Frá uppfærslu Herbergi 213" í The Open Space in SoHo" tilraunaleikhúsinu í New York. við fyrsta tækifæri sem mér byð- ist. Tækifæriö bauðst núna í vetur hér hjá okkur í ,,0pen Space", en með pví leikhúsi hef ég nú starfað ítæp tvö ár. Hvernig var að setja verkið upp og hvernig líkaði leikurun- um við það? Þetta verk er mjög einfalt að uppbyggingu og þar af leiðandi var auðvelt að koma því upp, aðeins eitt svið dagstofan og ekkert hlé, því okkur fannst leikritið þess eðlis að það þyldi enga truflun. Leikurunum líkaöi verkið vel og var það þeim ó- venjuleg reynsla, vegna þess að kvenhlutverkin voru fimm en karlmannshlutverk aöeins eitt, en ekki öfugt eins og venjan er. Að vísu deildu þeir dálítið um það í fyrstu, hvert viðhorf Jökuls til kvennanna íverkinu væri. Þeir urðu fljótt sammála um að Jökull væri allur kvenna megin og ef einhver þarfnaöist hjálpar og samúðar, voru það konurnar fimm. Okkur hefði heldur aldrei tekist að fá fimm konur til þess að leika í leikriti sem gerði lítið úr konum. Annaó sem hreif okkur var litanotkun Jökuls, fjólublár kokt- eill, gular rósir og grænn jakki. Fyrst í stað var ætlunin að hafa búninga og leikmynd í gráu, svörtu og hvítu, til aó undirstrika þessa þrjá liti Jökuls. Einnig var hugmyndin að hafa dagstofuna veggjalausa svo húsgrindin sæ- ist og áhorfendur fengju á til- finninguna að persónur leikrits- ins væru fastar í neti. En smám saman komumst við að því að venjuleg dagstofa með venju- legri innréttingu hæfði verkinu best. Mér til undrunar og ánægju sögðu þeir fslendingar sem sáu okkar uppsetningu að leiktjöld og búningar væru líkir því sem þeir hefðu séð í uppfærslum á leikritum Jökuls á l'slandi. Það var kannski einmitt þessi venju- lega heimilismynd sem Jökull hafði í huga þótt það kæmi aldrei beint fram í handritinu. Hver urðu viðbrögð áhorf- enda? Við höfðum almennar um- ræður eftir sýningu eitt kvöldió og kom þar margt skemmtilegt fram. Sumum fannst Jökull vera undir sterkum áhrifum frá Harold Pinter, aðrir sáu Strindberg í verkinu. Nokkrum fannst það vera gamaldags absurdismi og ekki eiga heima í leikhúsi sem þessu. En öllum kom saman um að leikritið heföi sett þá út af 10 SVART Á HVlTU