listrænan miðil. Hver kvikmynd höfðar til stórs hóps fólks með mismunandi andlegar þarfir. Framleiðandi kvikmyndar spyr því sjálfan sig, hvaða þarfir hann eigi að koma á móts við. Fram- leiðsla auðvaldsins sækist eftir arði sem krefst að kvikmyndin eigi aðallega að fullnægja þeim þörfum sem sameiginlegar eru flestum neytendum. Meó því að bera saman tekjur af einstakri kvikmynd getur kvikmyndafram- leióandinn staðfest hvers konar kvikmynd fullnægi sem flestum. Samkvæmt ungverska kvik- myndafræöingnum Bela Balazs höfðar evrópskur og bandarísk- ur kvikmyndaiönaður hug- myndafræðilega til smáborgar- ans. Aðalrök fyrir þessari skoð- un sinni telur Balazs vera að smáborgarinn hafi enga stéttar- vitund og hafni því ekki þeim hlutum sem séu efnahagslega og félagslega andstæðir honum. Smáborgarar eru einnig stærsti neytendahópurinn vegna þess að hugsunarhátt þeirra er einnig að finna í verkalýðsstétt, menntamannastétt og borgara- stétt. Án þess aö farið sé nánar út í þetta atriði má slá því föstu að kvikmyndaiónaðurinn staðlar vöru sína markvisst að meðal- mennskunni, hvaö varðar form og inntak. Þegar vikið er að þessari stöðluðu línu er það ein- ungis til þess að stækka mark- aðinn sem allra mest. Það gefur auga leið að þarfir neytenda á ólíkum menningar- svæðum eru æói misjafnar vegna frábrugðinna lífskjara. Þetta á jafnvel viö þótt hug- myndaheimur stærstu hópanna sé svipaður. Ef kvikmyndavara á að vera alþjóöleg verður allur mismunur á milli menningar- svæða að hverfa og í staðinn er reynt aö stuðla aö andlegri jöfn- un. Þar sem kvikmyndavaran sameinar smekk og eftirspurn er hún voldugt tæki í þjónustu fjöldaframleiðslu auövaldsins vegna þess að hún staólar og eykur neyslu fólks á öðrum vörutegundum. Bandarísk kvikmyndaframleiðsta fer ekki í manngreinarálit. Áhrif kvikmynda Kvikmyndaframleiðsla auð- valdsins slær ryki í augu fjöld- ans. Kvikmyndirnar stuöla aö því aðfesta ríkjandi hugmyndafræði í sessi ásamt ríkjandi ástandi í félags- og stjórnmálum. Eða eins og þekktur bandarískur leikstjóri Cecil B. DeMille sagöi um hinar svokölluðu ópólitísku kvikmyndir frá Hollywood að þær væru frábær aöferó til þess að útbreiða upplýsingar um bandaríska hugsun og lífsstíl. 46 On the Waterfront" með Marlon Brando; þjóðfélagsgagnrýni gerð að söluvöru. SVART Á HVÍTU