambið mitt!
Vettlinga þá?
í hvammi
í hvamminum fyrir norðan á
Hún fyrtist við og flaug mér frá
og prestsson fann
Ég felldi tár
í hvammi
í hvamminum fyrir norðan á
En stundum eins og álfur enn
ég arka hér
og heila brýt
í hvammi
Hvað var það sem ég átti að fá
í hvamminum fyrir norðan á?
Ég gat ei getið uppi á
35