Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Teningur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Teningur

						BOÐVAR    BJORNSSON

PYNTINGAMEISTARINN

Um þctta leyti var cg með stelpu sem

hét Hildur. Hún var villtari en and-

skotinn. Pabbi hennar var læknir og

hún var einsog umskiptingur í fjöl-

skyldunni. Kannski var það það sem

ég sá við hana. Hún hékk öllum

stundum með mér og vini mínum

Sigga bláa. Ég vissi að hún hafði

eitthvað verið með Sigga bláa, en ég

hafði nú líka verið með fleirum en

henni. Allavega, ég fílaði hana vel og

það var alltaf nóg af uppákomum í

kringum hana. Og eftir á að hyggja

leitaði ég ákaft í uppákomur þegar ég

var fimmtán ára einsog ég væri að

reyna að sprengja gat á veruleikann

svo ég kæmist út.

Samt hafði ég fullkomið frelsi á

þessum árum. Foreldrar mínir létu

mig alveg í friði, pabbi var oftast

fullur, týndur í einhverjum fantasíum

um betra líf í Ameríku og ég veit ekki

hvað og mamma upptekin af krakka-

skaranum og vinnunni.

Við bjuggum í kjallaraíbúð og ég

hafði eigið herbcrgi, einn systkin-

anna. Það hvíldi alltaf einhver óraun-

veruleiki yfir heimilinu. Stundum var

hann hlýr einsog bjarminn af gamalli

amerískri kvikmynd, þegar við sátum

öll saman í myrkvaðri stofunni með

kók og sælgæti og horfðum á sjón-

varpið og hlustuðum á draumkennt

rausið í pabba. En stundum var hann

líka kaldur óraunveruleikinn. Ég vissi

að það var pabbi sem stóð fyrir þessu.

Það var einsog hann hcfði drauma

allra og vonbrigði í blóðinu og þegar

hann talaði liðu fantasíurnar einsog

brennivínsþefur   um   alla   íbúð.   Ég

held að við höfum öll verið háð fanta-

síunum einsog hann brennivíninu. Eg

hefði ekki viljað aðra foreldra.

Skólinn minn var nýr og kaldur eins-

og skurðstofa. Allt var svo bjart og

öllu svo haganlega fyrir komið. Stund-

um þegar ég kom inní skólann á

morgnana úr köldu vetrarmyrkrinu

fannst mér ég vera að stíga inní upp-

ljómaðan veruleikann. Ég átti aldrei

almennilega heima þarna inni. Ég

vildi mæta betur en ég gerði og ég

vildi standa mig betur og forðast þessi

eilífu vandræði, en það var einsog ég

sæti ekki við stjórnvölinn sjálfur og

ég kom mér í eilíf vandræði, alveg

einsog þennan dag þegar eitthvað fór

af stað sem ég skildi ekki fyrr en

löngu síðar.

Auðvitað er það bara haldlaus álykt-

un mín að þetta hafi byrjað þennan

dag, því einsog ég komst að síðar, þá

er gat á veruleikanum sem gcrir hugs-

un okkar marklausa. En hvað um það,

ég verð að standa á einhverju og

þennan dag hékk ég fyrir utan skól-

ann og reykti með Sigga bláa. Við

höfðum verið reknir úr tíma í sögu

fyrir saklaus fíflalæti og auk þess

hafði ég svekkt kennarann með snubb-

óttu svari þegar ég var beðinn um að

lýsa samskiptum Karþagó og Rómar.

Eg hafði svarað: „Karþagó fór þrisvar

í stríð við Róm og Róm vann alltaf."

Nú héngum við fyrir utan skólann

stoltir af sjálfum okkur fyrir lætin og

ég var spenntur og vildi meira.

Kemur þá ekki lítill dökkhærður

strákur og ætlar inní skólann og bara

til að gera eitthvað geng ég í veg fyrir

hann og segi:  „Er ég eitthvað fyrir

þér?"

„Nei, nei," segir strákurinn einsog

auli.

„Ef þú ætlar hér inn vinur þá verð-

urðu að segja mér hvað þú heitir. Eða

heitirðu kannski ekki neitt?"

„Ég heiti Palli," segir strákurinn

vandræðalega og ég greini hræðslu-

glampa í augunum á honum þegar

hann lítur snöggt á mig.

„Þú lítur nú ekki út fyrir að heita

neitt, en afþvíað þú getur logið því að

þú heitir Palli, þá færðu að fara inn."

Hann gekk framhjá mér og inní

skólann og leit ekki við.

„Hvaða ræfill var nú þetta!" sagði

Siggi blái og hló.

„Nóboddí," sagði ég og skaut síga-

rettustubbnum í rúðuna á dyrum

skólans.

Án þess að ég væri mikið að pæla í

því þá tók ég samt eftir að þessi Palli

forðaðist mig uppfrá þessu - og að

það veitti mér einhverja undarlega

spennu og vellíðan. Svo áður en ég

vissi af var ég farinn að slá í bakið á

honum og segja „hæ!" þegar hann

varð á vegi mínum. Bara svona til að

minna á mig. En þetta var ekkert

mál, bara stælar og skemmtun.

Svo var það nokkrum vikum eftir

atvikið við innganginn að Hildur var

með meiriháttar partí heima hjá sér.

Við Siggi blái mættum uppúr klukkan

níu klyfjaðir búsi og svo var Siggi

með eitthvað af stuði.

íbúðin var troðin af krökkum og ég

kallaði í nokkra kunningja og við

fórum inní hjónaherbergið og Siggi

i

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV