Inga Dóra Björnsdóttir Um tilraunaleikhús í New York Jon Teta er einn þeirra New York búa, sem hefur heigað líf sitt tilraunaleikhúsinu, sem þýðir að hann hefur varla átt of- aní sig eða á mestan hluta starfsferils síns. Hann vinnur sem barþjónn nokkur kvöld í viku og skrapar þannig saman fé fyrir mat og húsaleigu. öllum öðrum stund- um dvelur hann í gamalli hatta- gerðarverksmiðju við Wooster- stræti í SoHo í New York, en þar er nú til húsa off-off Broadway leikhúsið The Open Space in SoHo". Það var einmitt þar fyrir tilstilli Jons, sem leikrit Jökuls Jakobssonar, Herbergi 213, var sýnt við góðar undirtektir í febrúar síðastiiðnum. Ég rölti þangað fyrir nokkru til að ræða við Jon um leikrit Jök- uls og almennt um starfsemi til- raunaleikhúsa í New York. Hvernig stóð á því að þið settuð upp verk eftir Jökul Jakobsson? Fyrir fjórum árum vann ég með off-off Broadway leikhúsinu The Next Stage". Til að byrja með fengust við nær einungis við verk eftir unga bandaríska höfunda. Við gáfumst þó brátt upp á því, þar sem þau fjölluðu flest um sálfræðileg vandamál höfundanna sjálfra og komu þar af leiðandi fáum öðrum við. Nú auk þess skorti þau allt mynd- ræni og inntak (essence). Þvítók ég það til bragðs að skrifa til há- skóla víðs vegar um Bandaríkin og spyrjast fyrir um verk ungra Jon Teta. höfunda hinna ýmsu landa heims. Mér barst fjöldinn allur af verkum, þar á meðal verk Jök- uls, Herbergi 213 (sem í þýðingu hlaut nafnið The Mandolin Cocktail") frá norrænu deildinni við Visconsin háskóla. Ég varð strax yfir mig hrifinn og vildi koma því upp sem fyrst. En eins og gengur fór The Next Stage" á hausinn skömmu síðar og ekkert varð úr því. Verkið var mér þó alltaf ofarlega í huga og ég hét því að koma því á fjalirnar SVART Á HViTU