einstakra leikstjóra er eitt af ein- kennum kvikmyndaiðnaðarins. Upphaflega var háó samkeppni á milli framleiðenda um kvik- myndastjörnumar. Síðar kom í Ijós að hin gífurlega háu laun sem stjörnurnar fengu höfðu sálfræðileg áhrif á áhorfendur. í hugum þeirra fóru saman gæði og miklar fjárfestingar. Auðæfi kvikmyndaleikaranna reyndust aðdráttarafl fyrir neytendur og það var brátt notað í áróðurs- skyni. Kvikmyndastjarnan er gerð vinsæl með öllum hugsanlegum ráðum. Framleiðendur nota út- varp, heimsblöð, árlegar verð- launaafhendingar eins og Oscarsverðlaunin til þess að framleiða stjörnur og tryggja sem mestar vinsældir þeirra. Kvikmyndaverin dreifa ómerki- legum tilkynningum um þessa ástvini áhorfenda, um líf þeirra og einkamál. Ekki má vanmeta áhrifin af þessum tiltektum. Stjörnudýrkun hefur sprottið upp víða um heim en einkum í Bandaríkjunum þar sem kvik- myndastjömur skipa mikilvæg- an sess í opinberu lífi. í þessu sambandi þykir rétt aö nefna fyrirbæri sem kallað er kvik- myndaaðdáendahópur (film fan) sem sumir starfa í klúbbum og eru í stöðugu sambandi við á- trúnaðargoð sín. Framleiðendur hvetja þessar hreyfingar, því hjá þeim fá þeir mikilvægar upplýs- ingar um vinsældir einstakra Dæmi um hvernig ómerkilegum upplýsingum um einkalíf stjörnunnar er dreift til neytenda. leikara. Tengslin milli kvik- myndafólks annars vegar og á- horfenda hins vegar breytast stöóugt. Breytingarnar eru háð- ar ýmsum straumum og hreyf- ingum í þjóðfélaginu á hverjum tíma. Áður fyrr voru stjömumar gerðar aö guðlegum verum en nú reyna framleiðendur aö gera stjörnur sínar mannlegar til þess að aölagast breyttum viðhorfum fjöldans. Vinsælustu leikarar Dæmi um staðlaðar manngerðir kvikmyndanna: kúreklnn, gljátíkin, ófreskjan. 44 SVART Á HVlTU