Síðasta bréf frá Nonna litla Mamma: Ég verð ekki heima í kvöld svo, haföu ekki áhyggjur: Flýttu þér ekki að tilkynna hvarfið og vissulega óþarfi að slæða síkin ég hyggsí halda lífi. Og skátarnir finna mig ekki á Vaðlaheiði erekki ífelum og sviftu mig ekki því sem ég hef unnið að í fyllstu leynd. Fjölmiðlaðu þjóðinni ekki myndum af mér Ég hef dulbúist sem fullorðinn og líkar vel, hef farið úr stuttbuxunum og í þær síðu og nú fer ég í bæinn, svo kvíddu engu og tilkynntu ekki hvarfið með hraði Ég hef leigt kytru án tjalda fyrir gluggann . . horfi á skuggann, ráfa um þennan kuldadóm heyrði afsökun þína í útvarpinu í morgun röddin svo sorgmædd, gömul, tóm. SVART A HVÍTU 1 7