Birtingur - 24.12.1953, Blaðsíða 4

Birtingur - 24.12.1953, Blaðsíða 4
BIRTINGUR tímarit Veg/ta eindreginna tilmœla fjölmargra les- enda verður Rirlingur eftirleiðis gefinn út sem tírnarit — eitl hefti á mánuði— og lýkur fyrsta árgangi með þessu hefti. Vœnti ég þess að breytingin verði til balnaðar og allir uni hcnni vel. Fyrsta tölublaði Birtings hefur hvarvelna verið rnjög vel tekið, svo að hingað til liefur bjartsýni hatis ekki orðið sér til háðungar. Þó er því ekki að leyna, að ennþá hefur Birtingur ekki unnið sér eins stóran lesendahóp og Saka- mál eða Fönix. Lesendur glœpa- og gleðisagna- flórunnar eru riturn sínurn raunbetri en hinir sern vamta mœtti, að einhvers mœtu rit á borð við Birting. I ávarpsorðurn var heitið á almenn- ing að afsanna þá sögn, að ekki. þýði lengur að bjóða Ijóða- og söguþjóðinni annað en erlent bull af verstu gerð, og skal sú áskorun ítrekuð hér. Eigi ritið að kornast á fastan fjárhagsgrund- vöU, verður það að fá rninnst þúsund skilvísa áskrifendur til viðbótar. Ættu menn að athuga, áður en þeir kasta jrá sér 60 króimrn.fyrir er- lcndan reyfara, hvort þcir fengju ekki meira jyrir snúð sinn, cf þeir verðu peningunum til að gerast kaupendur að Birtingi í eitt ár. að berja þennan rígmontna amríska pælott þangað til ekkert væri eftir af honum nema taitlur. Það fróaði honum að hugsa um þetta, — hann slakaði á krepptum hnefanum utan um kogaraglasið, dró það upp með semingi, tók úr því tappann og saup stóran sopa. Klígjan kom upp í hálsinn á honum og hann hélt að hann mundi kasta öllu upp aftur, en hann reyndi að kingja og setti sér fyrir sjónir framkvæmd þessarar snjöllu hefndarhugmynd- ar, — sá þetta státna nef orðið að formlausum hlóðugum óskapnaði — fann sjálfan sig herja og sparka í liggjandi óvininn, sá í huganum Ijósa hárið á stúlkunni sinni og bláu augun, skínandi eins og stjörnur af hrifningu. — Hvort henni mundi gefast á að líta! Honum létti og klígjan hvarf. Hann lagði af stað að leita í glorulegum götuljósunum, — gekk rösklega, eins og maður sem ætlar eitt- hvað sérstakt, teygði handleggina út í vinkil eins og hann hafði séð Súpermennina gera á bíó, beit á jaxlinn og keyrði höfuðið niður á milli axla, og lét sig engu skipta þó að slyddan lemdist framan í hann. Hann var orðinn svalur fyrir öllu, kaldrifjaður náungi, sem ekki lét sér smámuni fyrir brjósti brenna. Hann fann ein- hverja furðulega kennd bærast með sér — hann færðist allur í aukana, — svona hafði hann aldrei verið áður — nema einstöku sinn- um á bíó, — en þá var þetta allt öðruvísi, miklu fjarlægara og óljósara, því það var líka bara mynd — en nú var það hann sjálfur sem var að bjarga sér úr klípunni — hann fann að nú var hann alveg eins og kábojarnir og glæponarnir í Amríku, — gat drepið með köldu blóði, — drepið hvern sem stóð í vegi fyrir honum — nú var hann sjálfur Súpennann, sem var að leggja til bardaga og bjarga stúlkunni sem verið var að draga á tálar. Hann varð að vera kaldur fyrir öllu, jafnvel slyddunni, — vera rólegur og kósí, eins og þetta væri sjálfsagður hlutur. Já, hann var sannur Súpermann, það fann liann svo greinilega, fann bvernig höfuðið hraðminnkaði og herðarnar þrútnuðu, — upp- handleggsvöðvarnir urðu á stærð við fótbolta og höfuðið sat niður á milli axlanna, lítið og hörkulegt með þverbnípta kjálka og lágt enni. Augun urðu tvær örmjóar rifur sem duldu ör- ugglega leyndardómsfullar fyrirætlanir hins agnarlitla rafmagnsheila Súpermannsins. Hann geiflaði munninuin og fann hið kulda- lega glott hetjunnar breiðast yfir andlitið á sér, — þetta veraldarvana háðsglott hins kaldrifj- aða ævinlýrainanns, sem þekkti kvenfólkið og sjálfan sig. Hann fann meira að segja vöðvana spretta út hingað og þangað um bakið og brjóstið, rétt eins og kartöflur, kúlulaga og keilulaga, litla og stóra, þykka og þunna, langa, 4 BIRTINGUR

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/822

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.