Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Teningur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Teningur

						MYNDLIS'

ÞORVALDUR    ÞORSTEINSSON

„VELGENGNIN ER GOÐ"

FJÓRIR AMERÍSKIR LISTAMENN

Á stuttum en einstæðum ferli sínum i

Evrópu virðist myndlistarhópurinn

„Fjórir amerískir listamenn" (Four

American Artists) hafa fundið hent-

ugustu leiðina í gegnum frumskóg

listmarkaðarins. Á sama tíma og

aðrir listamenn verða að láta sér

nægja þrönga troðninga á leið sinni til

frægðar og frama, virðist þessi sam-

heldni hópur hafa verið fær um að

leggja eigin hraðbrautir - og nota

þær.

Þorvaldur Þorsteinsson hitti Fjóra

ameríska listamenn í Amersterdam.

William Hall: Árið 1987 barst okkur

fjórum boð frá listhúsi í Mílanó á

ítalíu um að sýna þar saman og titill

sýningarinnar átti að verða „Fjórir

amerískir listamenn". Við höfðum á

þessum tíma öll verið með einkasýn-

ingar í Bandaríkjunum og vissum

hvort af öðru en þegar þessi ágæta

hugmynd kom upp í hendurnar á

okkur fannst okkur spennandi að

gera svolítið mcira úr henni og efna

til fleiri sameiginlegra sýninga í

Evrópu undir þessu sama heiti. Við

fengum góða kynningu í Mílanó,

ítalski forsetinn kom á sýninguna og

það birtist grein um okkur í ítölsku

útgáfunni af Flash Art. í kjölfarið,

eða nokkrum mánuðum síðar, var

okkur boðið að taka þátt í samsýn-

ingu í Museum am Ostwall í Dort-

mund, ásamt Ange Leccia, Luc Deleu,

De Maria og fleirum. Þar fékk hver

maður stórt herbergi útaf fyrir sig

þannig að við gátum hvert og eitt sýnt

3-4 verk. Þessi sýning gekk afskap-

lega vel. Við seldum vel, m.a. söfnur-

um á Italíu og víðar og í framhaldi af

þessu, vorið 1988, vorum við kynnt

sérstaklega á RAI-listmarkaðnum í

Amsterdam. Þar var efnt til sérstakrar

sýningar á amerískri myndlist með

úrvali amerískra listamanna og við

vorum þar á meðal, svo að það er

óhætt að segja að við værum þá þegar

komin á fleygiferð í Evrópu eftir

góða byrjun á ítalíu.

Rick Tavares: Okkur var nýlega

boðið að sýna í La Criée, frönsku

menningarmiðstöðinni þannig að

okkur gengur vel þessa dagana og allt

getur gerst. Kannski býðst okkur

önnur stórsýning fljótlega, listhús

hafa verið að kaupa af okkur og söfn

sömuleiðis þannig að það má segja að

okkur gangi vel í Evrópu. Það má

segja það.

Þorvaldur Þorsteinsson: Hvað er það

öðru fremur sem einkcnnir verk

ykkar?

Sam Roberts: Við erum töluvert ólík

innbyrðis. Við Rick vinnum mikið

með okkar nánasta umhverfi, notum

hlutina eins og þeir koma upp í hend-

urnar á okkur í neysluþjóðfélaginu og

röðum þeim saman þannig að úr

verður listaverk. Við erum að reyna

að skrásetja samtímann á myndrænan

hátt, svipað og nokkrir aðrir amer-

ískir listamenn sem hafa eitthvað

verið að nota neysluvarning í verkum

sínum. Hins vegar eru Janet og Will-

iam meiri abstrakt listamenn, jafnvel

þó að þau noti líkt og við hráefni úr

nútímaiðnaði, það hráefni sem býðst

í dag. Listamenn á hverjum tíma nota

það hráefni sem þeir finna i búðinni

hverju sinni.

R.T.: Þess vegna breytist listin svona

hratt. Það eru alltaf að koma fram ný

hráefni og þannig skapast svigrúm til

að gera nýjar tilraunir.

W.H.: Sam og Rick eru meira í

„hentunum" (ready-made) og eftir-

líkingalistinni (simulation art) og svo-

leiðis hlutum. Við Janet vinnum

meira abstrakt út frá iðnframleiðslu

nútímans, meira í áttina að „ný-

flatarlist" (Neo-Geo).

Þ.Þ.: Hverju þakkið þið velgengni

ykkar í Evrópu? Eruð þið e.t.v. í

sterkari tengslum við evrópska list-

hefð en aðrir amerískir listamenn af

yngri kynslóðinni?

S.R.: Nei, ég held að við séum ekki í

neinum sérstökum tengslum við

Evrópu. Við höfum einfaldlega

fengið góð tækifæri til að sýna hérna

og ég held að amerískum lista-

mönnum gangi yfirleitt vel í Evrópu.

Janet Fleisch: En margir amerískir

listamenn, einkum þessir „ungu og

efnilegu", eiga mjög erfitt með að

skilja þetta. Þeir sjá ekkert nema

New York. Þeir halda að New York

sé eini staðurinn sem kemur til greina

við að koma sér á framfæri og halda

sýningar og þeir festast í hugmynd-

inni um að vinna með einu listhúsi

þar sem þeir sýna síðan annað hvert

ár. Ungi ameríski listamaðurinn er

fremur þröngsýnn að þessu leyti og

sér ekki aðrar Ieiðir til velgengni en í

gegnum New York listhúsið, sem er

B

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV