Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Teningur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Teningur

						PYNTINGAMEISTARINN

hvoru á til að eyða munnþurrkinum

eftir reykingarnar. Svo kom ég auga á

Palla og ég herti upp hugann og gekk

til hans. Ég var í vandræðum með

hvað ég ætti að segja, en svo bara

hrökk það útúr mér:

„Hæ," sagði ég, og rétti honum pel-

ann. „Þetta er vodki og kók."

Palli var dálítið óöruggur fyrst, en

fékk sér svo sopa og það rösklega. Ég

spjallaði við hann og hann tók því svo

vel að ég var undrandi.

Þegar hann talaði fangaði hann at-

hygli mína svo gersamlega og ég

þurfti ekki einusinni að skilja orðin.

Ég bara stóð þarna og horfði og hlust-

aði á Palla einsog hann væri spenn-

andi kvikmynd.

„Komdu. Ég þarf að sýna þér sold-

ið," sagði ég loks, og benti Palla á að

fylgja mér.

Við gengum meðfram skólanum.

Bara að ganga við hliðina á Palla

nægði til að mér leið vel.

Við fórum fyrir hornið á skólanum

og ég benti Palla á að fylgja mér inní

lítið tveggja metra hátt þaklaust virki

sem upphaflega átti að vera ösku-

tunnugeymsla, en var óspart notað

sem úti-reykstofa. Ég hallaði mér að

veggnum og dró upp hasspípuna

mína. Palli stóð andspænis mér for-

vitinn uppfyrir haus einsog krakki.

„Viltu í pípu?" spurði ég, og brosti

án þess að hafa ætlað mér það.

Palli hristi hausinn. „Nei. Ég reyki

ekki cinusinni sígarettur." Hann rétti

fram höndina. „Má ég aðeins sjá?"

Ég rétti honum pípuna.

„Þetta er sílúm," sagði ég. „Svona

hasspípur heita sílúm."

Palli handlék pípuna einsog hún

væri dýrgripur.

„Ég skírði þessa," hélt ég áfram.

„Þegar ég er dán, þá heitir hún Dr.

Troublekiller en þegar ég er hress þá

heitir hún Dr. Feelgood."

Palli hló og ég var ánægður yfir því

að hafa komið honum til að hlæja.

„Hvað heitir hún núna?" spurði

Palli.

„Ég veit það ekki," sagði ég og við

hlógum og ég vissi að nú var Palli orð-

inn vinur minn.

Ég dró svart filmubox uppúr vas-

anum og Palli rétti mér pípuna. Eg

hellti hassblöndunni úr boxinu í píp-

una og þjappaði.

„Ertu alveg viss um að þú viljir

ekki smá?"

„Já. Ég get ekki reykt. Ég myndi

bara hósta."

Ég fýraði í pípunni og rétti Palla

pelann. Hann fékk sér nokkra sopa.

Ég fékk mér smásopa til að eyða

þurrkinum í munninum.

Eg var svo skakkur að allt umhverfis

mig iðaði einsog hlaup. Palli stóð

andspænis mér og ég fann vodkaþef-

inn af andardrætti hans. Ég tók um

axlirnar á honum og færði hann undr-

andi uppað veggnum. Svo tók ég

utanum hann og kyssti hann á munn-

inn og tungan dansaði inní munnin-

um á honum einsog fiðrildi. Ég fann

að þetta var í fyrsta sinn sem ég var í

raunverulegum faðmlögum og mér

varð ljóst að ég myndi aldrei vilja

sleppa þessu taki. Eg hætti að hugsa.

Þá fann ég að Palli ýtti á axlirnar á

mér og ég kom til sjálfs mín, herti

takið utanum hann og kyssti hann

einsog óður um allt andlit. Hann

byrjaði að berjast um og ég lét hann

lausan. Hann starði á mig og ég varð

hræddur þegar ég sá undrunar- og ótta-

svipinn á andliti hans. Það var einsog

hann hefði sett upp grímu til að

hræða mig og andartak langaði mig til

að teygja höndina fram og rífa af

honum grímuna. Hann bara stóð

þarna og horfði á mig og sagði ekki

orð og ég fór allur að skjálfa einsog

mér væri ískalt og ég réð ekkert við

mig svo að ég settist uppvið vegginn.

B

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV