Ljóð Einar Ingi Magnússon snaraði úr Ijóðabókinni Brian Patten Little Johnny's Confession" Nonni litli játar! Þennan morgun: Af flónsku og ungæöishætti tók ég vélbyssu föður míns, frá því úr stríóinu, traustataki, fór út og glóóaði nokkra stubbvaxna óvini. Síðan þá hef ég ekki snúið heim. Þennan morgun: Flæðir lögreglan yfir gervalla borgina, með blóóhunda í taumi og mig á heilanum. Spyrja: Hefurðu séð hann? Sjö ára gamall. Hefur gaman af Plútó, Mikka mús og birninum Biffó. Hefurðu séð hann einhvers staðar?" Þennan morgunn: Sit ég einn og yfirgefinn á ókunnugum róló og muldra í sífellu: ,,Þú hefur klúðrað því, þú hefur klúðrað því." Ég á næsta leik en er mát. Blóðhundarnir snuðra mig uppi. Þeir fundu sleikjóinn minn! SVART A HVlTU 1 5