Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Teningur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Teningur

						BRUCE    CHATW

TVÆR SOGUR

Kristján Kristjánsson íslenskaði

ASSUNTA

Saga

Hvað er ég að gera hérna? Ég kúldr-

ast á sjúkrabeði á ríkisspítala og bíð

og vona að kölduflogin og hitasóttin

sem hafa heltekið mig í þrjá mánuði

reynist vera malaría - þó að þeir hafi

ekki fundið eina einustu bakteríu

eftir ítrekaðar blóðprufur. Ég er

búinn að vera á kínínkúr í þrettán

stundir - og hitinn virðist fara lækk-

andi. Ég þukla eyrun. Þau eru köld.

Ég strýk nefbroddinn. Hann er kald-

ur. Ég legg lófann á ennið. Það er

kalt. Ég þukla við nárann. Ekki svo

slæmt. Hitinn rýkur upp af eftirvænt-

ingunni einni saman.

Inn á stofuna gengur sú manneskja

sem ég dáist mest að á þessari deild.

Það er Assunta, konan sem skúrar og

lagar teið.

Hún er frá Palermó og giftist Eng-

lendingi. Það er frekar af manngæsku

en launanna vegna sem hún vinnur

hérna. Það kætir mig óumræðilega að

sjá Assuntu því nærvera hennar fyllir

stofuna suðrænum yl.

Hún er komin til að skúra gólfið.

„Drottinn minn dýri!" segir hún.

„Snákurinn!... Dóttir mín, hún fara

til lögreglunnar útaf snákinum."

„Hvaða snák?"

„Puppet."

„Puppet?"

„Nei. Nei. Poppet."

„Assunta mín, um hvað ertu að

tala?"

Hún dregur djúpt andann og held-

ur áfram, talar í stuttum hikandi setn-

ingum:

„Herra Bruce... Það er þessi ná-

granni minn... Hún er vond kona...

Börnin mín leika sér í garðinum

hennar og hún æpir, „Börnin þín hafa

alltof hátt. Hafðu þau inni"... Hún

trúa ekki á Guð eða neitt... Hún fara

í tvær fóstureyðingar... Hún elskar

bara dýr... Hún eiga hund... Hún

eiga kött... Hún eiga kanínur... og

hún eiga Poppet..."

„Snákinn?"

„Svo hún banka hjá mér og hún

segir: „Hefur þú séð Poppet? Hún

slapp úr búrinu sínu..." „Nei, égekki

sjá... Þú leita sjálf að Poppet..." Ég

loka gluggum... Ég loka dyrum... Ég

segi við börnin, þið ekki leika í garð-

inum fyrr en hún finna Poppet...

Hún ekki finna Poppet... Hvergi!

Síðan ég þurfa fara út í garðskúr að

sækja eitthvað... Heyrist þetta voða-

lega hljóð, „Sssssl... Ghrr\

Sssssl.." Ég skelli hurðinni... Ég

kalla, „Hún Poppet þín er í skúrnum

mínum!" Hún koma yfir... Hún opna

dyrnar... Og þessi snákur stökkva

út... Og vefur sig utan um hana,

fimm sinnum, sex sinnum... Og

sleikja hana alla í framan...

„Hvað er hann stór þessi snákur?"

„STÓR!" segir Assunta. „Eins stór

og þessi stofa..."

Hún sveiflar skrúbbinum í kringum

sig, bendir horn í horn. Snákurinn

sem hér um ræðir hlýtur að vera sjö

metra löng pýtonslanga eða risakyrki-

slanga.

„Og hausinn!" segir hún. Hún gef-

ur til kynna með höndunum eitthvað

sem er álíka stórt og melóna. „Og

hræðileg rauð augu! Svo hún spyrja,

„Má ég fara með Poppet í gegnum

húsið?..." „Nei," sagði ég. „Þú fara

yfir girðinguna.""

„Þú hefðir átt að fara til lögregl-

unnar fyrir löngu."

„Og litlu börnin sem leika sér út á

götu!... Englendingar eru brjálað-

ir... Núna banka hún á dyrnar hjá

mér. Hún segir, „Hún Poppet mín

bráðum eiga barn"... Hún borga

sautján pund fyrir sæðingu... And-

styggilegt... Dóttir mín, hún fara til

lögreglunnar.

1988

m

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV