Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Teningur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Teningur

						ÞORSTEINN    GYLFASON

SKALDSKAPUR OG

SANNLEIKUR

I

Sannleikskenningin

Það er afar algeng hugmynd um

skáldskap að honum sé ætlað að láta

einhvern sannleika í ljósi. En það

getur ekki verið neinn venjulegur

sannleikur því að oftast nær er skáld-

skapur einmitt skáldskapur, það er að

segja tilbúningur eða uppspuni. Og til-

búningur eða uppspuni er auðvitað

ósannur. Vilmundur Jónsson hefur

þessa kenningu eftir Halldóri Lax-

ness: „allur skáldskapur er fyrst og

fremst blekking og að jafnaði því

betri skáldskapur, því fullkomnari

sem blekkingin er."1 Af þessum sök-

um hafa þeir sem trúa á sannleikann í

skáldskap orðið að búa sér til aðra

sannleikshugmynd en hina venjulegu

og trúa þá á tvenns konar sannleika,

skáldlegan sannleika annarsvegar og •

hversdagslegan sannleika hins vegar.

Þá er oftar en ekki talið að skáldlegi

sannleikurinn sé í einhverjum skiln-

ingi æðri eða meiri en hinn hversdags-

legi. Og aðrir andmæla eins og Archi-

bald MacLeish, skáldið ameríska sem

frægast er á Islandi fyrir að hafa lagt

til einkunnarorðin að Tímanum og

vatninu, gerir í fyrirlestri sínum

„Skáldið og blaðamaðurinn".2 Stund-

um er skáldlegur sannleikur gerður

að andstæðu vísindalegs sannleika,

og menn flytja innblásnar ræður um

skáldskap og vísindi sem andstæður í

andlegu lífi og búi hvor um sig við

sinn sannleika. Ég minnist frægrar

enskrar ritdeilu um vísindi og bók-

menntir og þann sannleika sem eigna

megi hvoru um sig. Þar áttust þeir við

lífefnafræðingurinn Peter Medawar

og gagnrýnandinn John Holloway.3 í

fæstum orðum er sannleikskenningin

um skáldskap og jafnvel alla list ein af

heldri kenningum fagurfræðinnar fyrr

og síðar.

Þess má geta til fróðleiks að alveg

sambærileg sannleikskenning er til

um trú: þá eru trúarleg sannindi gerð

eðlisólík til að mynda vísindalcgum

sannindum, þannig að kraftaverkasög-

ur guðspjallanna eða sjálf píslarsagan

geti verið trúarlega sannar þótt þær

séu vísindalega eða sagnfræðilega

ósannar. Bróðurparturinn af guð-

fræði þessarar aldar gengur út á þessa

tvíhyggju eða tvöfeldni um sannleik-

ann.

II

Kenning Aristótelesar

Sannleikskenningin um skáldskap

er rakin til Aristótelesar eins og fleira

í menntum og vísindum okkar Vest-

urlandabúa. Um það má lesa fræga

málsgrein í skáldskaparfræði hans

Um skáldskaparlistina 1451b5-ll:

Af þcim sökum er skáldskapurinn heim-

spekilegri (vísindalegri) og æöri en öll

sagnfræði, en skáldskapurinn tjáir frcm-

ur hið almenna, sagnfræði hið cinstaka.

Hið almenna er það sem ákveðin mann-

tegund er líkleg til cða hlýtur að segja

eða gera, en það vill skáldskaparlistin

tjá, þótt persónunum séu valin sérstök

nöfn. Hið einstaka er það, sem til dæmis

Alkíbíades gerði eða varð fyrir.4

Með hugmyndinni um skáldlegan

sannleika, sem væri meira að segja

æðri en venjuleg söguleg sannindi,

mætti líta svo á að Aristóteles sé hér

að gera enn eina uppreisnina gegn

kennara sínum Platóni sem var á móti

skáldskap eins og menn vita af því að

hann trúði því eins og Halldór Lax-

ness að skáldskapur væri lygimál,

blekking.

Það virðist liggja í orðum Aristó-

telesar eins og þau eru oftast þýdd að

skáldskapur flytji okkur almenn sann-

indi um mannfólkið, nánar tiltekið

um manntegundir: svona er hetja,

svona er kokkáll, svona er skass. Og

af þessum tegundarlýsingum megi

læra miklu meira af sannindum um

manncskjurnar en til dæmis af ráð-

vandlega skrifaðri ævisögu einhvers

einstaklings sem þarf ekki að vera

neinum manni líkur.

Nú virðist mér sá galli vera á

orðum Aristótelesar ef við skiljum

hann svona að það sem hann segir er

augljóslega rangt. Það er að vísu til sú

tegund bókmennta sem gengur út á

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV