JON EGILL DYRMÆTUR ENGILL Þetta er afskaplcga dýrmætur engill heyri cg einhversstaðar sagt en fallega konan er inná klósetti og þetta hálffulla eftirmiðdagssamkvæmi gæti farið að leysast upp ég rölti með hæfilega brosmildum viðkomum útað risastórum stofuglugga hér uppá efstuhæð pastellituð hýbýli og einhvernveginn ekkert sem má snerta fallega konan fær sér bleikan drykk við grænblá augu og hvít brjóst handan við glerið er glær kvoðukennd og löturhæg hreyfing þykkni af gráum himni tíma og húsum á tungunni sætt og hvítt vín og syfjuleg tónlist og suðið í fólki og hef í svipinn misst sjónar á sjálfum mér þarna inni og þegar einhver hefur brotið dýrmætan postulínsengil fer fólkið að tínast út svo þetta hálffulla eftirmiðdagssamkvæmi er að Ieysast upp það er opið inná klósett og þarna er ég þá í speglinum E