Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Teningur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Teningur

						Palli færði sig frá og ég var svo sann-

færður um að hann væri að fara að ég

fylltist örvæntingu og endurtók í

sífellu: „Bíddu aðeins! Ekki fara!

Ekki fara!"

Mér fannst einsog það rynnu enda-

laust strimlar útúr munninum á mér

sem á stóð: Ekki fara!

Palli stóð yfir mér og sagði lágt:

„Ertu hommi?"

Ég skildi hann ekki, en mér brá

hrikalega. Hommi, er ég hommi...?

Er ég einsog...?

Ég stóð óstyrkur á fætur og ég

þekkti ekki sjálfan mig þegar ég grát-

bað: „Leyfðu mér bara að halda aðeins

utanum þig. Ég geri ekki..."

Ég tók utanum Palla og við stóðum

hreyfingarlausir ég veit ekki hvað

lengi. Hvert andartak dældi inní mig

ofgnótt af vellíðan. Ég vissi ekki hvað

ég átti að gera við alla þessa vellíðan.

Ég hvíslaði: „Ég elska þig. Ég elska

þig," og orðin bara runnu uppúr mér

án þess að ég gæti stoppað þau. Loks

kyssti ég hann á hálsinn og hann

hreyfði sig ekki. Þá kyssti ég hann á

kinnina og hann vék höfðinu undan

og reif sig hægt lausan og gekk burt

án þess að líta á mig. Þegar ég horfði

á eftir Palla hélt ég niðri í mér öllum

hugsunum líkt og þegar ég held niðri

í mér andanum þegar ég kafa. Þegar

Palli var kominn úr augsýn var ég við

það að kafna og hugsanirnar flugu

trylltar um í höfðinu á mér einsog

vanskapaðar hvítar leðurblökur:

„Hvað, kann hommatitturinn að lesa

eða..." „Er það rétt að þú hafir verið

að berja eitthvert hommagrey í skól-

anum?" „Ég ætla að láta þig vita að

Páll er fullkomlega eðlilegur dreng-

ur."

Ég settist uppvið vegginn og fékk

mér sopa af pelanum. Vínið var alger-

lega bragðlaust. Hvernig sem ég

reyndi gat ég ekki losnað við Palla

sem þrammaði um inni í hausnum á

mér einsog pyntingameistari. Ég var

allur dofinn og ískaldur. Eg þrýsti

augunum aftur til að fá aðra tilfinn-

ingu. Þegar ég opnaði augun var eins-

og ég væri staddur á annarri plánetu.

Ég sá skólann rísa fyrir framan mig

og hann var mér framandi einsog hann

tilheyrði annarri vídd. Ég fann að allt

umhverfið var mér fjandsamlegt: það

var einsog einhver væri að mata mig á

martröðum.

Ég sá í huga mér Palla segja Hildi

og Sigga bláa og öllum hópnum frá

því sem gerst hafði og ég sá þau

storma í áttina til mín.

Ég vildi standa upp og flýja cn ég

gat það ekki. Ég þorði ekki einusinni

að hreyfa puttana. Hvcrt átti ég líka

að fara? Ég þekkti engan hér.

Skyndilcga laust þeirri hugsun nið-

urí mig að Palli væri kominn og hann

kraup fyrir framan mig og höfuðið á

honum var einsog stór bolti. Ég tók

utanum höfuðið og sneri því hægt í

hringi á hálsinum einsog þegar ég

leita að landi á hnattlíkani en hvergi

var augu né munn að finna!

Ég bara sat þarna stjarfur og allt

sem ég þekkti og vissi hvarf inní kalt

gin myrkursins einsog það hefði rifn-

að djöfullegt gat á veruleikann stærra

en veruleikinn sjálfur.

B

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV