Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Teningur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Teningur

						kennslustofunni, þá sneri hann sér að

mér og sagði: „Bíddu hér." Hann

bankaði á dyrnar og gekk inn. Þegar

hann kom út var Palli í fylgd með

honum.

„Ég læt þig um þetta Grétar."

Hann gekk burt eftir ganginum. Palli

stóð andspænis mér. Það var undar-

lega létt yfir honum. Hann minnti

mig á saklausan auðtrúa krakka.

„Ég bið þig fyrirgefningar á þessu,"

sagði ég og rétti fram höndina.

Hann tók í höndina á mér og hönd

hans var þurr og hlý. Hönd mín var

köld og rök. Ég bætti við í flýti: „Ég

meinti ekkert með þessu. Ég bið þig

afsökunar á þessu."

„Alltílagi," sagði hann lágt og

brosti, og það hafði undarlega róandi

áhrif á mig.

„Ókei?" sagði ég svo og kinkaði

kolli og flýtti mér burt.

Eg fór út og fékk mér sígarettu cn

þá hvolfdist þreytan yfir mig og ég

hefði getað sofnað standandi á

staðnum.

Þegar ég kom heim undir kvöld, sat

pabbi að drykkju með einhverjum

ræflum. Ég var ekki í skapi til að tala

við neinn og ætlaði beint inní her-

bergið mitt. Pabbi sá mig þegar ég

gekk framhjá stofunni og kallaði:

„Komdu hérna og talaðu við föður

þinn einsog skot!"

Ég heyrði að kjallinn var vel fullur

og þetta Ieikrit hans fór í taugarnar á

mér. Ég henti skólatöskunni upp að

veggnum á ganginum og gekk inní

stofuna. Kallinn var ekki með neina

tæpitungu frekar en endranær. Ég var

ekki fyrr kominn inní stofuna en

hann kom sér beint að efninu.

„Er það rétt að þú hafir verið að

berja eitthvert hommagrey í skólan-

um?" Pað var ekki laust við að kall-

inn væri stoltur þegar hann sagði

þetta. „Það var hringt úr skólanum í

dag og kennarinn þinn sagði að þú

hefðir verið að berja einhvern aum-

ingja."

Ég vissi að Baldur hefði aldrei orð-

að þetta svona. Baldur hafði eflaust

sagt að ég hefði kallað strákinn

homma og pabbi síðan strax fært

þetta í stílinn.

„Ég barði hann nú aldrei neitt,"

sagði ég og fann strax að hann var

ekkert að hlusta.

„Það er kannski best að taka þig úr

þessum skóla," hélt kallinn áfram.

„Islenskir skólar kunna ekki að ala

upp stráka. Það þarf að senda þig til

Bandaríkjanna. Ég vil að þú farir í

herskólann í Key West, besta her-

skóla í hcimi. Þeir eru harðir þar en

þeir útskrifa líka karlmenn. En pass-

aðu þig á liðsforingjunum. Þeir eru

allir öfugir. Það mikið veit ég síðan

ég vann á Vellinum." Pabbi skellihló

og kallarnir líka.

„Er ckki ráð að scnda strákinn til

USA?" spurði pabbi og sneri sér að

köllunum.

„Head Wcst!" sagði cinn þcirra, og

sló hcndinni fram til áréttingar. Þeir

skellihlógu.

„Ég þekki menn, bæði hér á Vell-

inum og í Bandaríkjunum," sagði

pabbi. „Allt stórvinir mínir og valda-

meiri en þeir vilja láta uppskátt, þið

skiljið. Eitt orð frá mér og þeir kippa

í strengi og þú ert sestur á skólabekk

í bcsta herskóla í heimi." Hann skellti

í góm og fékk sér sopa.

Ég var búinn að hcyra þetta Kcy

West herskólakjaftæði þúsund sinn-

um og nú fór það í taugarnar á mcr.

Ég fékk mér sígarettu og kók og sat

hjá pabba og köllunum smástund og

fór svo inn til mín og læsti að mér og

steinsofnaði.

Ég mætti ckki í skólann næstu tvo

daga. Ég var svo þunglyndur að ég

gat varla staðið í fæturna. Eg bara

svaf og svaf. Mamma tilkynnti mig

veikan og sagði að ég væri með

flensu. Á þriðja degi fór ég í skólann.

Það var föstudagur og skólaball um

kvöldið. Ég fór heim til Sigga bláa

eftir kvöldmat og við blönduðum

okkur í pípu. Siggi var með nokkrar

eldgamlar Jimi Hendrix plötur og við

hlustuðum á þær og kjöftuðum. Tím-

inn leið undarlega þetta kvöld. Fyrst

þcgar cg leit á klukkuna var hún

fimm mínútur yfir tíu og mér fannst

ég hafa setið marga klukkutíma hjá

Sigga. Næst þegar ég leit á klukkuna

var hún hálf eitt og mér fannst vera

svona hálftími frá því hún var fimm

mínútur yfir tíu. Ballið var bara til

eitt svo það var útúr myndinni, en við

ákváðum að fara samt og vera fyrir

utan þegar hlcypt yrði út.

Við komum að skólanum uppúr citt

og það var troðið fyrir utan og allir að

leita að partíi. Hildur var þarna og ég

sá ekki bctur en hún væri komin með

gæja. Ég ráfaði um og var með pcla

með vodka og kók sem ég saup öðru-

iíÍÉ

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV