Svart á hvítu - 01.10.1977, Blaðsíða 33

Svart á hvítu - 01.10.1977, Blaðsíða 33
....og hirtum sorpið úr forinni hentum því upp á vörubílspallinn sveittir í svölu regni Það var olíulykt og dísilhljóö umkringt svimandi niði og við hlustuöum hvorki né heyrðum, né sáum hvernig spor okkar huldust regni runnu saman við eðjuna . . . Og snöruðumst inn í bílinn og strukum móðu af rúðunum kveiktum í kamel með kanann á fullu ókum af stað og austur miklubraut hratt gegnum fossandi regnið í umferðarstraumnum brunuðum yfir kringlumýri framhjá shell stöövunum og áfram upp yfir leitin við grensás á rauðu Ijósi var útsýnið ford hagkaup, og nokkru fjær blokk við blokk við blokk saman í hnapp eins og blokkir og lögreglubíll þaut hjá eftir silfurgljáandi götunni undir Ijósastaurunum, stikilaugunum hljóðu. Síöan beljandi gnýrinn vatnsflaumur eftir endlangri brautinni og silakeppsandskoti að þvælast — vió tókum fram úr og gusurnar stóöu yfir helvítið blikkandi Ijósum flautandi steytandi hnefa og önnur þurrkan bilaði á móts við ellióaárbrýrnar í brekkunni fauk af poki splundraðist framan á fíat eins og poki með úldnu skyri sem þeytt er í mann í mótmælagöngu — gáfum í botn framhjá esso beygðum svo út í gufunes vegurinn dílaóur pollum, og drógum úr ferðinni Regninu tók að slota þaö smástytti upp . . . í lofti rofaði til . . . og flæðandi sólskin fjöll sem úr Ijósu mistri útlínur esjunnar eins og örþunnar eggjar og regnboginn hikandi, hátt yfir verksmiðjureyknum gula sem barst yfir haugana og hliðið beið, gapandi, líkt og kjaftur sem við ókum í gegnum, inn í kæfandi daun þar sem sorp lá eins og hráviði í gegnsóa dyngjum kvikum af svartbak um leið og við sturtuðum dreif mávager að og tók að rífa í sig ruslið Reykjandi horfðum við á þá borg sem bar yfir haugana handan við sundið horfðum höggdofa ókum svo enn af staó . . .“ G. H. 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Svart á hvítu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.