Hann hugsaði um lífið. í rauninni fékkstu aldrei það sem þú vildir. Alveg sama hversu mikið þú reyndir gerðirðu alltaf mistök sem þú gast ekki losað þig úr. Þú sást aldrei himininn eða hafið vegna þess að þú varst í fangelsi, sem reyndar enginn kallaði fangelsi og þó þú gerðir það skildu þau ekki um hvað þú varst aö tala, eða þóttust ekki skilja það. Þaó lagð- ist á hann drungi. Hann lá hreyfingarlaus án þess að hugsa eða vorkenna sjálfum sér og öðrum. En þegar hann fór loksins niður, hlakkandi yfir því að Rósa hafði leyft honum að vera svona lengi frá, án þess að nöldra, var fólk í sjoppunni og hann heyrði skrækina í Rósu. Meðan hann var að troðast áfram í gegnum þvöguna sá hann sér til skelfingar að Rósa hafði gripið stelpuna glóðvolga, með súkkulaðið, og hristi hana svo harkalega að höfuó krakkans dinglaði einsog blaðra á priki. Með for- mælingar á vörum þreif hann í Rósu og reif hana frá stelpunni, sem var skelfingin uppmáluð. Hver djöfullinn gengur á," hrópaði hann til Rósu, ætlarðu að drepa hana?" ,,Hún er þjófur," æpti Rósa. Haltu þér saman." Hann sló hana til að binda endi á öskur hennar en höggið var þyngra en hann hafði ætlað sér. Rósa datt afturábak með andköfum. Hún rak ekki upp bofs en horfði ringluð á fólkið í kringum sig, reyndi að brosa og allir viðstaddir sáu blóðflekki á tönnunum. Farðu heim," sagði Tommi við stelpuna, en í sömu svipan varð ys og þys við dyrnar og mamma hennar kom inn í sjoppuna. Hvað skeði?" spurði hún. Hún stal sælgætinu mínu," æpti Rósa. Ég leyfði henni að taka það," sagði Tommi. Rósa góndi á hann einsog hún hefði verið slegin aftur en síðan komu grátviprur um munninn og hún fór að kjökra. Þú áttir að fá annað stykkið mamma," sagði stelpan. Mamma hennar sló hana harkalega í andlitið. Þú litla þjófstík, nú verða sko hendurnar á þér brenndar." Hún hremmdi stelpuna sneri uppá handlegg hennar og dró hana á eftir sér. Eins og í afkáraleg- um dansi hrasaði stelpan og þeyttist áfram en við dyrnar tókst henni að snúa fölu andlitinu við og reka framan í hann rauða tunguna. Eftirtaldir aðilar styrktu útgáfu tímaritsins: Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti 18. Símar: 1880og 13135 Nesco hf. Laugavegi 10. Símar: 27788 og 27742 Mál og menning, Laugavegi 18. Símar: 24240 og 24241 Samvinnubankinn SVART Á HVÍTU 25