MYNDLIS' sérvitringur cða finna til minni sam- kenndar við aðra listamenn? - Ja. I upphafi ferilsins þjappa listamenn sér gjarnan í hópa utan um ákveðnar skoðanir eða mynda sýningarhópa. Þeir sækja styrk í hópinn. En svo kemur þörfin fyrir að þróa sitt og halda dálítið sína leið. Þetta er senni- lega að gerast hjá mér. HÞF: En er það kannski rétt að það séu að verða minni hlaup í hinar og þessar áttir hjá þér, það er orðið meira útlitslegt samband milli hlut- anna? KGH: Ég efast um það hvað hið út- litslega varðar. Á síðustu sýningu minni voru útlitslega mjög ólík verk. Þar voru meðal annars stór raunsæ málverk máluð eftir Ijósmyndum og lítil verk unnin úr Hmbandi og stimpl- uðum texta. Pannig að útlitslega og formrænt séð hafa verkin aldrei verið ólíkari innbyrðis. HÞF: Pabbi þinn var einhvers konar farandverkstjóri, fjölskylda þín var á ferð út um allar trissur. Er þetta ferðalag þar sem hlutir eru hirtir og galleríið sá staður þar sem þeir eru skildir eftir? Þá á ég við að upplifun ferðalagsins sé einhvers konar tínsla og svo er það sem þú skilur frá þér það sem þú sýnir í galleríinu? KGH: Já það má kannski frekar segja að það hafi verið þannig. HÞF: Þegar þú talaðir áðan þá kom upp í huga mér, sem er nú eiginlega það síðasta sem mér hefði dottið í hug, Sigmar Polke, þú sagðir raunsæ mynd, og svo límdi ég texta og eitt- hvað svona", er eitthvað til í því? KGH: Hann er kannski sá nýmálari sem ég varð fyrir mestum áhrifum frá. í hans verkum sérðu oft í einu og sama málverkinu nokkrar myndir mál- aðar eftir ljósmyndum, svo er abstrakt mynd í bakgrunninum. Undir kraumar dulinn hugsanagangur í ætt við hugmyndlist, en popplistarandi svífur einhvers staðar yfir. HÞF: Vegna þess að Erró er íslensk- ur spyr ég hvort það sé einhver sam- leið hjá þér og samklippum hans, en kollasar hans eiga einhvað upphaf í flúxus ef ég þekki það rétt og líka súrrealisma og poppi? KGH: Ég verð að viðurkenna það að hann hefur aldrei haft nein áhrif á mig. Eg reyni að skapa ljóðræn tengsl sem eru oftast mjög óljós og erfitt að grípa. Hjá Erró er þetta allt miklu augljósara, tengslin stundum dálítið grunn og ekki mjög andleg". Mér finnst hann samt ágætur listamaður í hófi. Frá sýningu í Nýiistasafninu 1988. 1988. Viður, gifs, gler, steypa, ryk, olíulitur og útsaumur. 168x120x15 cm. EP: Það eru kannski einhver tengsl í vinnuaðferðinni? KGH: Já, kannski stundum þegar ég nota efni úr fjölmiðlum, texta, blaða- ljósmyndum og þvíumlíkt. Erró safn- ar myndum, en hann virðist ekki vera í persónulegum tengslum við þær. HÞF: Finnst þér þú vera kominn á ein- hvern ákveðinn stað þar sem þú getur staldrað við? KGH: Já, það finnst mér. Staðurinn afmarkast ekki síður af því sem ég vil ekki. Ætli ég sé ekki kominn á mína þúfu, eins og Guðbergur kallar það. EP: Þér finnst þú samt vera að víkka út um leið? KGH: Já, það er kannski hægt að orða það sem svo að ég sé kominn á þessa tilteknu þúfu en reyni að víkka rammann út frá henni í allar áttir. EP: Er einhver uppáhaldssýning? KGH: Mér dettur sýningin í Ásmund- arsal fyrst í hug, en þó vil ég helst ekki mismuna sýningum og verkum. Ifl