Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Teningur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Teningur

						KGH: Þetta er sjónræn upplifun með

frásagnarlegum undirtón. Og úr því

að við erum að tala um flúxus, þá er

það kannski það sem skilur á milli.

Ég held að oft hafi flúxararnir lítið

hugsað um sjónrænt yfirbragð. En

mér finnst þó hið sjónræna ekki nóg,

ég get ekki bara raðað saman ein-

hverju sem kemur vel út myndrænt

séð, eins og til dæmis gluggaútstilling.

Ég vil að það skapist einhver tilfinn-

ing og verkið fyllist af einhverju lífi.

EP: Er stíll efniviður hjá þér?

KGH: Kannski á vissan hátt, en ég

forðast beinar stíltilvitnanir. Ég vil

ekki gera verk þar sem einn hlutinn

er dæmigert flúxusstílbrigði og annar

hlutinn er dæmigert geometrískt stíl-

brigði og þriðji hlutinn dæmigert

konseptualstílbrigði og fjórði hlutinn

er dæmigert poppstílbrigði. Ég vil

nota viðeigandi vinnubrögð og hugs-

anagang þar sem það á við.

SAMHENGIÐ I VERKUNUM

EP: En það sem ég var að fara er að

það eru til svo margir dæmigerðir

Kiddar, geometrískur Kiddi og síðan

landslags Kiddi, það eru þínir eigin

stílar sem þú blandar saman.

HÞF: Það má yfirleitt sjá að verkin

eru eftir sama manninn. Hvað er það

sem tengir þau saman, ekki er það lit-

ur eða eitthvað svoleiðis, er það þá

einhvers konar frásagnargildi eða ein-

hver tilfinning? Það er persónulegt

yfirbragð yfir verkunum hvort sem

þau eru málverk, performans eða eitt-

hvað annað.

KGH: Eg hef unnið mjög ólík verk á

rúmlega tíu ára starfsferli, farið frá

einum hlut til annars, stokkið frá

þúfu til þúfu. Tilfinningin hefur teymt

mig áfram og það stundum hraðar en

ég hef ráðið við og stefnan gengið

þvert á skynsemina og rökin. Þetta

hefur oft verið mjög erfitt og sú til-

1982 Gouache og bílalakk ú pappír. Hœð u.þ.b. 50 .

finning fylgt að allt sé að renna frá

mér og það í allar áttir, maður sitji

bara eftir tómur. En mér finnst ég

vera einhvern veginn að verða meðvit-

aðri, hugsunin að skýrast og vinnan

markvissari.

EP: Beitirðu sömu aðferðinni þó þú

notir mismunandi efni, sömu aðferð

þegar þú til dæmis býrð til ljóð eða

performans?

KGH: Ég hef gert það, ég hef til

dæmis unnið ljóð og málverk á sam-

bærilegan hátt. Ljóðin í bókinni sem

ég gaf út 1986 eru hálfgerðar hentur.

Ég tók búta úr prentuðum texta og

raðaði saman á nýjan hátt og vatt svo

uppá setningarnar. Aðferðín er sam-

bærileg og í málverkunum sem ég

málaði á svipuðum tíma. Ég málaði

eftir ljósmyndum og öðru úr blöðum,

til dæmis bröndurum, teiknimyndasög-

um eða línuriti um fiskútflutning,

sem varð þá kannski að abstrakt

mynd, málaði kannski nokkrar mynd-

ir hverja ofaní aðra og tuskaði þær

jafnframt eitthvað til.

EP: En hvernig sérðu samhengi

verka þinna. Vinnurðu sérstaklega

sýningar, raðarðu myndunum á fyrir-

fram ákveðinn hátt?

KGH: Nei, ég vinn yfirleitt ekki sér-

staklega fyrir sýningar. Þegar ég er

kominn vel af stað með eitthvað, þá

fer ég að huga að sýningu. Ef mér

finnst vanta upp í sýningarrýmið, geri

ég kannski tvö, þrjú verk til þess að

það myndist samhengi, góð heild.

EP: En eftir á þá man maður verkin

sem sýningar, en spilar rýmið líka

inní verkin?

KGH: Ég vinn tiltölulega lítið með

rými held ég, ekki einu sinni í skúlp-

túrunum. Þó er mér alls ekki sama

hvar ég sýni verkin.

EP: Þú vinnur ekki marga perform-

ansa, eru þeir jafn mikilvægir og heil

sýning eða eru þeir eins og eitt verk í

sýningu?

KGH: Ég aðgreini ekki performans-

ana frá öðrum verkum. Eg segi ekki

myndlistin er hér og performansarnir

B

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV